Víkurfréttir - 02.01.2020, Qupperneq 12
Uppbyggingarsjóður styrkir 39 verkefni árið 2020
Fulltrúar þeirra 39 aðila sem fá styrk hjá Uppbyggingarsjóði ásamt forsvarsfólki sjóðsins. VF-mynd/KjartanMár
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Skjalastjóri óskast til starfa
hjá Grindavíkurbæ
Grindavíkurbær óskar eftir að ráða skjalastjóra til starfa á bæjarskrif-
stofu. Um er að ræða 100% starf er heyrir undir sviðsstjóra fjármála-
og stjórnsýslusviðs.
Skjalastjóri ber ábyrgð á skjalamálum á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar. Hann
tekur þátt í stefnumótun um skjalastjórnun sem og rafræna stjórnsýslu og sér um
fræðslu og ráðgjöf um skjalamál til starfsmanna og stofnana bæjarfélagsins.
Helstu verkefni:
• Umsjón með faglegri vinnu og vinnur að
miðlægri og samræmdri skjalastýringu.
• Ábyrgð og umsjón með One
skjalavörslukerfinu, skráningu og varðveislu
erinda og skjala sem berast á skrifstofu
Grindavíkurbæjar sem og afgreiðslu og
frágangi mála í málaskrá.
• Útbýr og endurskoðar skalavistunaráætlun
Grindavíkurbæjar.
• Sér um samskipti við persónuverndar
fulltrúa Grindavíkurbæjar.
• Ýmis önnur tilfallandi almenn skrifstofustörf.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi, svo sem
bókasafns og upplýsingafræði eða
skjalfræði.
• Þekking á skjalastýringu
og skjalavistunarkerfum.
• Reynsla og þekking á málefnum
sveitarfélaga er kostur.
• Reynsla og þekking á sviði
verkefnastjórnunar er kostur.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Geta til að sýna frumkvæði og rík
skipulagshæfni.
• Mjög góð tölvukunnátta.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti.
• Hæfni til að miðla flóknum upplýsingum
á einfaldan hátt í töluðu og rituðu máli.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Jón Þórisson í síma 4201103 eða í tölvupósti jont@grindavik.is
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skilað
rafrænt á netfangið jont@grindavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2020.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Aðilar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Jón Þórisson
sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslusviðs
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur úthlutað 39 verkefnum styrkjum fyrir
45 milljónum króna. Umsóknir um styrki voru 65 talsins fyrir samtals 167
milljónir króna. Greint var frá því hverjir hlutu styrkina á Park Inn hótelinu
síðasta fimmtudag.
Verkefni sem falla undir menningu
og listir fengu úthlutað 28 milljónum
króna en atvinnu- og nýsköpun 17
milljón króna.
„Það þarf mikla þrautseigju, drifkraft,
seiglu og metnað að fylgja hugmynd
eftir og framkvæma hana. Við íbúar
Suðurnesja erum virkilega heppin með
hversu flott frumkvöðla- og menningar-
starf er hér á svæðinu, og er það ykkur
að þakka,“ sagði Fríða Stefánsdóttir,
formaður Uppbyggingarsjóðs Suður-
nesja þegar greint var frá úhlutuninni.
Fríða las upp 39 umsóknir sem fá styrk
á árinu 2020.
Þann 12. nóvember 2019 var undir-
ritaður samningur milli samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytisins, mennta-
og menningarmálaráðuneytisins ann-
ars vegar og Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum hins vegar um sóknará-
ætlun Suðurnesja 2020–2024. Með
þessum samningi er tryggt að Uppbygg-
ingarsjóður Suðurnesja fær fjármagn
árlega þetta tímabil til að úthluta til
verkefna á árunum 2020–2024.
Markmið samningsins er að stuðla að
jákvæðri byggðaþróun í takt við heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálf-
bæra þróun, treysta stoðir menningar
og auka samkeppnishæfni landshlutans
og landsins alls. Samningurinn tekur
mið af þingsályktun um stefnumótandi
byggðaáætlun, menningarstefnu og ann-
arri stefnu ríkisins eftir því sem við á.
Verkefnin Ferskir vindar listahátíð
í Garði og Fjölþætt heilsuefling 65+
í sveitarfélögum hlutu stærstu styrkina
að þessu sinni eða 4 milljónir króna
hvort. Þá hlutu Ferskir vindar loforð
upp á 2 milljónir króna fyrir árið 2021
og 4 milljónir króna fyrir 2022.
Meðlimir Jazzfjelags Suðurnesja bæjar tóku
nokkur lög við afhendingu styrkjanna.
Félagið fékk styrk til að halda
fjölda tónleika á nýju ári.
VF-mynd/pket
Feðginin Elíza og Geir Newman og Jón Newman fengu styrk fyrir
nýtt verkefni sem er „Kotið í Höfnum“, endurbygging á 100 ára
gömlu húsi, Garðbæ, sem þau stefna að því að opna svo fyrir
almenningi, þegar verkefninu lýkur.
Björk Guðjóns-
dóttir, starfsmaður
atvinnuþróunar-
félagsins Heklunnar,
og Janus Guðlaugs-
son en verkefni hans,
Heilsuefling 65+
hlaut hæsta styrkinn.
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg.