Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.01.2020, Síða 11

Víkurfréttir - 02.01.2020, Síða 11
augnbotnasjúkdómurinn versnaði. En það gerist oft að fólk í kringum mig gleymir því hvað ég sé illa og það er alveg stundum fyndið,“ segir Már og skælbrosir en svo fer hann yfir í aðra alvarlegri umræðu sem honum finnst ekkert sérstaklega fyndin. Gangstéttir og hljóðlausir rafbílar „Almennt er ég rosagóður í umferli, að koma mér á milli staða án þess að slasa mig. Spurningin er hvað þú þjálfar upp þegar þú sérð illa eða ert blindur. Ég kortlegg umhverfið og þá getur verið erfitt þegar eitthvað nýtt kemur allt í einu upp þar sem ég var vanur að ganga áður. Eins og til dæmis á Hafnargötunni við Skóbúðina en þar fyrir utan var allt í einu búið að setja upp stillansa og einhver þykk spýta var þar í mittishæð. Hvíti stafurinn sem ég geng alltaf með nær ekki að aðvara mig ef hindrunin liggur ekki á jörðunni fyrir framan mig. Rétt áður en ég skall á þessari þykku spýtu heyrði ég að þarna var hindrun, þegar ég rúllaði hvíta stafnum á jörðunni en það geri ég, því hann sendir mér ákveðinn titringshljóð. Það er einnig vont fyrir okkur sem erum að kortleggja svæðið, þegar fólk er að leggja bílnum sínum á gangstéttina. Við erum ekki vön því að þurfa að taka sveig út á götu en það þurfum við að gera ef bíl er lagt á gangstétt- ina. Stærsta vandamálið verður þó þegar rafbílar eru orðnir algengari því þeir gefa ekki hljóð frá sér eins og venjulegir bílar gera. Bílhljóðin nýt- ast okkur sem erum blind og höfum heyrn. Vindur eða rok getur þó truflað þetta, hljóðin frá bílunum. Rafbílar verða því stórhættulegir fyrir okkur ef þeir setja ekki eitthvað aukahljóð í þessa bíla fyrir blinda vegfarendur, eins nytsamlegir og þeir eru,“ segir Már í alvarlegum tón. Gott fólk í Keflavík Már hefur búið víða, bæði hér á landi og erlendis. Foreldrar hans eru Lína Rut Wilberg og Gunnar Már Másson. Már hefur undanfarin ár búið í gamla bænum í Keflavík hjá föður sínum. „Mér finnst flott að búa í Keflavík, þetta er sá staður sem ég vil búa á hér á Íslandi. Akureyri og Mosfellsbær koma einnig til greina en ég er mikill sveita- kall. Það eru engin geimvísindi að það er betra að eiga heima þar sem um- ferðin er minni. Mér finnst stemningin góð í Keflavík. Samheldni bæjarbúa er mikil og hér er gott samfélag. Mér var mjög vel tekið þegar ég flutti hingað tólf ára gamall,“ segir Már. Mjúkt að ganga í snjó „Ég dýrka jólin og jólagiggin eru með þeim skemmtilegri. Þessi árstími og snjór. Mér finnst kósý að fá snjó en snjórinn gefur þessa skemmtilegu til- finningu þegar maður gengur úti, allt verður svo mjúkt undir fæti. Það er samt ekkert gott þegar það er klaki úti og hált. Snjókoma, snjór sem fellur til jarðar, það er svona með því skemmtilegra. Það hljóta allir að setja andlitið upp í snjókomuna og leyfa henni að snerta andlitið á sér,“ segir Már í einlægni. Íþróttamaður ársins sem sigraði jólalagakeppni Tónlistin skiptir miklu máli í lífi Más. Nýverið unnu hann og Ísold, systir hans, jólalagakeppni Rásar tvö og stór- tónleikar verða í vor á vegum hans. „Ég er næstyngstur systkina minna, Ísold er eldri en við syngjum oft saman. Við náum mjög vel saman í tónlistinni og gengur vel að spila saman. Við erum að hafa gaman en söngferill okkar er samtvinnaður. Það