Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 23

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 23
Auðvelt er það ekki. Langvistunardeildin í Heilsu- vemdarstöðinni hýsir fólk á öllum aldri. Hún er önnur tveggja deilda í Reykjavík, sem annast langvistun án tillits til aldurs. Hin deildin er hjúkrunardeildin í Sjálfsbjargar- húsinu. Aðrar langvistunardeildir eru ætlaðar öldruðum. U.þ.b. 25% sjúklinga á Grensás- deild koma þangað eftir ýmiss konar slys. 60% sjúklinga koma af öðrum deildum Borgarspítalans, flestir hinna úr heimahúsum, 70% sjúklinga hafa verið Reykvrkingar. A þeim 19 árum, sem deildin hefur starfað, hafa um 10 þúsund sjúklingar vistast á henni. Sá yngsti var 5 ára telpa, sem fékk mænuskaða eftir umferðarslys, ogsáelsti 105árakonameðheilabilun. Vegna fjölþættra einkenna sjúklinga og flókinna vandamála þeirra næst besti árangur í greiningu, mati, meðferð og endurhæfingu með góðri samvinnu margra sérhæfðra starfsstétta. Auk lækna, hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða, starfa við deildina sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, talmeinafræðingar, félagsráðgjafar og taugasálfræðingur. Náin samvinna er við sérfræðinga spítalans á hinum ýmsu sviðum. Aðkeypt er aftur á móti vinna stoð- tækjasmiða. egar sjúklingur kemur til endur- hæfingar, er mikilvægt að gera gera sér fljótt grein fyrir þeim mark- miðum, sem stefnt er að og gera áætlun um tímalengd endurhæfingarinnar og endanlegan árangur í hverju tilfelli. Slík áætlun gerir sjúklinginn raunsæjari í afstöðu sinni í daglegu endurhæfingarstarfi og undirbúningi undir hugsanlegar nýjar aðstæður. Aætlunin er einnig aðhald fyrir starfsfólk og undirbýr jarðveginn fyrir útskrift með nægum fyrirvara. A Grensásdeild vinnur starfsteymið vel saman. Til að fylgja markmiðum eftir og hafa yfirsýn yfir gang mála eru haldnir fundir einu sinni í viku hverri, þar sem fulltrúar allra starfsstétta hússins hittast og ræða um hag sjúklinga. Þá er farið yfir stöðu einstakra þátta endurhæfingarinnar og jafnframt hugað að sálrænum og félagslegum vandamálum. júkdómar og slys geta haft í för með sér verulegar breytingar á lífsvenjum fólks. Með endurhæfing- unni er reynt að lagfæra það, sem aflaga hefur farið að því marki, sem unnt er og bæta fyrir þá fötlun, sem orðið hefur með viðeigandi ráðstöf- unum. Sem sé að koma viðkomandi einstaklingi í eins gott ástand og nokkur kostur er á og hugsanlega að kenna honum að lifa við ákveðna fötlun. Hérlendis er allt gert og engu til sparað til að lækna fólk, er slasast og þá sem fá bráðasjúkdóma. Endur- hæfingin er ekki síður mikilvæg til að flýta bata, stytta dvöl á spítala og aðstoða fólk við að komast út í lífið á nýjan leik. Allt þetta er til hagsbóta fyrir viðkomandi einstakling og þjóðfélagið í heild. Þurfi fólk á lang- vistun að halda ætti það líka að vera auðsótt mál. Því miður hefur það ekki alltaf verið svo, að minnsta kosti ekki héráReykjavíkursvæðinu, en vonandi stutt í að úr rætist. Reykjavík 27. janúar, Asgeir B. Ellertsson, dr. med. yfirlæknir. Asgeiri vini mínum er mjög vel þakkað þetta mikilvœgaframlag til Fréttabréfsins svo og fyrir alla aðstoð við ritstjóra um alla efnisöflun frá Grensásdeildinni. FRETTABREF ORYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.