Víkurfréttir - 02.01.2020, Side 2
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Rit-
stjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Frétta-
stjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Marta Eiríksdóttir, sími 857 8445, marta@vf.is // Sólborg
Guðbrandsdóttir, vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theo-
dórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll
Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421
0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent
// Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn
útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist
fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtu-
dögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir
kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á
miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift
inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar
birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast
í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða
myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
retturinn.is
Alhliða
veisluþjónusta
Rétturinn matstofa
býður upp á ljúffengan
heimilismat í hádeginu
Opið frá 11:00 – 14:00
Hafnargötu 90 - Reykjanesbæ
Ragnheiður fékk Lions-bílinn
Ragnheiður Ragnarsdóttir fékk Lions-bílinn í ár, Toyota Aygo X árgerð 2019,
en hann var í fyrsta vinning í árlegu happdrætti Lionsklúbbs Njarðvíkur.
Að venju hafa Lionsmenn
samband við flesta vinn-
ingshafa strax að loknum
útdrætti. Í ár var það hún
Ragnheiður Ragnarsdóttir
sem var svo heppin að vera
með fyrsta vinning og fékk
hún bílinn afhentan á að-
fangadag.
Byggingavöruverslun
á lóð sunnan Aðalgötu?
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt samning
milli Reykjanesbæjar og Smá ragarðs ehf. fyrir sitt leyti og hefur skipu-
lagsfulltrúa bæjarins verið falið að vinna málið áfram.
Á fundi umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjanesbæjar fyrir jól var
tekið fyrir erindi þar sem óskað er
eftir lóð á svæði sunnan Aðalgötu
sem skilgreint er í aðalskipulagi
sem VÞ2. Á þessu svæði eru m.a.
Flugvellir, þar sem ný slökkvistöð
rís í Reykjanesbæ. Svæðið er nefnt
þróunarsvæði við Reykjanesbraut í
gögnum ráðsins.
Smáragarður ehf. óskaði með bréfi
dagsettu 29. nóvember 2019 eftir
heimild til að þróa reit sem skil-
greindur er í aðalskipulagi sem VÞ2.
Á svæðinu verði tvær lóðir þar sem
á aðra þeirra komi byggingavöru-
verslun. Skipulagsfulltrúi lagði fram
og kynnti drög að samkomulagi
Smáragarðs ehf. og Reykjanesbæjar,
sem ráðið samþykkti.
Upphaf Smáragarðs ehf. sem fast-
eignafélags má rekja til ársins 2002
þegar fasteignir BYKO voru teknar
út úr rekstri BYKO og settar í sér
félag, Smáragarð.
Vinningshafinn og Lionsmenn við bílinn sem Ragnheiður vann.
Vinningsnúmer ársins 2019:
1. 990 (Toyota Aygo X árg. 2019)
2. 477 (iPhone 11 MAX)
3. 1971 (62” LG UHD sjónvarp)
4. 383 (62” LG UHD sjónvarp)
5. 1657 (58” Philips UHD sjónvarp)
6. 2199 (58” Philips UHD sjónvarp)
7. 1557 (Nettó gjafakort að verðmæti 100.000)
8. 1098 (Nettó gjafakort að verðmæti 50.000)
9. 1154 (Nettó gjafakort að verðmæti 50.000)
10. 283 (Nettó gjafakort að verðmæti 50.000)
Nýtt ár er gengið í garð og óhætt er að segja að árið 2019 hafi verið smá lendingar-ár því eftir stöðuga
uppsveiflu í hagkerfinu lækkaði flugið á flest öllu en fyrst og mest auðvitað í ferðaþjónustunni.
Óhætt er að segja að það sé nokkuð bjartara framundan í upphafi nýs árs þó svo ekki sé verið að
horfa á enn meiri aukningu í komu ferðamanna á nýju ári en þessi grein hefur mikil áhrif á sam-
félagið á Suðurnesjum og á Íslandi.
Þrátt fyrir samdrátt má víða sjá vöxt og uppgang
á Suðurnesjum, m.a. í ferðaþjónustunni. Á þriðja
hundrað ný hótelherbergi verða tekin í notkun
og er óhætt að segja að með því og almennt séð,
séu Suðurnesjamenn að gera sig meira gildandi í
ferðaþjónustunni. Huga þarf að meiri kynningu
á Suðurnesjum sem áningarstað og lengja dvöl
ferðamanna sem ákveða að gista á svæðinu. Ljóst
er að framboð afþreyingar er alltaf að aukast en
náttúran er auðvitað það sem dregur flesta ferða-
menn um svæðið.
