Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Side 35
Þjóðmálakönnun Þroskahjálpar
Anýju ári vona menn eins og
alltaf endranær að allt færist til
betri vegar. í ársbyrjun fengum við
sem erum að amla í ýmsum
málefnum fatlaðra hin ágætustu
tíðindi frá landssamtökunum
Þroskahjálp.
Þá kynntu forsvarsmenn sam-
takanna könnun Félagsvís-
indastofnunar
Háskólans sem
framfórínóv. sl.
um afstöðu al-
mennings til
sambýla
íbúðahverfum.
Fréttabréfinu
þykir sannarlega
hlýða að greina
frá þessari
könnun og geta
um leið helztu
niðurstaðna, þó
fjölmiðlar hafi
gert þessu máli
glögg og verðug
skil. En fjöl-
miðlar eru líka
með fréttir af
öðru og ógeð-
felldaraíþessum
málum og því
meiri þörf kynningar, þegar tíðindin
eru bæði ánægjuleg og hafa svo góða
staðfestu á bak við sig.
1500 manns voru í þessu úrtaki
könnunarinnar og 1055 svöruðu, en
í 302 náðist ekki, voru fluttir eða
fundust ekki.
Spumingin, sem miðað var við
var um það, hvort fólk væri jákvætt
eða neikvætt gagnvart því að stofnað
yrði sambýli fyrir fatlaða í þess
íbúðahverfi eða næsta nágrenni.
Hinum fötluðu var svo skipt í
fjóra flokka og spurt eftir þeirri
flokkaskipan, þannig að niðurstaða
lægi ljós fyrir varðandi hvem hóp.
Skipt var í hópa og spurt um viðhorf
til: geðfatlaðra, einhverfra,
líkamlega fatlaðra og þroskaheftra.
Svör voru svo nákvæmlega
greind eftir kyni, aldri, stétt,
menntun, búsetu og stuðningi við
flokka.
Hér er aðeins ætlunin að greina
frá niðurstöðum meginatriða einna
og allra sízt vill ritstjóri fara út í
neina flokkadrætti, því þar þætti
mörgum hann vera á hálum ís.
En nú að niðurstöðum:
Fyrst viðhorfið til geðfatlaðra:
Jákvæðir: 73,5%
Hlutlausir: 14,1%
Neikvæðir: 12,4%
Þá er að einhverfum komið:
Jákvæðir: 77,6%
Hlutlausir: 13,7%
Neikvæðir: 8,7%
Síðan koma viðhorfin til líkamlegra
fatlaðra:
Jákvæðir: 88,5%
Hlutlausir: 9,9%
Neikvæðir: 1,6%
Og loks eru svo viðhorfin til
þroskaheftra:
Jákvæðir: 84,4%
Hlutlausir: 11,4%
Neikvæðir: 4,2%
Þannig líta þær tölur út og mætti
vissulega margt um þær segja. Þær
eru fyrst og síðast fagnaðarefni
vegna þeirra viðhorfa er þær
endurspegla svo
ljóslega.
Þær koma
ugglaust þeim á
óvart, sem hafa
hæstlátiðogmest
blásið gegn sam-
býlum fatlaðra og
gjamantalaðeins
og um væri að
ræða rödd meiri-
hlutans — hins
kúgaða meiri-
hluta m.a.s.
Okkur sem
við þessi mál
fáumst fyrst og
síðast kemur
þessi niðurstaða
út affyrirsigekki
áóvartmiðað við
þá vinsemd og
þann skilning
sem fólk almennt hefur sýnt þessu
búsetuformi fatlaðra.
Því er þó ekki að leyna að oft
hefur uggur sótt að í ljósi þess hávaða
sem alltof oft hefur borið á í seinni
tíð—hávaða hrokans og kuldans —
og sjálfselskunnar fyrst og síðast.
Þessar niðurstöður sýna og sanna
að á sömu braut skal áfram ótrautt
halda og um leið auka fræðslu og
upplýsingagjöf sem allra mest svo
vanþekking og skilningsskortur
megi víkja sem fyrst.
Þroskahjálp eru færðar þakkir
fyrir þarfa könnun.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖR YRKJABANDALAGSINS