Víkurfréttir - 02.01.2020, Page 11
augnbotnasjúkdómurinn versnaði. En
það gerist oft að fólk í kringum mig
gleymir því hvað ég sé illa og það er
alveg stundum fyndið,“ segir Már og
skælbrosir en svo fer hann yfir í aðra
alvarlegri umræðu sem honum finnst
ekkert sérstaklega fyndin.
Gangstéttir og
hljóðlausir rafbílar
„Almennt er ég rosagóður í umferli, að
koma mér á milli staða án þess að slasa
mig. Spurningin er hvað þú þjálfar upp
þegar þú sérð illa eða ert blindur. Ég
kortlegg umhverfið og þá getur verið
erfitt þegar eitthvað nýtt kemur allt í
einu upp þar sem ég var vanur að ganga
áður. Eins og til dæmis á Hafnargötunni
við Skóbúðina en þar fyrir utan var allt
í einu búið að setja upp stillansa og
einhver þykk spýta var þar í mittishæð.
Hvíti stafurinn sem ég geng alltaf með
nær ekki að aðvara mig ef hindrunin
liggur ekki á jörðunni fyrir framan
mig. Rétt áður en ég skall á þessari
þykku spýtu heyrði ég að þarna var
hindrun, þegar ég rúllaði hvíta stafnum
á jörðunni en það geri ég, því hann
sendir mér ákveðinn titringshljóð. Það
er einnig vont fyrir okkur sem erum
að kortleggja svæðið, þegar fólk er að
leggja bílnum sínum á gangstéttina.
Við erum ekki vön því að þurfa að
taka sveig út á götu en það þurfum
við að gera ef bíl er lagt á gangstétt-
ina. Stærsta vandamálið verður þó
þegar rafbílar eru orðnir algengari
því þeir gefa ekki hljóð frá sér eins og
venjulegir bílar gera. Bílhljóðin nýt-
ast okkur sem erum blind og höfum
heyrn. Vindur eða rok getur þó truflað
þetta, hljóðin frá bílunum. Rafbílar
verða því stórhættulegir fyrir okkur
ef þeir setja ekki eitthvað aukahljóð
í þessa bíla fyrir blinda vegfarendur,
eins nytsamlegir og þeir eru,“ segir
Már í alvarlegum tón.
Gott fólk í Keflavík
Már hefur búið víða, bæði hér á landi
og erlendis. Foreldrar hans eru Lína
Rut Wilberg og Gunnar Már Másson.
Már hefur undanfarin ár búið í gamla
bænum í Keflavík hjá föður sínum.
„Mér finnst flott að búa í Keflavík,
þetta er sá staður sem ég vil búa á hér á
Íslandi. Akureyri og Mosfellsbær koma
einnig til greina en ég er mikill sveita-
kall. Það eru engin geimvísindi að það
er betra að eiga heima þar sem um-
ferðin er minni. Mér finnst stemningin
góð í Keflavík. Samheldni bæjarbúa er
mikil og hér er gott samfélag. Mér var
mjög vel tekið þegar ég flutti hingað
tólf ára gamall,“ segir Már.
Mjúkt að ganga í snjó
„Ég dýrka jólin og jólagiggin eru með
þeim skemmtilegri. Þessi árstími og
snjór. Mér finnst kósý að fá snjó en
snjórinn gefur þessa skemmtilegu til-
finningu þegar maður gengur úti, allt
verður svo mjúkt undir fæti. Það er samt
ekkert gott þegar það er klaki úti og hált.
Snjókoma, snjór sem fellur til jarðar,
það er svona með því skemmtilegra.
Það hljóta allir að setja andlitið upp í
snjókomuna og leyfa henni að snerta
andlitið á sér,“ segir Már í einlægni.
Íþróttamaður ársins sem
sigraði jólalagakeppni
Tónlistin skiptir miklu máli í lífi Más.
Nýverið unnu hann og Ísold, systir
hans, jólalagakeppni Rásar tvö og stór-
tónleikar verða í vor á vegum hans.
„Ég er næstyngstur systkina minna,
Ísold er eldri en við syngjum oft
saman. Við náum mjög vel saman
í tónlistinni og gengur vel að spila
saman. Við erum að hafa gaman en
söngferill okkar er samtvinnaður.
