Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.01.2020, Side 19

Víkurfréttir - 02.01.2020, Side 19
Þrettándagleði í Reykjanesbæ 6. janúar 2020 Kl. 16:30 – 17:50 Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla Kl. 18:00 Blysför frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði Brenna, tónlist, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, jólasveinn, heitt kakó og piparkökur og glæsileg flugeldasýning. Sjá nánar á www.reykjanesbaer.is Karen Mist og Már Íþróttafólk Reykjanesbæjar 2019 Sundfólkið Karen Mist Arngeirsdóttir og Már Gunnarsson voru kjörin Íþróttafólk Reykjanesbæjar en greint var frá kjörinu í árlegu hófi í íþróttahúsi Njarðvíkur á gamlársdag. Karen og Már stóðu sig frábærlega í sundlauginni á árinu og settu bæði fjölda meta í mótum ársins. Í hófinu voru allir Íslandsmeistarar úr félögum bæjarins heiðraðir en alls voru Íslandsmeistaratitlarnir 137 á árinu. Í Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar (ÍRB) eru tíu aðildarfélög sem keppa í tutttugu íþróttagreinum og bárust til- nefningar til íþróttamanns ársins frá sextán greinum. Þá var Crossfit-afrekskonan Sara Sigmundsdóttir heiðruð á hófinu en hún er atvinnumaður í greininni og keppir utan félags á Íslandi. Talsverð aukning á aðstókn hefur verið í Sundmiðstöð Keflavíkur en enginn kom þó oftar á árinu 2019 en hinn níræði Andrés Eggertsson, íbúi í Reykjanesbæ. „Þetta heldur mér gangandi. Ég reyni að mæta alla daga,“ sagði hann hress að vanda þegar forsvarsmenn Sundmið- stöðvarinnar verðlaunuðu Andrés að morgni gamlársdags. Þá var gestum boðið í síld og kaffi. Andrés mætti alls 340 sinnum í Sundmiðstöðina á árinu 2019 og þessir 25 dagar sem hann missti út voru m.a. út af því að kappinn þurfti að fara á sjúkrahús auk annarra per- sónulegra mála. Þá eru líka nokkrir dagar sem hreinlega er lokað. „Svona menn eru frábær fyrir- mynd,“ sagði Hafsteinn Ingibergs- son, forstöðumaður íþróttamann- virkja hjá Reykjanesbæ. Andrés, sem fagnaði 90 ára afmæli sínu í haust, syndir og fer í pottana, m.a. í kalda pottinn og situr í honum í dágóða stund, Andrés segir það vera mjög gott fyrir sig. Á gamlársdagsmorgun mættu margir af fastagestunum, einn þeirra var úr jólasveinafjölskyldunni í Noregi en hann heilsaði upp á gesti í heita pottinum. Níræður með 340 skipti í lauginni Íþróttamenn allra greina hjá ÍRB Akstursíþróttakona Reykjanesbæjar 2019: Rakel Árnadóttir Akstursíþróttamaður Reykjanesbæjar 2019: Ragnar Magnússon Blakíþróttakona Reykjanesbæjar 2019: Jónína Einarsdóttir Blakíþróttamaður Reykjanesbæjar 2019: Bjarni Þór Hólmsteinsson Fimleikakona Reykjanesbæjar 2019: Emma Jónsdóttir Fimleikamaður Reykjanesbæjar 2019: Atli Viktor Björnsson Glímukona Reykjanesbæjar 2019: Heiðrún Fjóla Pálsdóttir Glímumaður Reykjanesbæjar 2019: Guðmundur S. Gunnarsson Hestaíþróttakona Reykjanesbæjar 2019: Sunna S. Guðmundsdóttir Hnefaleikakona Reykjanesbæjar 2019: Hildur Ósk Indriðadóttir Hnefaleikamaður Reykjanesbæjar 2019: Davíð Sienda Íþróttakona fatlaðra í Reykjanesbæ 2019: Lára María Ingimundardóttir Íþróttamaður fatlaðra í Reykjanesbæ 2019: Már Gunnarsson Júdókona Reykjanesbæjar 2019: Heiðrún Fjóla Pálsdóttir Júdómaður Reykjanesbæjar 2019: Ingólfur Rögnvaldsson Knattspyrnukona Reykjanesbæjar 2019: Natasha Moraa Knattspyrnumaður Reykjanesbæjar 2019: Atli Geir Gunnarsson Körfuknattleikskona Reykjanesbæjar 2019: Salbjörg Ragna Sævarsdóttir Körfuknattleiksmaður Reykjanesbæjar 2019: Hörður Axel Vilhjálmsson Kraftlyftingakona Reykjanesbæjar 2019: Elísa Sveinsdóttir Kraftlyftingamaður Reykjanesbæjar 2019: Halldór Jens Vilhjálms Kvenkylfingur Reykjanesbæjar 2019: Kinga Korpak Karlkylfingur Reykjanesbæjar 2019: Logi Sigurðsson Lyftingakona Reykjanesbæjar 2019: Aþena Eir Jónsdóttir Lyftingamaður Reykjanesbæjar 2019: Emil Ragnar Ægisson Sundkona Reykjanesbæjar 2019: Karen Mist Arngeirsdóttir Sundmaður Reykjanesbæjar 2019: Þröstur Bjarnason Taekwondokona Reykjanesbæjar 2019: Dagfríður Pétursdóttir Taekwondomaður Reykjanesbæjar 2019: Kristmundur Gíslason Þríþrautakona Reykjanesbæjar 2019: Guðlaug Sveinsdóttir Þríþrautamaður Reykjanesbæjar 2019: Jón Oddur Guðmundsson 19 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.