Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.01.2020, Side 8

Víkurfréttir - 02.01.2020, Side 8
Aflaannáll 2019 Í þessum fyrsta pistli Aflafrétta á nýju ári er vel við hæfi að renna aðeins yfir heildarafla hinna og þessara báta frá Suðurnesjum á árinu 2019. Addi Afi GK var með 283 tonn á árinu í 78 róðrum, inni í þeirri tölu eri 88 tonn af makríl. Alla GK 15,9 tonn í 29 róðrum á færum. Andey GK 24 tonn í átta og inni í þeirri tölu eru 22 tonn af makríl. Mikið aflahrun varð á Andey GK því árið 2018 þá var báturinn með yfir 500 tonna afla. Bára KE 131 15,7 tonn í 37 róðrum á færum, Benni Sæm GK 1520 tonn í 141 róðri á drag- nót, Berglín GK 3533 tonn í 51 róðri, Bergur Vigfús GK 176 tonn í 43. Beta GK átti gott ár, 602 tonn í 128 róðrum, Brynjar KE 23 tonn í 27 róðri, Daðey GK 1000 tonn í 175 róðrum, Dímon GK 26 tonn í 37 á færum. Dóri GK 718 tonn í 126 róðrum, Dóri í Vörum GK 18 tonn í 32 róðrum. Dúddi Gísla GK 594 tonn í 105 róðrum, Erling KE 1478 tonn í 100 róðrum á net, Fagravík GK 23 tonn í 39, Fjölnir GK 3510 tonn í 41 á línu, Geirfugl GK 440 tonn í 113 róðrum, Gísli Súrsson GK 1268 tonn í 158 róðrum, Grímsnes GK 1200 tonn í 155 róðrum á netum. Guðbjörg GK 673 tonn í 105 róðrum en hann hætti róðrum eftir vertíðina. Guðrún Petrína GK 247 tonn í 65 róðrum og inni í þeirri tölu er 100 tonn af makríl, Gulltoppur GK 144 tonn í 39 og inni í þeirru tölu er 60 tonn af makríl. Halldór Afi GK 400 tonn í 193 róðrum. Hólmsteinn GK 20 15,5 tonn í 30 róðrum, en þetta er smábátur sem rær á handfærum, Hraunsvík GK 336 tonn í 146 róðrum og má geta þess að þetta er eini neta- báturinn sem er að róa frá Grindavík, Jóhanna Gísladóttir GK 3950 tonn í 39 róðrum, Líf GK 34 tonn í 47 róðrum. Margrét GK, nýi báturinn sem kom í staðinn fyrir Von GK, réri aðeins um haustið 2019 og náði að afla 250 tonn í 34 róðrum, Maron GK 891 tonn í 210 róðrum á netum, Ölli Krókur GK 28 tonn í 23 róðrum, Páll Jónsson GK 3735 tonn í 43 róðrum, Rán GK 14,6 tonn í fimm róðrum. Sæfari GK 44 tonn í 50 róðrum sem öllu var landað í Grindavík, Sævík GK 754 tonn í 102 róðrum, Sella GK 82 tonn í 69 róðrum, landað á Sandgerði og Suðureyri, Siggi Bjarna GK 1770 tonn í 143 róðrum, Sigurfari GK 1643 tonn í 127 róðrum. Skiptist aflinn þannig að gamli Sigur- fari GK var með 1317 tonn og nýi Sigurfari GK restina, eða um 330 tonn. Sóley Sigurjóns GK 3732 tonn í 44 róðrum. Sóley Sigurjóns GK og Berglín GK voru um sumarið á rækju- veiðum við norðurland og af þessum afla var um 535 tonn sem veidd voru í rækjutroll, inni í þeirri tölu er rækja og fiskur. Stakasteinn GK 34 tonn í 51 róðri. Sturla GK 2928 tonn í 42 róðrum, Sunna Líf GK 232 tonn í 93 en það má geta þess að Sunna Líf GK byrjaði ekki að róa fyrr enn í mars því báturinn var í breytingum og fór ekki á sjói fyrr enn í mars. Valdimar GK 2807 tonn í 49 róðrum, Valþór GK 116 tonn í 28 á netum, Vésteinn GK 1417 tonn í 162 róðrum, Von GK 539 tonn í 85 róðrum. Von GK var síðan seldur til Suðureyrar og hóf þaðan róðra en báturinn kemur í staðinn fyrir Einar Guðnason ÍS sem strandaði skammt frá Suðureyri í nóvember og eyðilagðist. Þórdís GK 45 tonn í 50 róðrum, öllu landað í Grindavík. Heildaraflinn sem landað var í höfnum á Suðurnesjum var um sex þúsund tonn í Keflavík og Njarðvík. Um þrettán þúsund tonn í Sandgerði og um 34 þúsund tonn í Grindavík. Í Gríndavík lönduðu frystitogar alls um sextán þúsund tonnum og ef sá afli er dreginn frá þá stendur eftir um átján þúsund tonn sem er þá bátaafli í Grindavík árið 2019. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Svona gæti stærra hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ litið út Reykjanesbær hefur óskað eftir tillögum að stækkun hjúkrunarheimilisins Nesvöllum. Tvær tillögur hafa verið kynntar í bæjarráði Reykjanesbæjar en þær ganga út á að auka gæði þjónustu Nesvalla ásamt því að mæta auknu álagi sem fylgir stækkun hjúkrunarheimilisins. Hönnun nýja hjúkrunarheimilisins tekur mið af hugmyndafræði Hrafnistu og eru úrlausnir tillaganna eftir fremsta megni í samræmi við hana, segir í gögnum bæjarráðs. Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs, og Ása Eyjólfsdóttir, forstöðumaður öldrunarþjónustu, mættu á fundinn og gerðu grein fyrir málinu. Bæjarráð samþykkir að halda áfram vinnu við uppbyggingu hjúkr- unarheimilisins. Þörf er á 60 nýjum hjúkrunarrýmum og þjónustu þeim fylgjandi. Reiknað er með 65 m2 á hvern vistmann en inn í þeirri tölu er einkarými að lág- marki 28 m2, sameiginlegt rými íbúa í hverri einingu, stoðrými og aðstaða starfsfólks. TILLAGA 6 Nýbyggingin inniheldur 60 herbergi á þremur hæðum. Á hverri hæð eru tvær tíu herbergja deildir, þær deila með sér samveru- og þjónustukjarna sem eykur hagkvæmni í rekstri. Gengið er inn á hæðina á milli deildanna tveggja. Gert er ráð fyrir að nýbygging tengist núverandi hjúkrunarheimili á tvo vegu sem stuðlar að betra flæði innanhúss og styttri gönguleiðum starfsfólks og vistmanna. TILLAGA 7 Nýbyggingin inniheldur 60 herbergi á þremur hæðum. Á hverri hæð eru tvær tíu herbergja deildir, þær deila með sér samveru- og þjónustukjarna sem eykur hagkvæmni í rekstri. Gengið er inn á hæðina á milli deildanna tveggja. Gert er ráð fyrir að nýbygging tengist nú- verandi hjúkrunarheimili á einum stað. Er nýja heimilið þitt á Ásbrú kannski hjá okkur? Skoðaðu lausar leigueignir á heimavellir.is 8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.