Það var því ótrúlega gaman þegar
við unnum jólalagakeppnina hjá Rás
tvö fyrir þessi jól, alveg frábært. Við
Ísold gáfum út Jólaóskina, sem fór
inn í keppnina og svo gaf ég sjálfur út
Christmas Comes with You. Lögin eru
bæði komin á Spotify. Jólaósk hefur
verið vinsælasta lagið á Rás tvö. Það er
ákveðinn áhugi fyrir enska jólalaginu
í Póllandi en það var frumflutt þar af
mér fyrir um mánuði. Samstarf mitt
við tónlistarfólk í Póllandi hófst fyrir
tveimur árum þegar ég tók þátt í Lions
World Song Festival for the Blind. Þá
kynntist ég hinum þekkta Hadriani þar
í landi og einnig kynntist ég Natalie en
þau eru hvorug blind. Ég hef fengið að
gera magnaða hluti í Póllandi en þar er
ótrúlega fært tónlistarfólk. Pólverjar
eru svo kröfuharðir og æfa mikið því
samkeppnin er svo mikil hjá þeim.
Í vor þegar ég verð með tónleikana
í Hljómahöll þá koma og spila með
mér tónlistarmenn í háum gæðaflokki
frá Póllandi.“
Viðburðaríkur dagur hjá Má
„Það var náttúrlega frábært að vinna
jólalagakeppnina ásamt systur minni,
þarna voru fjörutíu önnur jólalög og
það að vera valinn er auðvitað bara
heiður sem ég er mjög stoltur af. Það að
vera valinn íþróttamaður ársins í röðum
fatlaðra hjá Íþrótta sam bandi fatlaðra er
sömuleiðis afskaplega mikill heiður því
íþróttahreyfing okkar er mjög öflug. Að
fá þessar tilnefningar, segir mér að það
sem við systkinin erum að gera saman
í tónlist er afskaplega gott og að fá til-
nefningu sem íþróttamaður ársins er
það einnig, það er bara að halda þessu
áfram. Dagurinn var svolítið krefjandi
því ég átti að mæta á báðum stöðum
klukkan þrjú sama dag en ég tók fyrst
á móti tilnefningu íþróttamanns og
RUV var á staðnum svo ég stökk úr
miðri ræðu að tala við þá og þetta kom
bara skemmtilega út,“ segir Már léttur
og glaður með þessar viðurkenningar
sem skipta hann miklu máli.
Fær að æfa með landsliði
Búlgaríu í sundi
Næstu vikurnar eru vel skipulagðar hjá
Má en framundan eru sundæfingabúðir
og ferðalög.
„Það er gott að búa nálægt Leifs-
stöð en í janúar er ég að fara til Lux
að æfa sund og hitta gamla vini. Svo
fer ég til Búlgaríu og fæ að æfa með
búlgarska landsliði ófatlaðra í sundi
en ég hef æft með þeim tvisvar áður.
Það er mjög merkilegt að þeir taki við
mér en þeim líkar jákvætt viðhorf mitt
og vilja styðja mig. Eftir Búlgaríu fer ég
að keppa í Noregi og verð burtu allan
janúar 2020. Pabbi kemur með mér
og það er algjörlega frábært. Það er
bara svoleiðis,“ segir Már sem hlakkar
greinilega til nýs árs en þetta er ekki
allt því Már sem kemur fram í félögum
og hjá klúbbum með söngatriði á sér
nýjan draum; hann langar til að hafa
áhrif á fólk með fyrirlestrum um já-
kvæðni og hvatningu. Hann segist vel
geta hugsað sér að halda fyrirlestur
fyrir námsmenn á öllum skólastigum
um þessi mál, hvetja krakka til að nýta
tíma sinn vel í náminu og eyða honum
ekki í vitleysu. Þetta eru dýrmæt ár.
Langar að hvetja
fólk til dáða
„Ég kem oft fram og spila tónlist mína
hjá félögum og klúbbum og hef meira
að segja spilað fyrir forseta Íslands.
