Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 26

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 26
í dag. Ég fer fyrst á morgnana í hóp- þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara, sem tekur mig svo eina og sér í karphúsið á eftir og það er nú aldeilis bærilegt karphús. Eftir hádegið fer ég svo í iðjuþjálfun, sem ekki er síður mikilvæg en sjúkraþjálfunin. I dag geng ég um með eina hækju. Það er öxlin sem er aðalvandamálið, þ v í hún verður víst alltaf stórlega skert. Ef hún verður ekki unandi, þá verður sett í hana kúla. Nú fer eflaust að styttast í því að ég verði hér alfarið, en margra mánaða æfingar munu bíða mín. 3. Hér hefur alveg verið yndislega gott að vera. Læknar, hjúkrunarfræð- ingar og sjúkraliðar og annað starfs- fólk hafa hreinlega lagt sig í líma við að létta manni dvölina. Aðbúnaður er allur mjög góður og sama er að segja um þann hlýlega heimilisanda sem hér ríkir. Mér finnst ég eiginlega ekki vera á sjúkrastofnun heldur á stóru, góðu heimili. Þegar maður er svona margbrotin og aum á sál og líkama þá er viðmótið og alúðin það sem flýtir batanum bezt og mest. 4. Framtíðin ein á eftir að leiða það í ljós, hversu verkfær ég verð. Ég mun örugglega reyna að sinna mínum húsmóðurstörfum svo viðunandi verði. En út af umferðinni vil ég aðeins segja: Aldrei er of varlega farið og þess ættu ökumenn ekki síður að minnast en vegfarendur sem á gangi eru. OgsvobætirBimaviðí gráglettni: Hins vegar hélt ég nú ekki að ég hefði svo mikið og sterkt aðdráttarafl að ég yrði elt upp á umferðareyju og allt að því hrifin inn í eilífðina. Og Bima brosir ásamt þeim sem á stofunni hennar eru í heimsókn og það bros mun örugglega fleyta henni áfram yfir ýmsa óyfirstigna erfiðleika. á var komið að Salvöru Gott- skálksdóttur fæddri 1939,enhún er frá Hvoli í Ölfusi en hefur búið í Hafnarfirði sl. 30 ár. Salvör er húsmóðir. 1. Ég varð fyrir alvarlegri lömun og óvíst hversu langan tíma tekur að ná sér. Læknar eru frekar bjartsýnir, en spumingin er um tíma, tíma og þolinmæði. Ég er búin að vera legusjúklingur í rúmt ár, en vonir glæðast. Hér er heldur betur hlegið dátt. 2. Ég er mest í sjúkraþjálfun sem miðar að því að þjálfa fætur og líkamann yfirleitt og iðjuþjálfunin snertir svo hendumar mest, en þó spilar þetta allt saman. Ég fer í klukkutíma sjúkraþjálfun fyrir hádegi. Eftir matarhlé tekur svo iðjuþjálfunin við. Undanfama rúma tvo mánuði hef ég verið að æfa mig að standa á milli tveggja þjálfara og um mánaðamótin janúar—febrúar tók ég mín fyrstu skref í göngugrind. Aftur er svo farið í sjúkraþjálfun, en svo kemur blessað kaffið og þá eru æfingamar áenda. Eftirþað er slappað af, horft á sjónvarpið og spjallað við aðra vistmenn. 3. Hér er mjög gott að vera og starfsfólkið til fyrirmyndar. Öllum er látið líða svo vel sem frekast er kostur. Ég segi eins og flestir ef ekki allir hér að þetta sé eins og stórt og gott mynd- arheimili. Það gengur hægt að ná árangri, enda var lömun mín svo alvarleg, en allt er það í rétta átt og það er fyrir öllu. 4. Mitt svar er stutt og laggott, en það segir líka mikið: Að komast heim. Síðastur viðmælenda minna er svo Ingólfur Þorkelsson skólameist- ari Menntaskólans í Kópavogi, en þeim skóla hefur hann stýrt í 18 ár. Ingólfur segist bæði vera Seyðfirð- ingur og Jökuldælingur en þar hafi hann verið til skiptis fram til 19 ára aldurs. Þá fór hann í skóla til Reykja- víkur og á þessu homi hefur hann dvalizt síðan. 1. Að morgni 11. nóv. á liðnu ári vakna ég og er „tregt tungu að hræra“, er þvoglumæltur, en fer þó til vinnu minnar í skólanum s.s. venjulega. En um hádegið versnar mér svo að ég er fluttur upp á Borgarspítala. Eftir skoðun þar er mér tjáð að annað hvort sé um blóðþurrð í heila að ræða eða minni háttar blóðtappa. Var svo vist- aður beint á Grensásdeild. 2. A Grensásdeild komst Einar Már Valdimarsson læknir að því að æð hefði stíflast í höfði — á stærð við títuprjónshaus og mundi ég ná mér að mestu. Um kvöldið versnaði mér hins vegar svo að ég sem ekki er nú ýkja lífhræddur velti því fyrir mér hvort ég væri nú að geispa golunni. Vaknaði svo um miðja nótt alls hugar feginn því að vera héma megin. Hér hefi ég svo fengið góða um- önnun og ágæta þjálfun. Sjúkraþjálfun fékk ég til að æfa stærri liði og styrkja þá og iðjuþjálfun til að styrkja fín- hreyfingar. Hvom tveggja þjálfunin er markviss og margs konar, enda vel tekist til og ég fengið eðlilegan bata miðað við það sem áætlað var. Ég æfi mig heilmikið sjálfur, er sett fyrir og geri heimaverkefni. Ég var á deildinni alveg fram að jólum. Eftir jól fór ég daglega á morgnana og heim upp úr

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.