Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.01.2020, Page 4

Víkurfréttir - 02.01.2020, Page 4
Jólaverslun virðist hafa verið heilt yfir ágæt í Reykja- nesbæ fyrir þessi jól. Verslunin hjá smærri aðilum hefur verið að breytast aðeins á undanförnum árum og þá í þá átt að hún dreifist yfir lengri tíma. Gunnar Egill Sigurðsson hjá Sam- kaupum segir að jólaverslunin hafi verið góð í verslunum þeirra á Suðurnesjum. Aðspurður um einhverjar breytingar í kauphegðan segir Gunnar að bækur hafi selst meira en áður og einnig bökunar- vörur. Í jólamatnum sé veruleg aukning í sölu á humri og kalkún. Róbert Svavarsson, eigandi Bústoð- ar segir árið hafa verið afar gott og desember hafi líka verið mjög góður. Dalrós Jóhannsdóttir í Skóbúðinni segist þokkalega sátt en hún nefnir breytingu á kauphegðan og að jólaversl- unin sé farin að dreifast yfir lengri tíma og undir það tóku fleiri kaupmenn. Bæjarbúar eru hvattir til að fjöl- menna í árlega þrettándagleði í Reykjanesbæ mánudaginn 6. janúar og eiga saman skemmtilega fjöl- skyldustund með púkum, álfum, Grýlu, jólasveinum og ýmsum öðrum kynjaverum. Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla Áður en dagskrá hefst, frá kl. 16:30– 17:50, verður boðið upp á skemmti- lega luktarsmiðju í Myllubakkaskóla. Fólk tekur með sér krukku að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði á Hafnargötu. Allt efni og ljós (fyrir utan krukkuna sjálfa) fæst á staðnum. Verð fyrir efni er kr. 300 og greiðist með peningum á staðnum. Gengið er inn um inn- gang við Suðurtún. Allir velkomnir. Blysför að hátíðarsvæði og börn í búningum Klukkan 18:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar og hirðar þeirra frá Myllubakkaskóla að há- tíðarsvæði við Hafnargötu 8. For- eldrar eru hvattir til að leyfa börn- unum að taka virkan þátt í gleðinni með því að klæða sig upp í ýmis gervi, jafnvel púkagervi og auðvitað að taka nýju luktina meðferðis í blys- förina. Á hátíðarsvæðinu verður það sjálf Grýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettánda- söngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu. Brenna, kakó og piparkökur Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur til að ylja sér. Flugeldasýning Björgunar sveitarinnar Suðurnes Jólin verða svo kvödd að hætti Björg- unarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeim er einum lagið. Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Júdódeild UMFN, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni. Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12. Það var sannkölluð jólastemmning í jólaversluninni í Reykjanesbæ á Þorláksmessu. Fjöldi fólks mætti á Hafnargötuna þar sem jólahljóm- sveit og jólasveinar hennar spiluðu og sungu jólalög. Þá mættu fleiri jólasveinar, gáfu börnum nammi og dúettinn Heiður lék jólalög. Starfsmenn Isavia hafa undanfarin ár mætt með jólaskreytta „jólasveinarútu“ og vekur hún jafnan athygli. Veður- guðirnir voru í sínu besta skapi og fólk naut þess að vafra um bæinn og kíkja í búðir í góðviðrinu. Víkurfréttir sýndu frá stemmning- unni í beinni útsendingu á Facebook- síðu sinni. Þrumandi þrettándagleði í Reykjanesbæ Ágæt jólaverslun á Suðurnesjum Jólastemmning á Þorláksmessu í miðbæ Keflavíkur Ástkær sambýlismaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir og afi GUÐMANN MAREL SIGURÐSSON Malli Einidal 6, Reykjanesbæ lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 12. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 7. janúar kl. 13. Þuríður Jörgensen Sigurður Ágúst Marelsson Hrafna Júlíusdóttir Tindur Kiljan Sigurðarson Ísafold Esja Sigurðardóttir Nýtt leiðarkerfi fyrir strætó í Reykjanesbæ tekur gildi • Aukin tíðni • Aukinn kvöld- og helgarakstur Nánari upplýsingar á www.straeto.is og www.reykjanesbær.is 6. janúar 2020 4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.