var því ótrúlega gaman þegar við unnum jólalagakeppnina hjá Rás tvö fyrir þessi jól, alveg frábært. Við Ísold gáfum út Jólaóskina, sem fór inn í keppnina og svo gaf ég sjálfur út Christmas Comes with You. Lögin eru bæði komin á Spotify. Jólaósk hefur verið vinsælasta lagið á Rás tvö. Það er ákveðinn áhugi fyrir enska jólalaginu í Póllandi en það var frumflutt þar af mér fyrir um mánuði. Samstarf mitt við tónlistarfólk í Póllandi hófst fyrir tveimur árum þegar ég tók þátt í Lions World Song Festival for the Blind. Þá kynntist ég hinum þekkta Hadriani þar í landi og einnig kynntist ég Natalie en þau eru hvorug blind. Ég hef fengið að gera magnaða hluti í Póllandi en þar er ótrúlega fært tónlistarfólk. Pólverjar eru svo kröfuharðir og æfa mikið því samkeppnin er svo mikil hjá þeim. Í vor þegar ég verð með tónleikana í Hljómahöll þá koma og spila með mér tónlistarmenn í háum gæðaflokki frá Póllandi.“ Viðburðaríkur dagur hjá Má „Það var náttúrlega frábært að vinna jólalagakeppnina ásamt systur minni, þarna voru fjörutíu önnur jólalög og það að vera valinn er auðvitað bara heiður sem ég er mjög stoltur af. Það að vera valinn íþróttamaður ársins í röðum fatlaðra hjá Íþrótta sam bandi fatlaðra er sömuleiðis afskaplega mikill heiður því íþróttahreyfing okkar er mjög öflug. Að fá þessar tilnefningar, segir mér að það sem við systkinin erum að gera saman í tónlist er afskaplega gott og að fá til- nefningu sem íþróttamaður ársins er það einnig, það er bara að halda þessu áfram. Dagurinn var svolítið krefjandi því ég átti að mæta á báðum stöðum klukkan þrjú sama dag en ég tók fyrst á móti tilnefningu íþróttamanns og RUV var á staðnum svo ég stökk úr miðri ræðu að tala við þá og þetta kom bara skemmtilega út,“ segir Már léttur og glaður með þessar viðurkenningar sem skipta hann miklu máli. Fær að æfa með landsliði Búlgaríu í sundi Næstu vikurnar eru vel skipulagðar hjá Má en framundan eru sundæfingabúðir og ferðalög. „Það er gott að búa nálægt Leifs- stöð en í janúar er ég að fara til Lux að æfa sund og hitta gamla vini. Svo fer ég til Búlgaríu og fæ að æfa með búlgarska landsliði ófatlaðra í sundi en ég hef æft með þeim tvisvar áður. Það er mjög merkilegt að þeir taki við mér en þeim líkar jákvætt viðhorf mitt og vilja styðja mig. Eftir Búlgaríu fer ég að keppa í Noregi og verð burtu allan janúar 2020. Pabbi kemur með mér og það er algjörlega frábært. Það er bara svoleiðis,“ segir Már sem hlakkar greinilega til nýs árs en þetta er ekki allt því Már sem kemur fram í félögum og hjá klúbbum með söngatriði á sér nýjan draum; hann langar til að hafa áhrif á fólk með fyrirlestrum um já- kvæðni og hvatningu. Hann segist vel geta hugsað sér að halda fyrirlestur fyrir námsmenn á öllum skólastigum um þessi mál, hvetja krakka til að nýta tíma sinn vel í náminu og eyða honum ekki í vitleysu. Þetta eru dýrmæt ár. Langar að hvetja fólk til dáða „Ég kem oft fram og spila tónlist mína hjá félögum og klúbbum og hef meira að segja spilað fyrir forseta Íslands. Það er mjög skemmtilegt en ég hef einnig verið að halda fyrirlestra um markmiðasetningu og jákvætt viðhorf, um hvernig á að ná árangri. Mér þætti mjög gaman að koma með fyrirlestur fyrir nemendur á öllum aldri í skólum, tala um hvað það skiptir miklu máli að nýta tíma sinn vel, stefna að einhverju í