Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 39

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 39
SAMSTOÐUHATIÐ Ö.B.Í. Á AÐVENTU 13. des. sl. gekkst Öryrkja- bandalag íslands fyrir samstöðuhátíð við Langholtskirkju. Þessi hátíð var liður í kynningarátaki því sem Öryrkjabandalagið ákvað á liðnu hausti að gangast fyrir, athöfn sem átti að vekja jákvæða athygli á málefnum fatlaðra og vera um leið til umhugsunar á erfiðri tíð um margt. Þessi hátíð var haldin í góðri samvinnu við auglýsingastofuna Hvíta húsið, sem einnig hefur tekið að sér auglýsingagerð fyrir Öryrkjabandalagið, en fyrsta aug- lýsingin birtist í Morgunblaðinu síðast í nóvember og síðar í Þjóð- viljanum.Súheilsíðuauglýsingvakti ærna athygli og ýtti við mörgum — flestum til hvatningar — sumum til hneykslunar. Ákveðið var að færa íbúum í nágrenni Langholtskirkju jólatré að gjöf sem góðum fulltrúum hinna fjölmörgu íslendinga sem tekið hafa á mót fötluðum sem góðum grönnum, gildum jafningjum. Þetta var einmitt gert með tilliti til þess að í grennd kirkjunnar var fyrsta sambýli fatlaðra hér í borg og ævinlega hefur þar ríkt hið ágætasta andrúmsloft sem og raunar nær alls staðar þar sem slíkum heimilum fatlaðra hefur verið komið á fót. f tengslum við hátíð þessa fór fram verulega gott og mikið kynn- ingarátak og ber að þakka þeim fjöl- mörgu er þar komu við sögu vel og myndarlega. Er þá átt við fjölmiðla alveg sérstaklega. Hátíðin hófst á því að Lúðrasveit verkalýðsins Iék nokkur jólalög létt og leikandi. Þá flutti formaður vor, Amþór Helgason, ávarp gott, sem birt er hér í Fréttabréfinu. Að loknu ávarpi Arnþórs tendraði Páll Helgi Arnarson Sæbraut 2 ljósin ájólatrénu og var því fagnað vel. Sókn- arpresturinn séra Flóki Kristinsson flutti þessu næst afar athyglisverða hugvekju, fagnaði þessu framtaki og bað öllum viðstöddum Guðs bless- unar og gleðilegra jóla. Þá söng Bjartmar Guðlaugsson tvö lög og fékk alla viðstadda til að syngja með sér hvatningu um frið á jörðu. Að lokum sungu allir Heims um ból, sem hljómaði um nágrennið í nepju vetrardagsins, sem var að kvöldi kominn. Hélt svo hver til síns heima. Undirrituðum sem atriðin kynnti þótti mæta vel hafa til tekizt, þó óneitanlega hefði hann viljað sjá miklu fleiri sækja þessa hátíð heim, sem var látlaus og sönn í allri gerð sinni og hafði utan efa sín áhrif. Helgi Seljan. Heilabilun — fræðslurit Ö.í. og F.A.A.S. Út er komið fræðslurit Öldrunar- ráðs íslands hið annað í röðinni og að útgáfu þess stendur einnig Félag aðstandendaalzheimersjúklinga. Hér eru samankomin í aðgengilegt rit erindi, sem flutt voru á námsstefnu um heilabilun, sem haldin var fyrir ári síðan. Frá þeirri námsstefnu hefur áður verið sagt hér í Fréttabréfinu. í formála fræðsluritsins segir orðrétt: Þegar andleg eða vitsmunaleg geta einstaklinga tekur að skerðast og síðar glatast nefnist það á fagmál i heilabi 1 un eða vitglöp. Um er að ræða flokk sjúkdóma, sem hrjáir einkum eldra fólk og er Alzheimer-sjúkdómur þeirra algengastur. Heilabilun er einn alvarlegasti heilsufarsvandinn í nútíma samfélagi Vesturlanda og er orsök stofnanavistunar aldraðra í fjöl- mörgum tilfella. Auk þess sem heil- brigðis- og félagsmálakerfið leggur mikið af mörkum til að mæta þessum vanda er ómælt það starf og það álag, sem hvílir á herðum aðstandenda og vandamanna heilabilunarsjúklinga. Þótt ekki sé hægt að lækna heilabilun eru til úrræði, sem bætt geta ástandið fyrir sjúklinginn sjálfan og aðstand- endur hans. Ú tgáfa þessa rits er greinilega ágætt skref í þá átt að auka fræðslu og þekk- ingu um úrræði og möguleika gagnvart þessum alvarlega sjúkdómi. Efni ritsins skiptist í 8 fyrirlestra er fluttir voru á námsstefnunni, en þeir eru: 1) Faraldsfræði-einkenni: Hallgrímur Magnússon læknir, 2) Læknisrannsóknir: Halldór Kolbeinsson læknir, 3) Taugasálfræðilegar breytingar og rannsóknir: Þuríður Jónsdóttir sálfræðingur, 4) Lyfjameðferð: Jón Snædal læknir, 5) Iðjuþjálfun við heilabilun: Elsa Ingimarsdóttir, iðjuþjálfi, 6) Heilabilun,vandinnaðlifaviðreisn: Þóra Arnfinnsdóttir hjúkrunar- fræðingur, 7) Félag aðstandenda alzheimer- sjúklinga: Helga Einarsdóttir, form. F.A.A.S. 8) Sambýli: Sigurveig Sigurðardóttir, félagsráðgjafi. Það er vissulega af hinu góða að rit þetta með þessum fróðlegu fyrir- lestrum ernú aðgengilegt almenningi, en báðir útgefendurnir munu eiga ritið til, svo unnt er fyrir þá fróðleiksfúsu að fá að vita enn meira, ef þeir vilja. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.