Ef við lítum yfir mannlífið þá er það okkur sönn
ánægja hjá Víkurfréttum að greina frá Suður-
nesjamanni ársins 2019 í öllum okkar miðlum
í þessari fyrstu viku ársins en það er hinn ungi
og bráðefnilegi Már Gunnarsson, sundkappi og
tónlistarmaður. Það er með hreinum ólíkindum
hvað drengurinn er magnaður og það gleymist
hreinlega stundum að hann er blindur. Þetta er
í þrítugasta skipti sem Víkurfréttir velja Mann
ársins á Suðurnesjum en í fyrra varð Guðmundur
R. Magnússon, sigmaður hjá Landhelgisgæslunni,
fyrir valinu.
Síðar á þessu ári verða fjörutíu ár síðan Víkur-
fréttir komu fyrst út, þann 14. ágúst næstkomandi.
Víkurfréttir er einn elsti bæjar- og héraðsfrétta-
miðill landsins og einn sá öflugasti. Enginn annar
fjölmiðlill á landsbyggðinni sinnir fjölmiðlun eins
og Víkurfréttir gerir í þremur stórum þáttum;
í fréttablaði, á vef og í sjónvarpi. Á síðasta ári
gerðum við 50 sjónvarpsþætti sem sýndir voru á
sjónvarpsstöðinni Hringbraut (sem nær til allra
landsmanna), á Víkurfréttavefnum, vf.is og hjá
Kapalvæðingu í Reykjanesbæ. Við gáfum út 48
tölublöð af Víkurfréttum og blaðsíðurnar urðu
rétt rúmlega eitt þúsund. Fréttir og innslög á
Víkurfréttavefnum voru rétt tæp þrjú þúsund á
árinu 2019. Við munum rifja upp úr 40 ára Víkur-
fréttasögunni á afmælisárinu með ýmsum hætti.
Um leið og við þökkum Suðurnesjamönnum, fyrir-
tækjum og einstaklingum fyrir frábært samstarf
á síðasta ári vonumst við til að það megi halda
áfram því án aðstoðar heimamanna við svona
fjölmiðlun væri þetta ekki hægt.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Páll Ketilsson,
ritstjóri Víkurfrétta.
Tímamót
Ferðafélag Íslands
með gönguhóp á
Suðurnesjum
Á tímabilinu janúar til maí 2020 mun
Ferðafélag Íslands halda úti gönguhópi
á Suðurnesjum. Hópurinn verður í
anda þeirra hópa sem Ferðafélag Ís-
lands heldur þegar úti í því skyni að
stuðla að bættri lýðheilsu.
Kynning á dagskránni verður í Keili á
Ásbrú fimmtudaginn 2. janúar kl. 17:30
og í Salthúsinu Grindavík laugardaginn
4. janúar kl. 16. Þar munu aðstand-
endur verkefnisins lýsa dagskránni
næstu mánuðina.
Göngurnar eru flestar léttar og lagt upp
með að njóta fremur en að þjóta. Farið
verður á fimmtán fjöll, langflest á Suður-
nesjum en einnig verður gengið á Ok,
Snæfellsjökul, Hengil, Móskarðahnúka
og á Heimaklett og Eldfell í Vestmanna-
eyjum þar sem gist verður eina nótt.
Safnast verður saman fyrir hverja göngu
og sameinast í bíla í Njarðvík.
Félagar í Suðurnesjamönnum eiga þess
einnig kost að taka þátt í námskeiðum
í sjósundi, samkvæmisdönsum og
æfingum á reiðhjólum.
Fararstjórar verða Reynir Traustason
og Hjálmar Árnason.
Ný fráveituhreinsistöð við Náströnd?
Umhverfis- og skipulagsráð Reykja-
nesbæjar hefur samþykkt heimild
til að vinna tillögu að deiliskipulagi
vegna nýrrar fráveituhreinsistöðvar
við Náströnd í Reykjanesbæ. Umrætt
svæði er neðan Ægisgötu á svæði aftan
við Hafnargötu 29–35.
Fyrirhuguð hreinsistöð er á svæði þar
sem gert er ráð fyrir slíkri starfssemi
í gildandi aðalskipulagi. Við endur-
skoðun aðalskipulags sem nú er í
vinnslu er einnig gert ráð fyrir þessari
staðsetningu. Ný hreinsistöð er ekki
matsskyld. Deiliskipulagið tekur til
svæðisins utan Ægisgötu í samræmi
við þá tillögu sem fyrir liggur og unnin
er í samstarfi við EFLU verkfræðistofu,
Landslag og Reykjanesbæ.
Tölvugerð mynd sem sýnir
fráveituhreinsistöð við Náströnd,
neðan Ægisgötu í Keflavík.
Séð yfir þróunarsvæðið.
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg.