Spássían - 2012, Blaðsíða 9
9
LISTIN
að ferðast
Ég hugsa að það sé einmitt þetta
sem farþegi á að gera, fara frá einum
stað til annars, en það einfaldar ekki
málið. Maður getur lítið annað en
óskað honum góðs gengis og vonað
að hann hafi einhverja glóru um hvað
sé að gerast með hann, án þess að
hann ráði nokkru um það.
(Richard Brautigan, Ógæfusama konan.
Ferðalag, þýð. Gyrðir Elíasson, Uppheimar,
2006, 40)
Ferðalög eru yfirleitt hreyfing í átt að
ákveðnum áfangastað. Ferðin sjálf er
þá aðeins leið til að ná því markmiði
og oft full af spennu og óróleika
sem endar í létti þegar takmarkinu
er náð. Ferðin frá einum stað á
annan verður þó oft að einhverju
öðru og meira. Listamenn líta
gjarnan á sig sem rótlausa flakkara
sem eiga hvergi heima og horfa á
heiminn með gests auga. Ferðalagið
verður ekki einungis að lífstíl heldur
lífsheimspeki og hin sífellda hreyfing
að upphöfnu tilveruástandi.