Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 30

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 30
Á fundinn voru mættir fulltrúar frá: Belgíu, Spáni, Italíu, Bretlandi, Danmörku, Irlandi, Luxemburg, Frakklandi, Hollandi, Þýskalandi, Svíþjóð, Austurríki, Finnlandi og Islandi. Forsetafrú Portúgals Mrs. Suares setti ráðstefnuna og bauð gesti vel- komna. Hún kom víða við í máli sínu, lagði höfuðáherslu á að foreldrar í mismunandi löndum skiptust á upplýsingum og miðluðu reynslu sinni, sem án efagæti komið að miklu gagni. Lofaði hún að sýna samtökun- um stuðning og velvilja í hvívetna. Hún taldi mikilvægt að „múrar“ milli heyrnarlausra og heyrandi yrðu rofnir. Allir í þjóðfélaginu ættu þann rétt að geta orðið virtir þjóðfélagsþegnar. Þá tók til máls fulltrúi gestgjafanna Mr. Carlos Calado frá „APECDA“ portúgölsku foreldrasamtökunum og bauð gesti hjartanlega velkomna og kynnti dagskrá ráðstefnunnar sem skiptist í þrennt: 1. Aðalfundurinn. 2. Námsstefna—fyrirlestrar og skipti á upplýsingum og reynslu fagfólks og foreldra. 3. Fjölskylduhátíð (Camping) fyrir heymarlaust ungt fólk frá Evrópu- löndunum ásamt fjölskyldum þeirra (ein vika). Stefnt skyldi að því að slík fjölskylduhátíð yrði haldin í tengslum við aðalfundi FEPEDA í framtíðinni enda mjög mikilvægt að böm, unglingar og fjölskyldur þeirra frá öllum löndunum fái tækifæri til að hittast á hverju ári. Mr. Calado sagði síðan frá ýmsum erfiðleikum við undirbúning þessa fyrsta aðalfundar FEPEDA, m.a. vegnaþess hve seintþátttakendurlétu skrá sig og benti á að slíkt mætti ekki endurtaka sig varðandi næsta fund sem haldinnverðuríMetzíFrakklandi að ári. Harry Cayton þáverandi forseti FEPEDA, sagði frá því starfi sem unnið hefði verið frá því á stofn- fundinum í Luxemburg: 1. Gert hafði verið uppkast á þrem tungumálum að lögum samtakanna samkvæmt vilja stofnfundarins og athugasemdum fulltrúa. 2. FEPEDA setti sig í samband við The Europian Association of the Deaf. 3. FEPEDA hafði samband við stjóm- völd Efnahagsbandalagsins til að undirbúa jarðveginn frekar, en þar eru miklir möguleikar í framtíðinni enda Evrópa að verða eitt s væði og ekki síst í málefnum fatlaðra og þ.m.t. heymarlausra. 4. Ymis lönd Evrópu vom heimsótt á árinu og komið á samböndum milli foreldrafélaga. Framkvæmdanefndin hafði fund- að þrisvar sinnum frá því á stofnfund- inum; íLondon.Luxemburgog París. Umræður urðu um fjármál og nauðsyn þess að tryggja fjárhag sam- takanna. Staða og hlutverk samtak- anna var tekin til umfjöllunar og var m.a. rætt um að þrátt fyrir mismunandi skoðanir í menntunarmálum yrði að ræða málin bæði í hreinskilni og vin- semd. Hér yrði að vinna saman þótt ekki væru allir steyptir í sama mótið. Mikill tími fór í að ræða tæknileg atriði og skiptingu atkvæða og má geta þess að Island hefur 6 atkvæði en Austurríki og Finnland 9. Annars ræð- ur skipting Efnahagsbandalagsins. Stjórn samtakanna var kosin: Jean Benoit Balle forseti frá Frakk- landi, John Butcher, varaforseti frá Bretlandi, Carlos Calado, gjaldkeri frá Portúgal, Klaus Löning, ritari frá Luxemburg. Eftir umræður og fundarstörf fyrstu tvo dagana voru lög samtakanna samþykkt og ný stjóm kosin. Þá var gengið frá atkvæðavægi aðildarríkj- anna sem og upphæð félagsgjalda. Á þriðjadegi voru sérstakirfundir, þar sem saman var komin fram- kvæmdanefnd FEPED A. Þar var hug- að að málum sem vinna skal á milli ársfunda. Þar er hinn eiginlegi starfs- vettvangur samtakanna. NIÐURSTÖÐUR Eftirfarandi málum var komið af stað og eru ákveðin lönd ábyrgðar- aðilar, en niðurstöður og/eða upplýs- ingar um framvindu málaeiga að liggja fyrir á næsta ársfundi. 1. Menntamál: í sland er ábyrgðaraðili. Verkefni: Safna saman upplýsingum um stöðu heymarlausra og hvemig menntun þeirra og möguleikum er háttað í sérhverju aðildarríki. Taka saman niðurstöður og koma með tillögur um hvernig bæta megi ástandið. 2. „Skipti“ á börnum (Skiptinema- samtök): Luxemburg og Belgía ábyrgðaraðilar. Verkefni: Afla upplýsinga og setja upp eins konar „kerfi“ þannig að heymarlausum börnum verði gert kleift að dveljast í framandi landi hjá fjölskyldu sem á heymarlaust barn. 3. T ækni og hjálpartæki: ftalía og Bret- land eru ábyrgðaraðilar, Verkefni: Taka saman skýrslu um hvemig tækni og búnaður stendur heyrnarlausum til boða í Evrópu þ.ám. hvemigkostnaðurergreiddur (hið opinbera) og annað tengt því. 4. Menningarmál: Danmörk er ábyrgðaraðili. Verkefni: Auka menningarleg sam- skipti milli landanna. 5. Almannatengsl: Portúgal er ábyrgð- araðili. Verkefni: Sjáumhvemig viðgetum komið okkar málum á framfæri við stjómvöld, fyrirtæki og almenning. Á námsstefnunni voru margir athyglisverðir fyrirlestrar haldnir. Okkur kom mjög á óvart hvað allur aðbúnaðurheymarlausra IPortúgal er slæmur m.v. þann aðbúnað sem heym- arlaus börn á Norðurlöndunum njóta og þar með talin öll heilbrigðisþjón- usta. Þá er mikið atvinnuleysi meðal heymarlausra í Portúgal. I tengslum við ráðstefnuna var farið í margar skoðunarferðir í nærliggjandi hémð og þá í boði viðkomandi héraðs- eðabæjarstjóma. Skoðaðir voru skólar fyrirheymarlausao.fi. stofnanir. Hvar- vetna var vel tekið á móti okkur og ekki á neinn hallað þótt sagt sé að gestrisni Portúgala sé með eindæmum. Athygli vakti að aðstaða í skólum í Portúgal er mun verri en við mátti búast og greinilegt að mikið starf er framundan.Það er þó ljóst að ráðstefna sem þessi hefur vakið athygli ráða- manna þar í landi ámálefnum heymar- lausra þar sem t.d. menntamálaráð- herra, atvinnumálaráðherra o.fl. komu á ráðstefnuna og greindu frá stefnu í menntunar- og atvinnumálum heym- arlausra í Portúgal og svöruðu fyrir- spumum. Þegar við kvöddum og héldum heim, lýsti hinn nýkjörni forseti Mr. J.B. Balle miklum áhuga sínum á að koma til Islands á 25 ára afmælisfund félagsins okkar í haust og kynna sér málefni og aðstöðu heymarlausra á Islandi og segja okkar félagsmönnum frá FEPEDA. Sigurveig Alexandersdóttir.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.