Það er mjög skemmtilegt en ég hef
einnig verið að halda fyrirlestra um
markmiðasetningu og jákvætt viðhorf,
um hvernig á að ná árangri. Mér þætti
mjög gaman að koma með fyrirlestur
fyrir nemendur á öllum aldri í skólum,
tala um hvað það skiptir miklu máli að
nýta tíma sinn vel, stefna að einhverju
í framtíðinni. Við höfum öll hæfileika
en þurfum að virkja metnaðinn í okkur
til að ná árangri,“ segir þessi líflegi og
efnilegi ungi maður, Már Gunnarsson,
Maður ársins á Suðurnesjum 2019.
„Þetta hefur gengið mjög vel og við erum bara teymi. Már hefur alla tíð sett sér háleit markmið og náð þeim
flestum með miklum metnaði og ástundun en auðvitað líka með aðstoð margra aðila,“ segir Gunnar Már Másson,
faðir Más, en hann er svo sannarlega hægri hönd sonarins. Gunnar er eiginlega framkvæmdastjórinn í þessu liði
Más sem nýtur einnig liðsinnis margra þjálfara, m.a. Steindórs Gunnarssonar, sundþjálfara, sem segir að það hafi
verið og sé lærdómsríkt að þjálfa blindan sundmann. „Már er mjög hæfileikaríkur og duglegur og svo er hann með
gott keppnisskap. Andlegi þátturinn í íþróttum er mikilvægur og hann er mjög góður hjá Má. En það er auðvitað
flóknara að þjálfa blindan sundmann og áskoranir hér og þar.“
„Við erum bara teymi og vinnum þannig. Við feðgar
erum mjög þakklátir fyrir alla þá aðstoð sem Már hefur
fengið hér í Reykjanesbæ. Aðstaðan er frábær í sundmið-
stöðinni og í Sporthúsinu en á þessum stöðum æfir Már.
Við stefnum auðvitað hátt og leggjum hart að okkur til
að ná markmiðunum, sem eru háleit,“ segir Gunnar Már
sem tekur virkan þátt í æfingum sonarins og öllu lífi hans.
Gunnar gengur sömu vegalengd og Már syndir því hann
er á báðum sundlaugarbökkunum með sérstaka stöng
með bolta á endanum sem hann notar til að láta sund-
kappann vita þegar hann nálgast sundlaugarbakkann.
Boltinn fer í koll Más rétt áður en hann á að snúa.
Gunnar Már verður með syni sínum í byrjun árs við æf-
ingar og keppni í útlöndum en þeir feðgar fóru utan
á nýársdag. Gunnar Már kemur einnig mikið að ýmsu
í tónlistinni hjá syninum. Samstarf þeirra er náið og
skemmtilegt.
„Við erum
teymi“
– Gunnar Már, faðir Más,
er hægri hönd sonarins
Íþróttamaður ársins og með besta jólalagið
Sundmaðurinn Már Gunnarsson var kjörinn
íþróttamaður ársins 2019 hjá Íþróttasambandi
fatlaðra. Hann og systir hans, Ísold, unnu einnig
Jólalagakeppni Rásar tvö.
„Árið 2019 var afskaplega viðburðaríkt bæði í
músíkinni og sundinu. Ég náði þeim markmiðum
sem ég ætlaði að ná og það voru alls konar óvæntar
uppákomur sem duttu inn í kjölfarið. Hjá mér er
mikið svigrúm fyrir bætingar í sundlauginni og
stefnan fyrir árið 2020 er klár og markmiðin enn
skýrari,“ sagði Már Gunnarsson.
Við erum að hafa gaman
en söngferill okkar
er samtvinnaður.
Það var því ótrúlega
gaman þegar við unnum
jólalagakeppnina hjá
Rás tvö fyrir þessi jól,
alveg frábært ...
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Ekki missa af viðtali við Má
Gunnarsson
MANN ÁRSINS 2019
í fyrsta þætti ársins af
Suðurnesjamagasíni á
fimmtudagskvöld kl. 20:30
á Hringbraut og vf.is
11 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg. 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
MÁR ER MAÐUR ÁRSINS
Sundkappinn og tón-
listarmaðurinn Már
Gunnarsson er Suður-
nesjamaður ársins 2019
um sundið, tónlistina, blindrastafinn og fleira. Marta Eiríksdóttir, blaðamaður á Víkurfréttum, hitti Má hins vegar og tók viðtalið sem birtist hér. Það dugði ekkert minna en að senda tvo aðila frá Víkurfréttum til að ræða við þennan magnaða strák.
Páll Ketilsson
pket@vf.is