Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 34

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 34
Sveinn Indriðason: Úr lögum um fatlaða Bandaríkjamenn Arið 1990 samþykkti Bandaríkja- þing lög um fatlaða Bandaríkja- menn. Hér á eftir verður greint frá nokkrum meginákvæðum þessara laga. Þau eiga að tryggja jafnrétti fatlaðra svo sem önnur slík, sem taka til jafnréttis kynja, kynþátta, þjóðarbrota og trúfélaga. Lögunum er ætlað að tryggja jafnrétti fatlaðra til vinnu, aðgengi að opinberum stöðum, samgöngutækj- um, opinberri þjónustu og síma. I. ATVINNA * Vinnuveitendur með fleiri en 15 starfsmenn, mega ekki mismuna hæfum umsækjendum um vinnu eða starfsmönnum vegna fötlunar. * Vinnuveitendum er skylt að laga vinnustað að þörfum fatlaðs umsækjanda eða starfsmanns, ef ekki hlýst af óhóflegur kostnaður. * Vinnuveitendum erheimilt að hafna umsækjendum eða segja upp starfsmönnum, sem teljastbeinlínis hættulegirheilsu eða öryggi annarra starfsmanna. Þetta ákvæði nær einnig tilþeirra, sem neytafíkniefna. * Vinnuveitendum eróheimilt að beita umsækjanda eða starfsmann misrétti, vegna tengsla hans við fatlaða. * Kærur vegna brota á þessum ákvæðum má leggja fram við nefnd um jafnrétti til starfa. Réttarúrræði geta verið launagreiðslur um tilsettan tíma eða úrskurður um stöðvun á misrétti á vinnustað. II. ALMENNIR ÞJÓNUSTUSTAÐIR * Staðir sem almenningur sækir, svo sem veitingastaðir, hótel, leikhús, læknastofur, apótek, verslanir, söfn, bókasöfn, almenningsgarðar, skólar, barnaheimili mega ekki mismuna fólki vegna fötlunar. Lokuð félög og trúfélög eru þó undanþegin. * Sanngjarnar breytingar á við- komandi stöðum skal gera, til að forðast mismunun. * Sérstakar ráðstafanir skulu gerðar s vo hey mar- og sj ónskertir geti notið þess sem fram fer á jafn- Sveinn Indriðason. réttisgrundvelli. * Hindranir á aðgengi skal fjarlægja, ef mögulegt er, án mikils kostnaðar. Að öðrum kosti bjóða upp á aðrar lausnir, ef þær eru auðveldari í framkvæmd. * Allar nýbyggingar í almannaþágu og einnig verslunarhúsnæði, svo sem skrifstofur, skulu auðveldar aðgengis. Lyftur skulu vera í öllum húsum, þriggja hæða eða hærri. Lyftur skulu þó einnig vera í tveggja hæða húsum, ef þar eru verslanir, opinberar skrifstofur eða heilsu- gæslustarfsemi. * Þegar breytingar eru gerðar á inn- gangi, þarf að vera greið leið áfram að stöðum eins og snyrtingu og síma. Ekki skal þó skylt að leggja í óhóflegankostnað. Sömukröfurum lyftu eru gerðar í breyttu húsnæði. * Staðir, svo sem hótel, sem bjóða gestum ókeypis akstur, skulu láta fötluðum í té sambærilega þjónustu. Nýir áætlunarvagnar, sem taka 16 farþega eða fleiri, skulu hafa aðgengi fyrir fatlaða. * Staðir opnir almenningi skulu láta eitt yfir alla ganga og er þeim óheimilt að mismuna mönnum vegna tengsla þeirra við fatlaða. * Hægt er að fara í einkamál fyrir rétti til að hnekkja misrétti, en ekki er hægt að dæma mönnum fébætur. * Einnig er mögulegt að koma á framfæri kvörtunum við dóms- málaráðherra, sem síðan getur ákveðið málshöfðun gegn þeim brotlegu og krafist fébóta eða sekta. Mörg fleiri ákvæði eru í þessum lögum, svo sem aðgengi fatlaðra að áætlunarbílum og lestum, ásamt breytingum á snyrtingum. Akvæði hefi ég séð, líklega í reglugerð, um að skylt sé að hafa tiltekinn fjölda herbergja í hótelum með fullu aðgengi og innréttingum fyrir fatlaða. Fjöldi þessara herbergja á hverju hóteli er ákveðið hlutfall af stærð þess. Sum hótel hafa reyndar komið auga á góð viðskipti fatlaðra og hafa gengið á undan með góðu fordæmi og boðið fatlaða sérstaklega velkomna. Áhugi undirritaðs á þessum lögum vaknaði við lestur greinar í New York Times. I þessari grein var vikið að kostn- aðinum við breytingar, sem sumum yxi í augum. Endursagt Sveinn Indriðason. Hinum mœta forystumanni Gigtatfélagsins Sveini Indriðasyni eru fœrðar mjög góðar þakkir fyrir þessa þýðingu og endursögn. Er hér um að rœða hið œskilegasta framhald af grein Hauks Þórðarsonar yfirlæknis um þetta efni. Til fróðleiks: Beinar tilvitnanir í lagatexta Bandaríkjanna: * Fatlaður telst sá, sem er andlega eða líkamlega takmarkaður til einnar eða fleiri mikilvægra athafna daglegs lífs. * Afbrigðilegir, sem ekki teljast fatlaðir: Kynvillingar, tvíkynhneigðir, klæðskiptingar, kynskiptingar, striplingar, gluggagægjar og aðrir, sem hafa afbrigðilega kynhneigð. Ekki teljast þeir heldur fatlaðir, sem eru haldnir spilafíkn, stelsýki eða þeir sem eru brennuvargar og heldur ekki þeir sem eru neytendur fíkniefna. S.I.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.