Víkurfréttir - 02.04.2020, Blaðsíða 28
28 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg.
Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum vegna
kórónuveirunnar var samþykktur á Alþingi í aukafjár-
lögum sl. mánudagskvöld. Ég tel að aðgerðirnar séu
góðar svo langt sem þær ná en gangi ekki nógu langt í
því að lágmarka það tjón sem við stöndum frammi fyrir
í þeim fordæmalausu aðstæðum sem nú ríkja um allan
heim.
Formaður fjárlaganefndar viðurkenndi
að þetta dygði ekki til en boðaði frekari
aðgerðir. Miðflokkurinn studdi til-
lögur ríkisstjórnarinnar en lagði jafn-
framt fram breytingartillögur ásamt
stjórnarandstöðuflokkunum um víð-
tækari aðgerðir til að örva efnahagslífið.
Tillögurnar eru hrein viðbót og hljóða
upp á 30 milljarða króna til hinna ýmsu
verkefna, má þar nefna Reykjanes-
brautina, Hjúkrunarheimilis við Nes-
velli, auk þess til Keilis og Miðstöðvar
símenntunar á Suðurnesjum, til að
mæta brýnum aðstæðum vegna mikils
atvinnuleysis á svæðinu.
Breytingartillögur
minnihluta felldar sem fyrr
Ríkisstjórnarflokkarnir felldu allar til-
lögurnar og eru það mikil vonbrigði.
Sérstaklega þar sem Suðurnesin komu
afar illa út úr efnahagsþrengingunum.
Ríkisstjórnin lagði til 200 milljónir til
framkvæmda við Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja til að bæta aðkomu sjúkra-
bifreiða og aukið hlutafé til Isavia til
framkvæmda. Í hafnarframkvæmdum
er gert ráð fyrir dýpkun við Sand-
gerðishöfn og grjótverkefni í Keflavík
og Njarðvík. Ljóst er að þessi verkefni
duga engan veginn til að vinna á móti
atvinnuleysinu, sem er það mesta á
landinu og er spáð að verði allt að 20%.
Ríkisstjórnin verður að koma strax
með sérstakan aðgerðarpakka fyrir
Suðurnesin.
Þingmenn svæðisins
verða að standa saman
Nú reynir á sem aldrei fyrr að þing-
menn kjördæmisins standi saman í
því að mæta þeim mikla vanda sem
Suðurnesin standa frammi fyrir í at-
vinnumálum. Þá þýðir ekki fyrir þing-
menn stjórnarflokkana að kalla eftir
samstarfi á erfiðum tímum en fella svo
allar tillögur minnihlutans um aðgerðir
fyrir Suðurnesin.
Birgir Þórarinsson, þingmaður
Miðflokksins og situr í
fjárlaganefnd Alþingis.
Stundum getur saklaust spjall yfir kaffibolla haft af-
leiðingar sem mann óraði ekki fyrir. Það var akkúrat það
sem gerðist hjá mér. Samtal við Halla Valla vin minn yfir
tíu dropum varð til þess að nokkrum vikum síðar leiddi
ég kraftmikinn og skemmtilegan Þ-lista í bæjarstjórnar-
kosningum í Sandgerði. Helsti drifkrafturinn á bak við
framboðslistann var ákall um breytingar. Við vorum að
mestu ungt fólk sem fannst stefna í litla endurnýjun í
bæjarstjórninni þegar við töldum vera þörf fyrir nýtt
blóð. Í einhverri framboðsræðunni í þessum fyrstu kosn-
ingum sagði ég einmitt að ég að þegar ég væri búinn að
sitja í bæjarstjórninni í átta ár yrði tímabært að sparka
í mig og ýta mér út. Síðan eru liðin 18 ár og loksins er
komið að því að ég hverfi af vettvangi.
Þessi 18 ár hafa sannarlega verið við-
burðarík. Ég hef fengið tækifæri til að
takast á við alls konar verkefni, leiða
þrjá mismunandi framboðslista og verið
í hringiðu mannlífsins. Ég hef tekið
þátt í risastórum verkefnum eins og
að móta svæðisskipulag fyrir Suður-
nesin, að keyra Sandgerðisbæ upp úr
fordæmalausri skuldastöðu og að búa
til nýtt sveitarfélag. Ég hef líka tekið
þátt í ótalmörgum smærri verkefnum
sem eru kannski ekkert svo lítil þegar
maður hugsar til baka.
Það dýrmætasta er samt allt fólkið sem
ég hefur verið með mér á þessu ferða-
lagi. Það er fólkið sem hefur stutt mig
og hjálpað mér eins og fjölskyldan mín
og vinir, fólkið sem hefur kosið mig
og treyst mér til að vinna að málum í
þeirra umboði, fólkið sem hefur verið
með mér á framboðslistum, bæjar-
stjórnum og alls konar nefndum, fólkið
sem hefur starfað á vegum sveitarfélag-
anna og allt það fólk sem ég hef haft
samskipti við út af störfum mínum
sem kjörinn fulltrúi. Tilgangurinn með
þessari grein er einfaldlega að segja takk
við allt þetta fólk sem hefur kennt mér
svo margt og fært mér gleði, kraft og
vilja. Það er þeim að þakka að ég fer vel
nestaður til að takast á við ný verkefni
á Vestfjörðum.
Ólafur Þór Ólafsson
Það er óhætt að segja að árið 2020 hafi fært okkur
Grindvíkingum miklar og krefjandi áskoranir.
