Mosfellingur - 04.06.2020, Qupperneq 30
Bjarnarganga
á Stöðvarfirði
Við vorum á Kirkjubæjarklaustri um helgina, ég, frúin og
sá yngsti ásamt góðum vinum
okkar. Þetta var ótrúlega notaleg
helgi. Góð samvera, leikir, spil,
útivera og magnað umhverfi. Ég fór
eftir helgina að pæla í því hvernig
jákvæðar tengingar ég hefði við hina
ýmsustu staði landsins. Rúllaði í
gegnum þann leik með sjálfum mér
að velja stað af handahófi og rifja
upp jákvæða og heilbrigða minningu
þaðan. Án þess að ofhugsa eða velja
staði sem enginn hefur komið til.
Hér eru nokkur sýnishorn: Ísafjörður – fjölskylduganga
upp í Naustahvilft; Akureyri – ganga
frá flugvellinum inn í bæ, beint á
Bláu könnuna í spínatböku og kaffi;
Hafravatn – fá að prófa uppblásið
SUP bretti hjá ókunnugum; Horna-
fjörður – útiæfing með góðu fólki
við apastigann fyrir neðan Hótel
Höfn; Vestamannaeyjar – ganga upp
á Heimaklett; Hvalfjörður – sjó-
sund við ryðgaða bryggju; Bifröst
– spretthlaup upp Grábrók; Esjan
– rösk ganga að Steini, hlaup niður
„hinum“ megin; ónefnd gil og gljúfur
– ævintýraferðir með ævintýrafólki;
Hengilssvæðið – heimagerður heitur
pottur með æskufélögum; Búðardal-
ur – fótboltaleikir á battavellinum í
stoppi á leiðinni á Strandir; Stöðvar-
fjörður – bjarnarganga hjá „Gangið
ekki á grasinu“ skilti; Sauðárkrókur
– körfuboltakeppnisferðir; Djúpavík
– kaffi í fjöruborðinu. Þetta eru bara
nokkur dæmi, ég hefði getað haldið
lengi áfram. Ég komst að því að ég
get tengt einhverja jákvæða upplifun
við alla, leyfi ég mér að fullyrða, staði
sem ég hef komið á. Bæði á Íslandi
og erlendis.
Það sem svona æfingar/leikir gera fyrir mann er að fylla mann
þakklæti. Þakklæti fyrir allar þessar
góðu minningar. Að hafa fengið og
tekið þátt í að búa þær til. Njóta
þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Við bjuggum til nýjar
svona minningar
á Klaustri um
síðustu helgi. Þær
fara í minninga-
bankann með
hinum. Og ég á
eftir að búa til
margar nýjar með
mínu fólki í ár og
komandi ár. Njót-
um ferðalagsins!
HeilSumolar gaua
- Aðsendar greinar30
www.fastmos.is
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is Lau, Sun : 16.30 – 20.30
Y A M
2 7 0 M o s f e l l s b æ
yamrestaurant@gmail.com
Allur matur er eldaður eftir
pöntun og því er enginn matur
tilbúinn fyrirfram. Þar af
leiðandi er alltaf allavega
10 mínútna bið eftir matnum
stundum þegar mikið er að
gera getur því biðin verið löng.
w w w . y a m . i s
Nýr Opnunartími
Offer of the month
THAI FOOD RESTAURANT
Y A M
THAI FOOD RESTAURANT
Tilboð mánaðarins
.............
1.MASSAMAN W/Chicken or Tofu
17.00 – 20.30
K j a r n a , Þ v e r h o l t 2
1,990.kr
..............
2.PAD THAI
coconut milk, potato and peanuts.
noodles with chicken, egg and peanuts.
with chicken, egg, broccoli and onions
chicken with chili, onion and basil
3.FRIED RICE
4.KRA PROW chili and basil
5.SWEET AND SOUR
pork, cucumber, pineapple, onion, paprika
Nr 1, 4 and 5 rice include
You never know
If you never try !
