Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 29
Sigurveig Alexandersdóttir varaform. FOSH:
F E P E D A
Evrópusamtök foreldrafélaga heyrnarlausra barna
Árið 1981 vaknaðifyrsthugmynd-
in um að stofna Evrópusamtök foreldra
bama með alvarlega heymarskerð-
ingu. Það var álit manna að mikilvægt
væri að slík samtök væru til, þar sem
fjallað yrði um hin ýmsu mál sem
foreldrafélögin væru með á stefnuskrá
sinni. Heildarsamtök sem þessi yrðu
mjög sterk og gætu barist fyrir hags-
munamálum heyrnarlausra á
evrópskum vettvangi.
Stofnfundur samtakanna var síðan
haldinn í Luxemburg árið 1990 með
þátttöku 24ra foreldrasamtaka í
Evrópu. Nafn samtakanna er Federa-
tion Européenne des Parents d'Enfants
Déficients Auditifs, skammstafað
FEPEDA.
Formaður Foreldra- og styrktar-
félags heyrnardaufra (FOSH) sótti
stofnfundinn. Á fundinum voru lög
FEPEDA sett saman. Markmið sam-
takanna er að sameina félög foreldra
heymarskertra bama og unglinga í
einstökum þjóðlöndum í Evrópu og
hafa samvinnu við aðrar evrópskar
stofnanir og einkum þær sem láta mál-
efni heymarskertra til sín taka í þeim
tilgangi:
— að gera heymarskertum börnum/
unglingum og fjölskyldum þeirra
kleift að lifa betra lífi, án tillits til
þjóðfélagsstöðu þeirra, menningar
eða efnahags.
— að stuðla að rannsóknum og leggja
til þeirra fé og að tryggja það að
skipti á upplýsingum og þekkingu
fari fram í þeim tilgangi að
foreldrar hafi um fleiri kosti að
velja og meiri áhrif á menntun
bama sinna.
— að greiða götu heymarskertra bama
og unglinga hvað snertir menntun,
menningu og atvinnu og að þau
njóti fullra borgaralegra réttinda
hvar sem er í Evrópu.
— að upplýsa og fræða almenning um
þarftr og afrek heymarskerts fólks,
hafa áhrif á stefnumörkun í sínu
eigin landi og Evrópu sem heild.
— að stuðla að vináttu, gagnkvæmum
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
skilningi, skemmtisamkomum og
heimsóknum milli heyrnarskertra
barna/unglinga og fjölskyldna
þeirra í öllum löndum Evrópu.
— að setja á fót stofnun til hagsbóta
heyrnarskertum börnum/ungl-
ingum og fjölskyldum þeirra.
Fullgildir aðilar að FEPEDA eru:
Foreldrafélög heymarskertra bama og
unglinga í einstökum Evrópulöndum
eins og þetta atriði er skilgreint í for-
mála Evrópubandalagssamningsins.
Aukaaðild eiga sams konar samtök
heyrnarlausra og hey rnarskertra barna
í öðrum Evrópulöndum.
Áheymaraðild eiga einstaklingar,
samtök og ríkisstofnanir sem geta
stuðlað að því að markmiðum
FEPEDA verði náð.
Stofnfundurinn ákvað að bera
lögin undirfyrstaaðalfund samtakanna
sem Portúgalir buðu til í Lissabon að
ári og í tengslum við aðalfundinn var
haldin námsstefna og fjölskylduhátíð
dagana 29. júlí—5. ágúst.
Tveir fulltrúar FOSH, Jóhann V.
Olafsson fyrrverandi formaður og
undirrituð, sem er varaformaður, fóra
á ráðstefnuna ásamt sérkennslufulltrúa
menntamálaráðuneytisins, Kolbrúnu
Gunnarsdóttur.Menntamálaráðuneyt-
ið styrkti einn fulltrúa frá FOSH til
fararinnar.
FERÐIN TIL LISSABON
Lagt var af stað frá íslandi 28. júlí
og flogið ti 1 London, en þar urðum við
fyrir 8 tíma seinkun vegna vélarbil-
unar, þannig að við komum ekki til
Lissabon fyrr en um miðnætti og
misstum þar af leiðandi af móttöku-
athöfninni, okkur til mikillar gremju.
Gist var á hóteli sem nefnist Nóvótel,
sem er skammt frá The Calauste
Gulbenkian Foundation stofnuninni
þar sem ráðstefnan var haldin.
Gulbenkian stofnunin er geysilega stór
og umfangi hennar má lfkja við að
undir sama þaki væru Háskóli íslands,
Kennaraháskóli Islands, Þjóð-
minjasafnið, Landsbókasafnið, Þjóð-
leikhúsið og Borgarleikhúsið. Um er
að ræða virkustu og öflugustu stofnun
á Apenninesskaga með eigin sinfóníu-
hljómsveit, ballet, o.fl. Þá er í eigu
stofnunarinnar eitt stærsta safn
egypskra fomminja sem til er í dag.
FEPEDA fundurinn var styrktur
af þessari virtu stofnun og auðsýnt að
portúgölsku gestgjafarnir höfðu lagt
mikla vinnu í að gera allt sem best úr
garði.