Þetta ártal sem er í raun svo flott 2020! Í dag er þetta
ártal sem flestir vilja gleyma. Vonandi verður þó þetta
ár, það ár sem við tökum út margra ára lærdóm á
örstuttum tíma. Lærdóm sem kenndi okkur að vera
viðbúin og með áætlanir um viðbrögð og úrræði ef til
slæmra tíðinda dregur.
Það var óþægileg tilfinning að fá
símtal eftir velheppnað þorrablót og
fá boð með skyndi í Samhæfingar-
stöð Almannavarna, jörðin undir
okkur byrjuð að rísa og skjálfa. Móðir
náttúra hefur rækilega minnt á sig
undanfarna 2 mánuði. Íbúafundur
var skipulagður með hraði því mikil-
vægi upplýsingagjafar er ómetanleg.
Góð samvinna allra viðbragðsaðila
var til fyrirmyndar. Á örfáum vikum
unnu viðbragðsaðilar ótrúlegt starf.
Undirbúningur var allur eins og best
verður á kosið. Vonandi þarf aldrei
að grípa til þeirra aðgerða, en ef til
þess kemur, þá erum við klár. Sem
dæmi má nefna að verið er að skipu-
leggja færslu á Suðurstrandarveg-
inum, og nú með hliðsjón af því að
vegurinn geti nýst sem varnargarður
og stýrt flæði hrauns. Fyrir síðustu
sveitastjórnarkosningar þá bentum
við hjá Framsókn á þetta, og málið
fór inn í stefnuskrá okkar, en áttum
við kannski ekki von á að innan við
tveimur árum síðar yrði þetta að
raunveruleika.
Þegar við töldum að jarðhræringar
væru á undanhaldi, þá hefur skollið á
okkur og heimsbyggðinni allri þessi
vá sem Covid 19 er. Þar reynir á
okkur öll, en jörðin undir okkur er
nú ekki á því að hætta að skjálfa og
hefur haldið áfram að minna á sig.
Við búum vel að því í Grindavík
að bæjarsjóður stendur vel, skuldir
bæjarins eru litlar sem engar enda
hefur verið markmið undanfarin
kjörtímabil að eiga sjóð, a.m.k. 1
milljarð króna. Um hann hefur þó
verið deilt og sumir hafa ekki séð
tilgang með honum, viljað eyða
honum í framkvæmdir, markaðsstarf
og ýmislegt annað. Við í Framsókn
höfum barist fyrir því að fara ekki
undir milljarðinn til að bregðast við
ef til áfalla kæmi. Flestir sjá nú líklega
tilganginn með því að eiga þennan
varasjóð því áföll síðustu vikna hafa
og munu væntanlega enn um sinn
tak sinn toll.
Vonandi munu þjóðir heims ná sér
sem fyrst af þessum hremmingum
en það mun taka tíma. Við munum
finna fyrir þessu hér í Grindavík og
nú þegar hefur komið til fjöldaupp-
sagna í Bláa lóninu, Icelandair og
Isavia. Aðallífæð okkar sjávarút-
vegurinn mun verða fyrir tjóni á
meðan flestir veitingastaðir út í heimi
eru lokaðir því þá lokast á sölu fersk
fisks. En sól mun rísa að nýju en
þangað til mun Grindavíkurbær að-
stoða eins og hægt er. Ný tækifæri
munu koma, ferskar hugmyndir,
og munum við leggjast í vinnu við
að skoða hvað við getum gert til að
efla nýsköpun, ekki vantar lóðir eða
orkuna.
Meðal aðgerða sem við höfum gripið
til hjá Grindavíkurbæ, lögaðilar geta
óskað eftir fresti á greiðslu fast-
eignagjalda vaxtalaust í 3 mánuði.
Á meðan skólastarf er skert þá lagði
Framsókn það til að nemendum sem
mæta í skólann sé tryggð máltíð og
mun Grindavíkurbær greiða fyrir
þær út apríl. Einungis verður greitt
fyrir þá daga sem börn mæta í leik-
skólann og leiga verður felld niður
hjá dagmæðrum í húsnæði bæjarins
svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru fyrstu
skrefin og bætt verður í ef þarf.
Á tímum þegar þrengir að kemur
svo bersýnilega í ljós hversu mikil
forréttindi það eru að tilheyra þessu
þjóðfélagi. Samvinna og samheldni
einkennir okkur sem þjóð og bæjar-
búa og kemur samtakamátturinn víða
fram og hafa undanfarnar vikur sýnt
okkur það. Við getum verið stolt og
þakklát fyrir það hvað fólkið okkar
er að leggja á sig til að við stöndum
sterk og upprétt þegar þessu lýkur.
Við tökum utan um hvort annað
þegar reynir á, nú er það erfitt, knúsin
og faðmlögin bíða í nokkrar vikur.
En við megum hreyfa okkur, þó að
sundlaugar og líkamsrækrarstöðvar
séu lokaðar og skipulagðar æfingar
liggja niðri, þá er þetta frábær tími
til að njóta þeirrar fegurðar og úti-
vistarparadísar sem Reykjanesið er.
Að lokum vil ég þakka þeim sem
starfa í framlínunni, allt okkar heil-
brigðisstarfsfólk, kennurum og
starfsfólki í grunn og leikskólum og
þeim sem sinna umönnunarstörfum.
Munum svo að hlýða Víði.
Sigurður Óli Þórleifsson
forseti bæjarstjórnar
Grindavíkur (B)
Árið 2020
Þegar tíu dropar
verða að 18 árum
Sérstakar aðgerðir strax
í atvinnumálum fyrir Suðurnesin
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Sjónvarpsperlur Víkurfrétta