S: 552 - 66 - 66
Manneskjan er félagsvera. Fólki
sem býr við langvarandi félagslega
einangrun er hættara við ýmsum
líkamlegum kvillum og verri heilsu
en öðrum. Félagsskapur, má því
segja, er því lýðheilsumál. Félags-
leg einangrun á sér gjarnan erfiðan
fylgifisk: Einmanaleikann.
Nú á tímum COVID-19 eru
margir að upplifa einangrun í fyrsta sinn og
eiga erfitt með að takast á við tilfinningarn-
ar, streituna og þá vanlíðan sem getur fylgt
því. Sjálfsefi, kvíði og erfiðar hugsanir geta
leitað á fólk. Það er eðlilegt að eiga erfitt
með að takast á við aðstæðurnar, við höfum
fæst þurft að gera þetta áður.
Einmanaleiki er ekkert til að skammast
sín fyrir, við getum öll upplifað hann. Til
allrar hamingju er ástandið tímabundið
fyrir flesta. Því miður er það þannig að
sumir þekkja aðstæðurnar alltof vel og hafa
glímt við slíkt í lengri tíma. Félagsleg ein-
angrun og einmanaleiki eru allt of algeng
og fylgja fólki á öllum aldri í öllum kimum
samfélagsins.
Á meðan við sjáum fólk fjalla um áskor-
anir sem fylgja því að vinna heima með alla
fjölskylduna og börnin í kringum
sig þá eru margir sem búa einir og
hafa ekki þann félagsskap í kring-
um sig. Að búa einn og vinna að
heiman, hafa lítil sem engin tengsl
við vinnufélagana eða fólkið sem
maður hittir annars oft í viku í lík-
amsrækt eða öðrum tómstundum.
Þarna skiptir miklu máli að átta sig
á því að það er eðlilegt að finna fyrir erf-
iðum tilfinningum í einangrun og þessum
óeðlilegu aðstæðum.
Það skiptir öllu máli að átta sig á því að
þetta ástand tekur enda og á meðan getum
við öll leitað eftir aðstoð, tengt okkur við
félagsskap, leitað til Hjálparsíma Rauða
krossins 1717 og fengið síma- eða gönguvin
hjá Rauða krossinum til að spjalla við.
Við berum öll ábyrgð á því að gera það
sem við getum til að sýna náunganum
kærleik og eftirtekt. Við eigum öll erindi og
skiptum öll máli í samfélaginu. Fólk sem
fer nú út að ganga: Takið hvert eftir öðru,
horfið á fólk, heilsið, brosið hvert til ann-
ars. Allir þessir litlu hlutir sem kosta okkur
ekki neitt gera samt svo ótrúlega margt til
að bæta samskipti og samfélagið. Rétt eins
og við erum öll almannavarnir og öll barna-
vernd, þá erum við öll mikilvægur hluti af
samfélaginu sem við byggjum saman.
Á meðan faraldurinn er enn viðloðandi eru
margir kvíðnir, hræddir og smeykir við að fara
út úr húsi. Á meðan býður Rauði krossinn
fólki að fá símavin eða gönguvin. Símavinir
eru sjálfboðaliðar sem hringja daglega, eða
tvisvar í viku, í fólk sem þess óskar.
Á nokkrum vikum hefur fjöldi þátttak-
enda í símavinunum margfaldast, margir
eru tímabundið í einangruðum aðstæðum
á meðan aðrir glíma við það til lengur.
Rauði krossinn kemur til móts við þarfir
hvers og eins. Fólk sem vill gjarnan fara
út að ganga, en vill síður gera það eitt eða
þarf smá hvatningu til að fara, getur fengið
gönguvin. Þá miðast samveran við að farið
sé í göngutúr einu sinni í viku og spjallað.
Hægt er að óska eftir tímabundnum
göngu- og/eða símavin á kopavogur@
redcross.is og það má líka halda því opnu
hvort maður vill e.t.v. halda áfram að hitta
sjálfboðaliða þegar COVID-19 takmörkun-
um verður aflétt.
Silja Ingólfsdóttir,
deildarstjóri Rauða krossins í Kópavogi
Félagsskapur er lýðheilsumál