Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 37
b) Ráðherrar fagna endurskoðun
Félagsáttmála Evrópuráðsins og
undirstrika nauðsyn þess að þau
réttindi sem fólgin eru í honum nái
eins og unnt er til aðgerða í þágu
fatlaðra.
9. Ráðherrarnir leggja til við
Evrópuráðið að gerð verði fram-
kvæmdaáætlun um sjálfstætt líf og
jöfn tækifæri fatlaðra.
Þau verkefni sem fyrirhugað er að
vinna að innan framkvæmdaáætlunar-
innar skulu unnin í samráði við hlut-
aðeigandi samtök fatlaðra.
Gerð verði áætlun um röð verkefna
um sjálfstætt líf fatlaðra.
Verkefnin skulu lúta stjórn fatlaðra
og skal meginmarkmið þeirra vera
gagnkvæm aðstoð í því skyni að gera
fötluðum kleift að taka sem mestan
þátt í samfélaginu eftir því sem þeir
óska og hafa getu til.
Verkefnin geta náð til eins eða
fleiri eftirtalinna sviða, en upptalningin
er ekki tæmandi:
Aðgengi að menntun, starfsþjálf-
un, vinnu, menningu, íþróttaiðkun,
tómstundastörfum, flutningatækjum,
húsum og borgarumhverfi.
Stuðningur með því að veita við-
eigandi aðhlynningu, húsnæði, fjár-
hagsaðstoð og tæknilega hjálp.
Upplýsingar um þá þjónustu og
aðstöðu sem snertir ofangreind atriði.
Unnt skal vera að skiptast á upp-
lýsingum og reynslu hvað snertir þau
verkefni sem vinna á innan fram-
kvæmdaáætlunarinnar með dreifingu
efnis til fjölmiðla og gagnkvæmum
heimsóknum og kynna þannig fjöl-
breytta lífshætti fatlaðs fólks á starfs-
svæði Evrópuráðsins.
10. Ráðherrarnir óska þess að
Ráðherranefndin feli endurhæfingar-
nefnd Evrópuráðsins verkefni fyrir
áætlunina og sjái um framkvæmd
þeirra. Þetta fari fram í samráði við
fulltrúa ríkisstjóma, hagsmunasamtök
og framkvæmdastjóm Evrópubanda-
lagsins.
11. Ráðherrar lýsa yfir ánægju með
ráðstefnuna og æskja þess að ráð-
herrafundur fari fram innan tíðar um
tiltekið efni.
Svo mörg voru þau ágætu orð.
Þessa lokayfirlýsingu ráðherrafundar-
ins er hollt að hafa í huga, þegar litið
er almennt til málefna fatlaðra—ekki
sízt hér á landi.
Ráðstefnuna sóttu af íslands hálfu
félagsmálaráðherra Jóhanna Sig-
urðardóttir og Berglind Asgeirsdóttir
ráðuneytisstjóri og formaður Stjórn-
amefndar um málefni fatlaðra.
Fréttabréfiðbirtirþessayfirlýsingu
með ánægju og þykir margt í henni
hin fróðlegasta lesning sem sannar
glöggt að góður vilji til gagnlegra
hluta og sanngjarnra um leið er fyrir
hendi hjá ráðherrum þeim innan
Evrópuráðsins, sem um málefni þessi
fjalla.
Böðvar Guðlaugsson skáld:
ÆTTFRÆÐI
Lárus hreppstjóri á Haugi
var hálf-afabróðir minn,
og launbróðir hans, einhver Laugi,
var langömmuhálfbróðir þinn.
Og launsonur Laugja þessa
lét sig hafa það
að barna hálfsystur Bessa
burs séra Þorláks á Stað.
Og launsystir séra Láka
— lengi er á einu von,
átti með frænda hans, Áka,
utanhjónabands-son.
Felubarn hans var svo Hanna
hálf-ömmusystir mín,
og einkabarn hennar var Anna
afa-hálfsystir þín.
Þetta eru flókin fræði
og fátt hef ég á þeim grætt,
nema fjarskylda frændur í bæði
föður- og móðurætt.
B.G.
Þetta frábæra ættfræðikvæði sendi Böðvar mér í
þorrabyrjun. Lét fylgja með hversu lélegur ættfræðingur
hann væri, hversu sem hann reyndi að rýna í þau fræði.
Þetta varð afrakstur iðju. Beztu þakkir Böðvar.
Og þessi bráðsmellna vísa fylgdi með ættfræðinni:
„Stríð er hér og stríð er þar,
staffírugar segja
Sankti Jósefs systurnar
Sighvati að þegja“.
B.G.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS