Víkurfréttir - 02.04.2020, Blaðsíða 11
11 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg.
Dagbók úr Ásgarði
VÍKURFRÉTTIR FENGU NOKKRA SUÐURNESJAMENN TIL AÐ HALDA DAGBÓK Í EINN DAG
Það er vor í lofti, tjaldurinn er kominn
og frést hefur af lóunni.
Snjórinn er að hörfa og undan sköfl-
unum koma grænar nálar í ljós.
Grágæsin er tíður gestur hér í hög-
unum og kemur jafnvel alveg upp að
húsinu okkar að kroppa í sig nálarnar
í blómsturgarðinum.
Það fer að styttast í sauðburð og um
að gera að nýta tímann til að undirbúa
allt fyrir kindurnar og lömbin þeirra
svo allt gangi sem best.
Búið er að þrífa burðarstíurnar og sótt-
hreinsa vatnsrennuna þeirra og bara
eftir að fylla stíurnar af þurrum hálmi.
Kindurnar voru rúnar um daginn og
nú sést berlega hverjar eru með þrjú
lömb í sér.
Allar voru þær sónaðar í febrúar og
eru þær sjö sem ganga með þrjú lömb,
þrjár sem ganga með eitt og restin
er tvílemd.
Það er deginum ljósara að ég þarf að
vera með pelann á lofti að gefa ábót
þeim þrílembingum sem á honum
þurfa að halda.
Jafnvel enda ég með heimalninga
sem getur verið ansi mikil vinna en
oft á tíðum skemmtilegt en krefjandi
verkefni.
Fyrstu lömbin eru væntanleg í lok
apríl.
Bestu kveðjur úr sveitinni og farið
vel með ykkur!
Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir.
Lífið í sveitinni
Systurnar Elín Rós og Ljósbrá Mist Bjarnadætur
ætla að bjóða upp á rafrænt námskeið í jóga
og styrk heima í stofu og ætla að láta 60% af
innkomunni renna til Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja.
„HSS er ekki tækjum og tólum búið til að geta
sinnt COVID-19 sjúklingum og því höfum við
systur ákveðið að leggja okkar af mörkum. 60%
af innkomu okkar af þessu námskeiði mun fara
í það að útbúa herbergi á HSS fyrir COVID-19
sjúklinga. Í þetta herbergi þarf monitora, bþr mæla
og allt til alls. Það er nánast ómögulegt fyrir HSS að
halda úti þeirri þjónustu sem nú er gert án styrkja
og því finnst okkur það vera samfélagsleg skylda
okkar að hjálpa til eins og við mögulega getum.
Við þurfum á ykkur að halda svo þetta geti orðið
að veruleika og vonandi að sem flest ykkar séuð
tilbúin að leggja þessu verkefni lið,“ segja þær Elín
Rós og Ljósbrá Mist á Facebook-síðu sinni þar sem
þær auglýsa námskeiðið en það heitir Styrkur og
Jóga heima í stofu.
Þær hafa verið á fullu að taka upp efni á nám-
skeiðin en alls verða tólf tímar settir inn á lokaða
grúbbu á Facebook. Námskeiðið kostar 2500 kr.
en þátttakendur mega greiða hærra ef þeir vilja
en eins og fyrr segir mun 60% af tekjunum fara
til HSS vegna COVID-19.
Jóga heima í stofu
til styrktar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Systurnar Elín Rós og Ljósbrá Mist