Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 42

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 42
í BRENNIDEPLI Fjárlög 1992 komust heil í höfn fyrir áramót eins og lög gera ráð fyrir, en eftir óvenjumiklar sviptingar þó. Varðandi þá fjárlagaliði er snerta málefni fatlaðra má segja að málalyktir hafi mjög unandi orðið, þó um tíma hafi alvarlega syrt að og óvissa ríkt um afdrif hinna þýðingarmestu þátta. Hugmyndir þær er öllum að óvörum skutu upp kollinum um tilfærslu fjöl- margra verkefna yfir til sveitarfélaganna án þess að um minnstu fjármagns- tilfærslu væri að ræða, nema síður væri, sýndu okkur og sönnuðu að aldrei er nógsamlega á verði verið. Ur ótrúlegustu áttum geta ógrund- aðar hugmyndir komið sem kollvarpa í einu vetfangi ára- langri framþróun og uppbyggingu af því að þær eru í engum takt við raunveru- leikann og fá hreinlega ekki í framkvæmd staðist. En við sem að þessum málum vinnum mættum gjarnan staldra við og hugsa okkar gang. Alltof oft hefur söngurinn um þjónustuna nær fólkinu — heim í sveitarfélögin hljómað án þess að því fylgdi, hvemig fara skyldi þá leið. S viptingamar fyrir jólin sýndu okkur og sönnuðu að svona einfaldar fullyrðingarfallaum sjálfar sig, þegar til kastanna kemur. Eins og málum er í dag háttað í stjómkerfi okkar er það morgunljóst, að flest hinna fjölmörgu sveitarfélaga eru vanbúin til þess að taka á sig aukin verkefni í þágu fatlaðra, hvað þá málaflokkinn í heild sinni. Svarið var skýrt fyrir jólin um tilfærsluna þá — aðeins Reykjavík ein hefði bolmagn til þess og möguleika að taka við öllum þeim pakka sem þá var í boði og þó voru efasemdir uppi um að jafnvel þar yrði unnt að sinna þessu svo vel, sem þó er gert í dag. í öðru lagi kom alveg prýðilega glöggt í ljós við samningu laganna nýju um málefni fatlaðra að sveitar- félögin harðneituðu á þessu stigi að taka við nokkru af þeim verkefnum sem rætt var um. Til þess þyrfti bæði aukið fé og aðra skipan okkar sveitarstjómarmála og þetta er auðvitað mergurinn máls- ins. Það er fallegt að tala urn þjónustu nær vettvangi en það eru marklítil orð, ef undirstaðan er ekki tryggð, svo allt megi eftir orðanna hljóðan ganga. * Málefni heymarlausra koma æði oft til okkar kasta hér og vissu- lega er reynt að liðsinna heymarlaus- um í örðugri baráttu sinni oft á tíðum. Það er staðreynd að einangrun heyrnarlausra er afar mikil og öll mannleg samskipti út á við ótrúlega erfið. I veigamiklum atriðum hefur óskum heyrnarlausra um sjálfsagt jafnrétti verið mætt, en alltof margt er eftir. Samskiptamiðstöðin var veiga- mikill áfangi, sem meta ber. Sama er að segja urn textasímaþjónustuna, sem vannst á liðnu ári. Nýlega var settur á fót starfshópur af hálfu menntamálaráðuneytis, sem gera á tillögur til úrbóta um bætta táknmálstúlkun og um leið hið sífellda vandamál, hveráað greiðaþjónustuna. Bezt væri auðvitað að öll túlkaþjónusta væri sem mest á einni hendi og um leið að einn greiðsluaðili væri ævinlega til staðar, hvort sem það ætti nú að vera á tryggingasviðinu eða hinu félagslega. Er þá átt við alla almenna þjónustu, því ætla verður að allt sem varðar skólanám heymarlausra komi sjálfkrafa frá menntageiranum. Allt verður þetta að fá sem fastastan farveg, svo heymarlausir geti sem fyrst og sem bezt gengið að sinni sjálfsögðu þjónustu, þannig að mannleg samskipti þeirra geti gengið með sem eðlilegust- um hætti. Um leið og ekki síður þarf virkilega að huga að námsbraut í tákn- málstúlkun við Háskólalslands, svo ráða megi bót á túlkaskortinum sem allra fyrst. I mál- efnum heyrnar- lausra virðist um óendanleg, óunnin verkefni vera að ræða. HjáSjónvarp- inu okkar allra á j afnréttið langt í land fyrir heymarlausa, en þar er þó skriður á ýmsu, sem til verulegra bóta gæti horft. Öryrkjabandalag Islands hefur eftir megni stutt við bakið á baráttu heymarlausra og margt má sjá eftir sameiginlega baráttu. En þá sjást einnig um leið hin alltof mörgu óleystu verkefni. * Mikil umræða hefur átt sér stað að undanförnu um tekjutengingu grunnlífeyris. A það bæði við um Alþingi svo og þjóðfélagið allt og alltof víða verið af litlum „setningi slegið“. Hér er auðvitað um grundvallar- atriði að ræða í allri tryggingalöggjöf okkar og fyllstu aðgæzlu þörf áður en í aðgerðir er ráðist. Allra sízt ætti slík aðgerð að tengj ast handahófskenndum tilraunum ríkisstjómar til að ná endum betur saman í ríkisfjármálum s.s. nú var. Á það benti Öryrkjabandalag Islands í mótmælaálykun sinni og benti réttilega á að slík grundvallarbreyting

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.