framtíðinni. Við höfum öll hæfileika en þurfum að virkja metnaðinn í okkur til að ná árangri,“ segir þessi líflegi og efnilegi ungi maður, Már Gunnarsson, Maður ársins á Suðurnesjum 2019. „Þetta hefur gengið mjög vel og við erum bara teymi. Már hefur alla tíð sett sér háleit markmið og náð þeim flestum með miklum metnaði og ástundun en auðvitað líka með aðstoð margra aðila,“ segir Gunnar Már Másson, faðir Más, en hann er svo sannarlega hægri hönd sonarins. Gunnar er eiginlega framkvæmdastjórinn í þessu liði Más sem nýtur einnig liðsinnis margra þjálfara, m.a. Steindórs Gunnarssonar, sundþjálfara, sem segir að það hafi verið og sé lærdómsríkt að þjálfa blindan sundmann. „Már er mjög hæfileikaríkur og duglegur og svo er hann með gott keppnisskap. Andlegi þátturinn í íþróttum er mikilvægur og hann er mjög góður hjá Má. En það er auðvitað flóknara að þjálfa blindan sundmann og áskoranir hér og þar.“ „Við erum bara teymi og vinnum þannig. Við feðgar erum mjög þakklátir fyrir alla þá aðstoð sem Már hefur fengið hér í Reykjanesbæ. Aðstaðan er frábær í sundmið- stöðinni og í Sporthúsinu en á þessum stöðum æfir Már. Við stefnum auðvitað hátt og leggjum hart að okkur til að ná markmiðunum, sem eru háleit,“ segir Gunnar Már sem tekur virkan þátt í æfingum sonarins og öllu lífi hans. Gunnar gengur sömu vegalengd og Már syndir því hann er á báðum sundlaugarbökkunum með sérstaka stöng með bolta á endanum sem hann notar til að láta sund- kappann vita þegar hann nálgast sundlaugarbakkann. Boltinn fer í koll Más rétt áður en hann á að snúa. Gunnar Már verður með syni sínum í byrjun árs við æf- ingar og keppni í útlöndum en þeir feðgar fóru utan á nýársdag. Gunnar Már kemur einnig mikið að ýmsu í tónlistinni hjá syninum. Samstarf þeirra er náið og skemmtilegt. „Við erum teymi“ – Gunnar Már, faðir Más, er hægri hönd sonarins Íþróttamaður ársins og með besta jólalagið Sundmaðurinn Már Gunnarsson var kjörinn íþróttamaður ársins 2019 hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Hann og systir hans, Ísold, unnu einnig Jólalagakeppni Rásar tvö. „Árið 2019 var afskaplega viðburðaríkt bæði í músíkinni og sundinu. Ég náði þeim markmiðum sem ég ætlaði að ná og það voru alls konar óvæntar uppákomur sem duttu inn í kjölfarið. Hjá mér er mikið svigrúm fyrir bætingar í sundlauginni og stefnan fyrir árið 2020 er klár og markmiðin enn skýrari,“ sagði Már Gunnarsson. Við erum að hafa gaman en söngferill okkar er samtvinnaður. Það var því ótrúlega gaman þegar við unnum jólalagakeppnina hjá Rás tvö fyrir þessi jól, alveg frábært ... Páll Ketilsson pket@vf.is Ekki missa af viðtali við Má Gunnarsson MANN ÁRSINS 2019 í fyrsta þætti ársins af Suðurnesjamagasíni á fimmtudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is 11 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg. 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR MÁR ER MAÐUR ÁRSINS Sundkappinn og tón- listarmaðurinn Már Gunnarsson er Suður- nesjamaður ársins 2019 um sundið, tónlistina, blindrastafinn og fleira. Marta Eiríksdóttir, blaðamaður á Víkurfréttum, hitti Má hins vegar og tók viðtalið sem birtist hér. Það dugði ekkert minna en að senda tvo aðila frá Víkurfréttum til að ræða við þennan magnaða strák. Páll Ketilsson pket@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.