Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Side 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Side 40
FJÁRLÖG 1992 Á ári hverju er sjálfsagt fyrir öryrkjasamtökin í landinu að líta grannt yfir tölur fjárlaga, því öllu gleggri talnalega mynd er tæpast unnt að fá, hvað varðar vöxt og viðgang verkefna þeirra, er undir málaflokkinn falla. Fjárlögin gefanefnilegagóðainnsýn í þá þróun sem í hverju einu er og það er í fullri alvöru skemmtilegt að skyggnast í þessar tölur árlega og bera t.d. saman þróun áfimm árum eða tíu árum o.s.frv. Ég sagði skemmtilegt, því hversu mjög sem mönnum finnst grátlega seint ganga blasir sú ótvíræða staðreynd við að t.d. á tíu ára tímabili geta aðrir málaflokkar ekki sýnt aðra eins breyt- ingu til batnaðar í fjárlagatölum. Svo þykist ég þekkja þar til að mér sé alveg óhætt að láta fullyrðingar sem slíkar flakka. Auðvitað með þeirri megin- skýringu samt, hve alltof nærri núllgrunni við vorum fyrir t.d. hálfum öðrum áratug eða tveim þó ýmislegt væri þá í fjárlögum að finna einnig. En það voru í raun 5 stofnanir aðeins, sem þá voru á fjárlögum, ef litið er tvo tugi áratilbaka. Þ.e. Kópavogshæli, Sólborg, Skálatún, Tjaldanes og Sólheimar. Þætti mörgum undarlegt að leita í fjárlögum 1972 að málaflokknum: Málefni fatlaðra og erindi tæpast eftir erfiði. En allar hugleiðingar um þennan samanburð eiga einmitt heima við svona athugun, sem skylt er að hafa árlega. Hér á eftir verður gerður saman- burður milli áranna tveggja 1991 og 1992 og ekki farið nánar út í neinar skýringar einstakra hækkana, sem þó væri fyllilega athugunarvert. Hér verða tölur einar látna tala og aðeins á því stærsta stiklað. Fyrst eru tíundaðar helztu tölur frá ráðuneyti menntamála, þá heilbrigðis- og tryggingamála og meginefnið kemur svo að sjálfsögðu frá félagsmálaráðuneytinu og þar er að hluta til skipt eftir svæðum. Það skal að sjálfsögðu fram tekið að ekki eru þama inni neinar tölur varðandi tryggingabætur, sem þó máske eru megintölur að upphæðum til sem til fatlaðra fara og ráða í raun lífsafkomu ótalins fjölda þeirra. Það er hins vegar rétt og skylt að hafa þær upphæðir í huga einnig, þær háu tölur sem sköpum skiptafyrir svo marga. Það væri virkilega gaman að gera á því úttekt góða, hversu margir njóta lífeyris og annarra tengdra bóta, hversu margir örorkustyrks og hversu háar upphæðir fara í hvaðeina. Það yrði býsna löng en merkileg upptalning, ef vandlega væri ofan í saumana farið. Það myndi gera hvoru tveggja: glöggva heildarmyndina og sýna um leið, hversu fjölþætt tryggingalöggjöf okkar er, hversu víðfeðm en um leið viðkvæm, einkum þegar aðhalds- og sparnaðaraðgerðir eru boðaðar og beinlínis sagt að einhvers staðar þurfi að skera niður í samfélagslegum útgjöldum. En nóg um það. Og kemur þá talnarunan og svo verður hver lesandi að dæma um úrslit og árangur. Taka ber fram að Kópavogshælið er ekki þama inni en það er undir fjár- lagalið ríkisspítalanna og ekki aðgreint sérstaklega. Þar mun hins vegar vera að finna upphæð sem er í kringum 300 millj. Auðvitað er þessi upptalning ekki fyllilega tæmandi, en hún er a.m.k. marktæk vel og ætti að gefa glögga heildarmy nd af stöðu mála á því herrans áril992. Til frekari glöggvunar set ég svo hér samtöluna í millj. talda fyrir hvort ár, þó ekki væri til annars en að skýra myndina enn betur fyrir sér: Þá er talan 1991 2329 millj. en í ár er heildartalan 2544 millj. og því er hækkunin vel yfir verðlagsforsendum fjárlaga og það er vel. 1991 1992 þús. kr þús kr. Skólar fyrir fatlaða 228.780 192.800 Öskjuhlíðarskóli 102.000 102.400 Safamýrarskóli 54.010 56.700 Dalbrautarskóli 19.850 14.200 Fullorðinsfræðsla fatlaðra (Nýr liður) 59.700 Einholtsskóli 13.040 12.700 Heyrnleysingjaskólinn 61.280 50.300 Blindrabókasafnið 27.030 28.200 Samskiptamiðst heymarl 3.500 6.400 Menntamálaráðuneyti samtals . 509.490 524.400 Heymar- og talmeinastöð 71.420 69.500 Sjónstöðin 23.190 24.200 Málefni fatlaðra 49.980 45.400 Heilbrigðisráðun. samtals 144.590 139.100 Málefni fatlaðra alm.: 18^.240 243.100 — — Reykjavík 154.810 184.500 — — Reykjanes 122.200 134.700 — — Vesturland 41.830 47.800 — — Vestfirðir 39.210 40.100 — — Norðurl vestra .... 38.870 42.800 — — Norðurl. eystra ... 209.380 206.200 — — Austurland 53.510 57.300 — — Suðurland 89.545 97.900 Meðferðarh. samb. einhverfra 41.590 46.200 Styrktarfélag vangefinna 174.245 178.500 Tjaldanesheimilið 33.990 34.700 Skálatúnsheimilið 100.410 101.700 Sólheimar 74.540 83.400 Greiningar- og ráðgjafarstöð 59.010 62.000 Framkvæmdasjóður fatlaðra 260.000 320.000 Félagsmálaráðun. samtals 1.675.380 1.880.900 Samtals ráðuneytin þrjú: 2.329.460 2.544.400

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.