Víkurfréttir - 02.04.2020, Blaðsíða 10
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg.
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur síðustu daga staðið
fyrir birtingu á Ljósmynd dagsins á fésbókarsíðu safns-
ins. Byggðasafnið hefur yfir að ráða mjög stóru og
áhugaverðu myndasafni frá fyrri tíð. Síðasta föstudag
var það loðnan sem var til umfjöllunar.
Loðna (fræðiheiti: Mallotus villosus) er smávaxinn
uppsjávarfiskur sem heldur sig í torfum. Loðnan er algeng
í köldum og kaldtempruðum sjó á norðurhveli jarðar.
Stærstu loðnustofnar þar eru í Barentshafi og á Íslands-
miðum. Á sumrin er loðnan við íshafsröndina þar sem
hún étur dýrasvif. Stór loðna étur ljósátu og önnur smá-
krabbadýr. Afræningjar loðnu eru m.a. hvalir, selir og
þorskur. Loðnan hrygnir á sandbotni og við sandstrendur
2-6 ára og drepst yfirleitt að lokinni hrygningu.
Hrygna nær allt að 20 sm lengd og hængur verður allt
að 25 sm langur. Þegar mikið er af síld í Barentshafinu
virðist það hafa neikvæð áhrif á loðnuna, sennilega bæði
vegna samkeppni um æti og vegna þess að síldin étur
loðnuhrogn. (Heimild: Wikipedia).
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, sagði að sumar- og haustvertíðin hafi gengið
fremur illa allt frá árinu 1988. Hann sagði ennfremur að
frá því að farið var að fylgjast skipulega með loðnunni
árið 1966 hafi komið lægðir í stofninn á 8 10 ára fresti.
(Heimild: Morgunblaðinu 1. febrúar 1997).
En eins og myndir dagsins bera með sér þá hefur einn-
ig gengið vel með loðnuna. Og þar má sjá bræðsluna og
einnig alla mengunina sem kom frá henni yfir bæinn.
Svo mikið var af loðnu að henni var jafnvel sturtað á
Patterson til geymslu þar til losnaði pláss í geymsluþróm
fiskimjölsverksmiðjunnar á landamærum Njarðvíkur
og Keflavíkur. Dekkhlaðnir loðnubátar á leið í land og
bræðsluskip úti á víkinni fyrir framan Keflavík má einig
sjá á myndunum.
Loðnan í Keflavík og Njarðvík
Byggðasafn Reykjanesbæjar birtir Ljósmyndir dagsins
FS-ingur vikunnar:
Ætlar að
verða sál-
fræðingur
Hún hræðist með alls-
konar pöddur og hefur
gaman af öllu. Rebekka
Ýr er 16 ára FS-ingur vik-
unnar að þessu sinni.
Hvað heitir þú fullu nafni?
Rebekka Ýr Eyþórsdóttir.
Á hvaða braut ertu?
Er ekki viss.
Hvar býrðu og hvað ertu gamall?
Í Vogunum og er 16 ára.
Hver er helsti kosturinn við FS?
Vinir mínir.
Hver eru áhugamálin þín?
Allt!
Hvað hræðistu mest?
Allar pöddur.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna?
Vala á tiktok.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Halldór Már.
Hvað sástu síðast í bíó?
Joker.
Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?
Orkudrykki.
Hver er helsti gallinn þinn?
Enginn metnaður.
Hver er helsti kostur þinn?
Ég hef gaman af öllu.
Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í
símanum þínum?
Tiktok, insta og snap.
Hverju myndir þú breyta ef þú værir
skólameistari FS?
Hafa meira að gera tengt félagslífinu.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur
í fari fólks?
Húmor.
Hvað finnst þér um félagslífið í
skólanum?
Ekki nógu gott.
Hver er stefnan fyrir framtíðina?
Að verða sálfræðingur.
Hvað finnst þér best við að búa á
Suðurnesjum?
Fólkið.
Uppáhalds?
- kennari: Haukur.
- skólafag: Stærðfræði.
- sjónvarpsþættir: Suits eða Fresh prince.
- kvikmynd: Notebook.
- hljómsveit: One Direction.
- leikari Michael B. Jordan.
UMSJÓN
Ásta Rún Arn
mundsdóttir
og Birgitta R
ós Jónsdótti
r