Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 33
Sigurður Þór Guðjónsson rithöfundur Mannréttindabrot á öiyrkjum? Tveir af ágætustu baráttumönnum fyrir rétti öryrkja hafa látið til sín takaundanfarið. Jóhann Pétur Sveins- sonformaðurSjálfsbjargarhefurmót- mælt auknum lyfjakostnaði þeirra. Og Amþór Helgason formaður Öryrkja- bandalags Islands telur þá ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur, að sambýli geðsjúkra við Þverársel verði að fá leyfi bygginganefndar borgar- innar fyrir starfsemi sinni, vera skerð- ingu á mannréttindum fatlaðra. Ég vil vekja athygli á mannrétt- indabroti, sem sérstaklega bitnar á öryrkjum, en virðist því miður hafa skotist framhjá þessum valinkunnu mönnum, sem og öllum almenningi. Vorið 1989 samþykkti Alþingi einróma viðbótarákvæði við læknalög frá I988,ogafnamþarmeð vissanrétt sjúklinga til aðgangs að sjúkraskrám. Var sú lagasetning andstæð túlkun umboðsmanns Alþingis. Landlæknir hefur oft lýst því yfir opinberlega að þetta sé mannrétt- indabrot á sjúklingum. Og á ráðstefnu sem Rauði krossinn efndi til í Reykja- vík 4. maí síðastliðinn um mannrétt- indi, sagði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, að „ekki verði séð að þingmenn hafi gert sér neina grein fyrir því, að með breytingunni var lögfest ákvæði, sem brýtur gegn Mannréttindasáttmála Evrópu eins og hann hefur verið túlkaður af mann- réttindadómstól Evrópu“. En ekki vakti þetta neinar umræður né önnur viðbrögð í þjóðfélaginu. Engar ályktanir gerðar af þeim er helst láta málefni öryrkja og annarra sjúkl- inga til sín taka. Hvers vegna lætur sig enginn neinu varða, þó fram komi á ráðstefnu virtustu alþjóðasamtaka heims um líknarmál og mannréttindi, að Alþingi hafi sett lög, er stangist ekki aðeins á við anda mannréttindasáttmála Evrópu, heldur eins og hann hefur verið beinlínis túlkaður af mannrétt- indadómstólnum? Hér vélaekki um málin „nöldrarar“ eða menn með „þráhyggju". Þetta snertir auðvitað enga meira Sigurður Þór Guðjónsson. en öryrkja því mannréttindi eru þar með brotin á þeim flestum hér á landi. Hvemig í ósköpunum stendur á því að Öryrkjabandalagið, Sjálfsbjörg Tíðindi frá Gleðilegur atburður gerðist hjá Geðhjálp í október að félagið fékk til afnota nýtt húsnæði undir starfsemi sína. Húsnæði þettaerhús að Öldugötu 15, Reykjavík. Breytir þetta allmiklu í starfsemi félagsins, því húsnæðið í Veltusundi var orðið alltof lítið og að auki afar óhentugt. Tímaritið Geðhjálp fær nú loksins samastað, ennfremur innanhússblaðið Umbrot. Klúbbastarfsemi, námskeiðahald, sjálfshjálparhópar, Félagsmiðstöð, allir þessir þættir í starfseminni fá nú betri aðstöðu og möguleika til að þróast og dafna. Félagsmiðstöð Geðhjálpar hefur aðstöðu á miðhæð hússins þar sem eru rúmgóðar stofur, eldhús og skrifstofa. Myndlistarherbergi hefur verið komið upp í kjallaranum og bað- aðstaða er þar einnig, ófullkomin að vísu, en vonandi batnar hún með tím- anum. A efri hæð hússins er herbergi sem félagsmenn geta fengið lánað til að vinna við skriftir eða bara til að lesa og öl 1 önnur samtök og félög sj úklinga á Islandi, láta eins og þau viti ekki af þessu? Sömuleiðis læknar sem eru þó sífellt að verja rétt sjúklinga í blöð- unum. Þó mótmælti stjóm Öryrkja- bandalagsins harðlega mannréttinda- skerðingu á sjúklingum varðandi sambýlið í Þverárseli og taldi einmitt að það stangaðist á við alþjóðlega mannréttindasáttmála sem Islendingar hafa undirritað. Og fleiri samtök sjúklinga eru að sigla í kjölfarið. Fór Mannréttindaráðstefna Rauða krossins framhjá öllum? Eða eru sum mannréttindi óæðri öðrum? Þetta eru áríðandi spurningar sem knýja á um svör. í nóvember 1991. Sigurður Þór Guðjónsson. Geðhjálp Sigrún Bára. góða bók og hvíla sig. Vonandi verður þetta nýj a húsnæði félaginu sú lyftistöng sem vonir hafa staðið til svo Geðhjálp geti í framtíð- inni staðið undirnafni sem hagsmuna- félag fólks með geðræn vandamál, aðstandenda þeirra svo og áhugafólks um geðheilbrigðismál. Því ef miðað er við aðsókn og fyrirspurnir til félagsins er afar mikil þörf fyrir félagið og starfsemi sem þessa. Sigrún Bára. FRÉTTABRÉF ÖR YRKJABANDALA GSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.