Víkurfréttir - 02.04.2020, Blaðsíða 13
13 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg.
Er nýja heimilið þitt á
Ásbrú kannski hjá okkur?
Skoðaðu lausar leigueignir á heimavellir.is
allt&ekkert
Saknar smá
enska boltans
— segir Guðmundur Bjarni Guðbergsson.
Hvað er það fyrsta sem þú gerir eftir
að þú vaknar á morgnana?
Að opna augun og reyna að muna hvaða
dagur er í dag.
Hlustarðu á útvarp eða eitt og eitt
lag á Spotify?
Yfirleitt hlusta ég bara á útvarp, en
kemur fyrir að kveiki á 80‘s lista á
Spotify.
Hvað raular þú eða syngur í sturtu/
baði?
Ég er það laglaus að ég get ekki hlustað
á sjálfan mig syngja.
Hvaða blöð eða bækur lestu?
Ég er ansi latur að lesa, síðasta bók
sem ég las, var Ferðin til tunglsins eftir
Hergé. Ég las nýju þýðinguna og var
að reyna að bera hana saman við eldri
þýðinguna.
Uppáhaldsvefsíða?
Itsyourturn.com. Þetta er leikjasíða þar
sem ég og nokkrir vinir mínir byrjuðu
að tefla á fyrir um 20 árum síðan og við
höfum haldið því í öll þessi ár.
Ertu að fylgjast með einhverjum
þáttum á Netflix eða öðrum streymis-
veitum?
Nei, ég er miklu meira fyrir bíómyndir,
en það er alltaf verið að segja mér hvaða
þætti ég ætti að horfa á. Núna er dóttir
mín að hóta því að flytja ekki af heiman
fyrr en ég er búinn að sjá Tiger King:
Murder, Mayhem and Madness. Þannig
að ég mun sennilega horfa á það núna
í samkomubanninu.
Uppáhaldskaffi eða te?
Ég drekk mjög sjaldan te og kaffi drekk
ég bara ef ég fæ viskí út í og þá er ég
nokkuð sama um hvaða tegund kaffið
er.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
horfðir á nýlega í sjónvarpi?
Eftir að samkomubannið kom á, þá hef
ég eytt meiri tíma fyrir framan sjón-
varpið og finnst dagskráin ágæt. Þó ég
sakni smá enska boltans. Það er samt
einn þáttur sem ég finnst hafa slegið í
gegn, það er Heima með Helga. Ég hef
a.m.k. verið límdur við kassann síðustu
tvö laugardagskvöld að horfa á hann.
Hvað matreiðir þú ef þú vilt gera eitt-
hvað gott fyrir makann?
Ég elda eitthvað sem mér finnst gott.
Fjóla er alltaf svo ánægð, þegar ég er
saddur og sæll.
Draumafríið þitt eftir að COVID-19
verður yfirstaðið?
Þegar ástandið skánar, þá held ég að ég
verði ekki í miklu stuði til að ferðast. En
ég held að ég myndi vilja fara eitthvert
til að komast í sól og sjó. Væri samt
skemmtilegt ef það væri Karíbahafið
eða Indlandshafið.
Uppáhaldsverslun?
Aliexpress. Gott úrval af vörum sem ég
vissi ekki að ég þurfti og ég þarf ekki
að óttast að smitast af COVID-19 þar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Allir sjálfskipuðu sóttvarnasérfræðingar
sem skjótast upp kollinum þessa dagana
og vita allt betur en sóttvarnalæknir
og liðið hans.
Stóra fréttin síðustu daga sem ekki
tengist COVID-19?
Í raun þá eru 98% af öllum fréttum í dag
tengdar COVID-19 á einn eða annan
hátt. Stóra fréttin sem er að snerta mig,
eru jarðhræringarnar hérna á Reykja-
nesskaganum.
„Eftir að samkomubannið kom á, þá hef ég eytt meiri tíma fyrir framan sjónvarpið og
finnst dagskráin ágæt. Þó ég sakni smá enska boltans. Það er samt einn þáttur sem
ég finnst hafa slegið í gegn, það er Heima með Helga,“ segir Guðmundur Bjarni Guð-
bergsson.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Sjónvarpsperlur
Víkurfrétta
Smelltu á myndskeiðið
til að horfa og hlusta