Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 41
Sigurgeir Þorgrímsson
Hugleiðingar sjúklings í
hremmingum niðurskurðar
Brot úr gamanþætti—
og alvöru
Fátæka ekkjan ætlar að gefa
Borgarspítalanum síðasta eyrinn sinn
svo hægt sé að reka Grensásdeildina
áfram. Ríki maðurinn sagðist ekki
eiga eyri aflögu þar sem hann sagðist
hafa notað eyrinn sinn til að kaupa tap
á fyrirtækjum, en spurði hvort tapið á
Borgarspítalanum væri til sölu.
Ríki maðurinn sagðist hafa áhuga
á því að gera Borgarspítalann og
Grensásdeildina að fimm stjörnu
hótelum og hótelþörfin íReykjavíker
orðin svo brýn að ríkisstjórnin telur
arðvænlegast að senda sjúklinga á
Landsspítala heim svo hægt sé að
breyta honum líka í fimm stjörnu hótel
a.m.k. á meðan ferðamannatíminn
stendur. Sjúklingum á Borgarspítala
og Landsspítala, sem hafa verið að
kveinka sér undan því að fara heim
sakir slæmra heimilisaðstæðna og að
þeir hafi að engu að hverfa heima hjá
sér og geti ekki bjargað sér er bent á
gámaþjónustu Eimskipafélagsins. Þar
séu alltaf einhverjir lausir gámar, sem
hægt sé að sofa í yfir nóttina. Þeim
hefur verið bent á að gæta sín á því að
yfirgefa þá nógu tímanlega á morgn-
ana, svo þeir fari ekki með neyðarað-
stoð kirkjunnar til þróunarlanda eða
þá til Póllands með fatasendingum.
Sömuleiðis hefur þeim verið ráðlagt
að fara ekki upp í fiskgáma, svo að
þeir verði ekki boðnir upp með öðrum
þorskum á fiskmörkuðum í Bretlandi
eða Þýzkalandi.
Ákveðið hefur verið að tillögu
heilbrigðisráðherra að vistmenn komi
með svefnpoka með sér við innritun.
Vistmönnum er einnig ráðlagt að hafa
með sér svo ríflegan nestispakka, að
þeir geti deilt honum með starfsmönn-
um. Vistmenn eiga að koma með öll
föt, sem þeir þurfa að nota yzt sem
innst — og skulu þeir þvo þau í vask-
inum hjá sér en sængurföt í bala á
baðherbergjum deildanna.
Til þess að spara þvott eiga vist-
Sigurgeir Þorgrímsson.
menn að snúa nærfötum og náttfötum
við daglega. Sömuleiðis sængurfötum
eftir þörfum.
Ákveðið hefur verið að setja skrefa-
gjald á þá vistmenn, sem hafa fótavist,
rúllugjald á þá sem eru í hjólastólum,
legugjald á þá sem eru rúmliggjandi
og veltugjald á þá sem eru að veltast í
kerfinu. Settur verður þungaskattur á
hjólastóla og göngugrindur, slitgjöld
ástafi og önnurhjálpartæki. Vistmenn
eiga að borga fyrir hverja hitaeiningu
sem þeir borða umfram nestið sitt.
Vistmenn verða vigtaðir þegar þeir
innritast og þegar þeir útskrifast og
hafi þeir þyngst verða þeir að borga
fyrir hvert kíló sem þeir hafa þyngst,
en fá afslátt, ef þeir hafa lést.
Lokaverkefni vistfólks er að selja
íbúum Þverársels og Sæbrautar miða
r happdrættum félaga fatlaðra og
dvelja síðan á sambýlunum tveim og
ef þeir sleppa við að vera kallaðir
fyllibyttur, gluggagægjar, morðingjar
og nauðgarar og hafa ekki áður látið
skrá sig á geðdeild teljast þeir
útskrifaðir og tilbúnir að takast á við
lífsbaráttuna og þá erfiðleika sem lífið
býður upp á daglega.
Brot úr alvöruskemmtiþœtti, sem
Sigurgeir Þorgrímsson flutti við fögnuð
mikinn upp á Grensásdeild Borgar-
spítalans, þar sem hann var vistaður um
hríð.
Hvíslað
að vindinum
Segðu mér sunnanvindur
að sólin komi aftur.
Segðu að brátt muni birta
og brotni vetrarkraftur.
Segðu það sunnanvindur.
Segðu mér sunnanvindur
að sjórinn fari að blána,
bátur vaggi á bárum
og börn sér leiki við ána.
Segðu það sunnanvindur.
Segðu mér sunnanvindur
að senn muni birta að nýju.
Vektu mér vonir í brjósti
um vorið sem færir hlýju.
Segðu það sunnanvindur.
Ásgerður Ingimarsdóttir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS