Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 31
Sigurveig Alexandersdóttir
Aðalfundur FOSH —
25 ára afmæli félagsins
Aðalfundur FOSH var haldinn 1.
desember sl. og nokkru áður var
ljóst að þrír fulltrúar frá hinum nýju
foreldrasamtökum Evrópu FEPEDA
höfðu mikinn áhuga á að koma á
fundinn. Þetta voru þeir J.B. Balle
forseti samtakanna frá Frakklandi,
John Butcher varaforseti frá Englandi
og Finn Colov heiðursforseti frá
Danmörku. Þeir félagar fluttu stutt
erindi á fundinum.
Finn Colov skýrði frá stofnun og
tilurð FEPEDA, en hann var frum-
kvöðull að stofnun samtakanna. Sjálf-
ur hefur hann ferðast mikið um
Evrópulöndin og séð mikla þörf fyrir
breytingar í málefnum heymarlausra.
Hann taldi að FEPEDA ætti að beita
sér fyrir að fá flugfargjöld niðurgreidd
fyrir heymarlausa í þeim löndum sem
vegna legu sinnar krefðust aukins
ferðakostnaðar. Heymley singjar væru
það fáir hér á íslandi að þeir yrðu að
hafa möguleika á að heimsækja aðra
heymarlausa í Evrópu. Hann sagði
okkur frá fjölskyldu sinni, barnabam
og tengdasonur hans eru bæði
heymarlaus.
John Butcher er faðir tveggja mjög
heymarskertra bama. Þau hafa náð
miklum árangri í talmáli og varalestri
og geta rætt viðstöðulaust við
samlanda sína. Butcher hefur verið
formaður bresku foreldrasamtakanna
í 3 ár og þar áður sem varaformaður og
þekkir hann því málefni heymarlausra
mjög vel. í Bretlandi eru 20.000
heymarlaus börn með heymartæki.
Þar eru 120 foreldrafélög sem mynda
eitt heildarsamband. Hjá sambandinu
starfa 30 manns í fullu starfi á þrem
aðalskrifstofum. Kostnaður við
reksturinn er um 1 milljón sterlings-
punda á ári.
Mr. Butcher lýsti hlutverki og
mikilvægi foreldrafélaganna, sagði að
þar væri hægt að fá upplýsingar og
stuðning frá öðrum foreldrum og taldi
að ekkert annað gæti komið í staðinn
fyrirforeldrafélögin. Mr. Butchertaldi
að mikilvægt væri fyrir hin smærri
félög að fylgjast með þróun mála hjá
hinum stærri samtökum foreldra í
heiminum.
Mr. Balle forseti samtakanna hvatti
Sigurveig Alexandersdóttir.
okkur til að taka þátt í FEPEDA starf-
inu og sagði að samtökin byggðu fyrst
og fremst á samstarfi og áhuga foreldra
hvar sem þeir búa í Evrópu. Megin-
markmið samtakanna er að vemda
rétt heyrnarlausra barna til menntunar
og styrkja stöðu heyrnleysingja á
jafnréttisgrundvelli, til þeirrar þjón-
ustu sem er veitt. I samtökunum eru
núna u.þ.b. 25 þúsund fjölskyldur og
ef Evrópa sameinaðist enn frekar gætu
þar orðið um 40 þúsund.
r
Aaðalfundinum flutti Kolbrún
Gunnarsdóttir sérkennslufulltrúi
í Menntamálaráðuneytinu yfirgrips-
mikið erindi þar sem hún fjallaði um
stefnu menntamálaráðuneytisins í
menntunarmálum heymarlausra.
Formaður Jóhann Ólafsson sagði
frá langri sögu FOSH og hefðu margir
lagt hönd á plóginn, en þó væru það
fjórir félagar sem hefðu öllum öðrum
fremur starfað mest og lengst að
málefnum félagsins. Félagið vildi
heiðra þessa ágætu félaga og færa
þeim áritaðar bækur sem örlítinn
þakklætisvott fyrir vel unnin störf.
Þessir félagar eru Jóna Sveinsdóttir,
Hallgrímur Sæmundsson, Sigurður
Jóelsson og Vilhjálmur B. Vilhjálms-
son.
JónaSveinsdóttirflutti skýrslu um
starfsemi ÖBÍ og Jóhann Ólafsson
sagði frá ferðinni á fyrsta aðalfund
FEPEDA í sumar.
Ný stjórn félagsins var kosin.
Jóhann Ólafsson formaður baðst
undan endurkosningu. Hina nýju stjóm
skipa: Ingibjörg Maríusdóttir for-
maður, Sigurveig Alexandersdóttir
varaformaður, Jóhannes Ágústsson
ritari og Eybjörg Einarsdóttir með-
stjórnandi.
Varamenn eru: Jóhannes Helga-
son, UnnurMiillerogJónÓskarJóns-
son. Endurskoðandi: ÆgirHallbjöms-
son.
Undir liðnum önnur mál ræddi
Jóhann Ólafsson framhald af samstarfi
við FEPED A og lagði fram eftirfarandi
ályktun til samþykktar:
„FundurFOSH l.des. 1991 ályktar
að halda áfram því starfi innan
FEPEDA sem hafið er. Einnig hvetur
fundurinn stjórnina til að leita leiða til
að efla fjáröflunina".
Tillagan hlaut jákvæðar undirtektir
og var samþykkt samhljóða.
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson var
fundarstjóri á þessum afmælisfundi
félagsins og fórst það vel úr hendi
Þess má geta að á fundinum var túlkað
yfir á þrjú tungumál, þ.e. úr frönsku
yfir á ensku, ensku yfir á íslensku og
úr íslensku yfir á táknmál.
I fundarhléi var borið fram mynd-
arlegt afmæliskaffi.
Félaginu bárust veglegar blóma-
körfurog ámaðaróskir í tilefni afmæl-
isins frá ÖBI, Heymleysingjaskólan-
um, Félagi heyrnarlausra og fleiri
aðilum.
Að aðalfundi loknum var tekið
blaðaviðtal við okkar erlendu gesti,
sem birtist í Morgunblaðinu 5.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALA GSINS
9