Spássían - 2012, Blaðsíða 34
34
„ÉG STELST í þessi verkefni á morgnana og samhliða
afgreiðslu þegar það eru dauðir tímar“, segir Bjarni.
Bókaútgáfa hans hófst árið 2001 þegar hann skrifaði
bókina Landið, fólkið og þjóðtrúin sem fjallar um þjóðtrú
tengda landinu í Árnessýslu en fékk engan útgefanda. Hann
afréð því að gefa bókina út sjálfur og útkoman er verk
með gríðarlegum fjölda litmynda og upplýsinga þar sem
staðsettir eru álagablettir, draugagjár, huldufólksklettar og
fl eira, með dyggri aðstoð heimamanna. „Ég var nú eitthvað
ragur við þetta svo ég prentaði ekki nema 1250 eintök. Og
seldi þau öll upp á einu ári. Mér fannst nú dómgreindin hjá
bókaútgefendum sem þorðu ekki að gefa þetta út ekki allt
of mikil því þetta varð góður aukapeningur. Nú langar mig
til að setja þessar upplýsingar á netið. Það væri skemmtilegt
að hafa þær í gagnvirkum miðli þar sem menn gætu bætt
við því sem þeir vita. Ég hef líka verið með sams konar verk
um Rangárvallasýslu í vinnslu undanfarin tíu ár. Pólitíkin
eyðilagði náttúrlega allt, maður hætti öllu af viti, en ég er
að byrja á því verki aftur.“
„Útgáfur eiga að
vera margar og með
mismunandi sýn;
grasrótarútgáfur,
höfundaútgáfur og fram
eftir götunum. Þetta
hefur með ákveðið
tjáningarfrelsi og
ritfrelsi að gera. Það er
auðvitað menningarklíka
í landinu.“
Geymsla Sunnlenska bókakaffi sins er
smekkfull af bókum eins og búðin sjálf
fjölbreytt
mikilvæg
Eftir Auði Aðalsteinsdóttur
SUNNLENSKA BÓKAKAFFIÐ LIGGUR
VIÐ ERILSAMA AÐALGÖTU SELFOSS
EN ÞEGAR INN ER KOMIÐ RÍKIR ÞAR
AFSLAPPAÐ ANDRÚMSLOFT INNAN UM
GAMLAR OG NÝJAR BÆKUR, TÍMARIT
OG BLÖÐ. BJARNI HARÐARSON REKUR
STAÐINN ÁSAMT EIGINKONU SINNI, ELÍNU
GUNNLAUGSDÓTTUR, OG STENDUR
SJÁLFUR BAK VIÐ BÚÐARBORÐIÐ MILLI ÞESS
SEM HANN FÆRIR GESTUM VEITINGAR
OG SPJALLAR VIÐ ÞÁ UM HEIMA OG
GEIMA. BJARNI SEGIST ALLTAF HAFA HAFT
GAMAN AF GESTGJAFAHLUTVERKINU EN
Í LAUSUM STUNDUM VINNUR HANN AÐ
BÓKAÚTGÁFU OG STARFRÆKIR BÓKSÖLU
Á NETINU.
fl óra