Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Side 44
Helgi Hróðmarsson fulltrúi:
Af Mobility International
30. maí—6. júní
verður ráðstefna um
málefni daufblindra.
I boði verður tjöldi
dagskrárliða fyrir
daufblint fólk og vini
þeirra.
5.— lO.júníverð-
ur mót í boði fyrir fólk
sem á erfitt með nám
og aðstoðarfólk þess.
Dagskráin verður við
hið fallega svæði við
Ardenesskóg í Belg-
íu. Þar munu hæfir
Hvenær opnast dyrnar?
Vonandi geta
sem flestir nýtt sér
eitthvað af ofan-
greindu. Víst er að
tengsl sem þessi við
erlendar þjóðir geta
vfkkað út sjóndeild-
arhring fólks sem
mun gagnast í starfi
hér á landi. Nánari
uppl. gefurundirrit-
aður í síma 91—
22617.
Helgi Hróðmars-
son, fulltrúi.
Helgi Hróðmarsson.
þjálfarar hjálpa þátttakendum til að
taka þátt í fjallgöngum, bátsferðum,
bakpokaferðum og tjaldferðum.
5.—15. júní verður mót í Brati-
slava í Slovakíu sem nefnist: Kynnist
Slovakíu. Þetta er einstakt tækifæri til
að læra um menningu Slovaka, fjöll
landsins og fleira ásamt því að ræða
sameiginleg hagsmunamál.
18.— 21. júní verður aðalfundur
Mobility International í Luxemborg.
I tengslum við aðalfundinn verður
ráðstefna varðandi þjálfun leiðbein-
enda sem vinna að sjálfstæðri búsetu
fatlaðra.
14.—28. júlí verður enskunám-
skeið í Alton, Englandi. Þetta
námskeið hefur verið íboði einu sinni
á ári sl. 6 ár. Góðir leiðbeinendur
verða á námskeiðinu.
25. júlí—2. ágúst verður mót í
Lenin Hills, Moskvu í Rússlandi. Þetta
er í fyrsta skiptið, sem Mobility Inter-
national gengstfyrir slíku í Rússlandi.
Þarna verður ungu fötluðu fólki gefinn
kostur á að taka þátt í ýmum uppákom-
um; s.s. kynnast starfsemi vinnustaða,
íþróttum, og ýmsum menningarvið-
burðum. Þetta verður kjörið tækifæri
til að sameina fólk frá Austur- og
Vestur-Evrópu og skiptast á skoðun-
um, hugmyndum og aðferðum sem
hinar ýmsu þjóðir nýta sér í starfi að
málefnum fatlaðra.
I september verður ráðstefna sem
nefnist: Mannleg samskipti, í Tou-
louse, Frakklandi. Þetta er eins konar
framhald af námskeiði um kynlíf og
fötlun sem haldið var 1991. Þangað
fóru fulltrúar frá Islandi.
I september verður haldið í Elsin-
ore, Danmörku námskeið fyrir verð-
andi leiðtoga. Um er að ræða 5 daga
námskeið þar sem leitast verður við
að auka sjálfstraust og frumkvæði
fatlaðs fólks. Þátttakendur munu búa
á aðgengilegu gistiheimili í Elsinore,
Danmörku.
Meginreglan er að þátttakendur í
ofangreindum uppákomum séu á aldr-
inum 16—30 ára; en einstaka undan-
tekningar eru gerðar frá þessu sé þess
sérstaklegaóskað. Kostnaðurvið sam-
komur á vegum Mobility Intemational
erniðurgreiddur og í sumumtilfellum
eru fargjöld einnig þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Hvað er á döfinni?
Eins og kunnugt er hefur Öryrkja-
bandalag íslands gengið í alþjóðleg
samtök ungra fatlaðra, sem nefnast
Mobility Intemational. Landssamtök-
in Þroskahjálp geta einnig notið góðs
af þessu í gegnum starfsemi Sam-
vinnunefndar Þroskahjálpar og
Öryrkjabandalags. Flestar Evrópu-
þjóðir eiga aðild að MI og hefur fatlað
fólk víðs vegar að notfært sér starfsemi
samtakanna í formi ferðalaga og margs
konar fræðandi og uppbyggjandi
dagskrárliða. Islendingar eru þar á
meðal og vonandi á þátttaka þeirra
eftir að aukast í framtíðinni.
Nýlega kom út dagskrá yfir starf-
semi MI fyrir árið 1992. Hér að neðan
verða nefnd þau námskeið og mót
sem nú eru ákveðin:
6. mars verður eins dags ráðstefna
um mót og námskeið fyrir fatlaða inn-
an MI sem styrkt eru af Evrópubanda-
laginu. Ráðstefnan verður haldin í
Werkenrode, Hollandi.
4. maí verðurráðstefna um jafnan
rétt þjóðfélagsþegna. Ráðstefnan
verðurhaldiníWissenschaftszentrum,
Bonn, Þýskalandi.
21.—27. mars verður ráðstefna
um sjálfboðaliðsstörf og fötlun, í
Strassbourg, Frakklandi. Þetta er
kjörið tækifæri fyrir fólk með náms-
erfiðleika og aðstoðarfólk þess. Fjallað
verður m.a. um tónlist, leiklist og
menningarleg sam-
skipti.