Spássían - 2012, Blaðsíða 2

Spássían - 2012, Blaðsíða 2
 2 Benidorm hugans Sumarblöð Spássíunnar eiga það til að hlaupa út undan sér og taka stefnuna á stuðlægar slóðir, þar sem ofurhetjur, kynusli og íslenskir varúlfar ráða ríkjum, þannig að okkur ritstýrunum líður stundum eins og við séum hálfvilltir puttaferðalangar á trylltri ferð til Benidorm hugans. Sem betur fer reynist ferðalagið sjaldnast leiðinlegt, þótt ferðalangarnir séu stundum nokkuð slæptir að tjalda því sem til er í lok dags – og súlurnar hafi orðið eftir suður í Borgarfi rði. Á slíkum stundum má halla sér að viskuorðum nokkurra höfunda sem fi nna má hér aftar í blaðinu undir titlinum „Listin að ferðast“ og minna okkur á að ferðin sjálf reynist oftar en ekki mikilvægari en áfangastaðurinn. Á sumrin fl ýjum við öryggi hversdagsins og leitum í meiri spennu. Lesendur sækja í sögur af ást og glæpum, því sem helst fær fi ðrildin til að fl ögra af stað í maganum, eins og fram kemur í grein Helgu Birgisdóttur um sumarbækur ársins, þótt það þurfi greinilega ekki að þýða að þær fylgi allar sömu formúlunni. Nokkuð er um nýjar íslenskar bækur þetta sumarið, af afar ólíkum toga, og augljóst af viðtökunum að fjölbreytileikinn fellur í góðan jarðveg. Grasrótin er því mikilvæg, eins og Bjarni Harðarson bendir á í viðtali um Sunnlenska bókakaffi ð á Selfossi. Svo eru það höfundarnir sem eyða björtu sumarnóttunum í að koma lokapunkti á jólabókina sína. Hildur Knútsdóttir vinnur að nýrri fantasíu fyrir börn en hún reynir í verkum sínum m.a. að ögra hefðbundnum kynjahlutverkum. Auður Jónsdóttir rithöfundur ljóstrar því upp í aðalviðtali blaðsins að hún muni í næstu bók sinni fara á enn persónulegri slóðir en áður - og fi nnist hún spila svolítið djarft. Hin fullkomna blanda að listaverki, eins og góðu sumarfríi, er efl aust í fl estra huga örugg og áhættusöm í senn, og þannig upplifi r Þorgeir Tryggvason leikhúsgagnrýnandi Spássíunnar sýningar Nemendaleikhússins í gegnum tíðina. En eftirminnilegustu fríin og listaverkin verða þó alltaf þau þar sem tefl t er á tæpasta vað. FJÖLBREYTT UMRÆÐA lifandi menning Háskóli Íslands Háskólatorgi S. 570 0777 - Háskólinn í Reykjavík Sólinni Nauthólsvík S. 599 6469 boksala@boksala.is www.boksala.is

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.