Spássían - 2012, Blaðsíða 44

Spássían - 2012, Blaðsíða 44
 44 „TESSA LOU FIX ÓLST UPP Í MILLJÓNABORGINNI SEM ALDREI SEFUR, EN EINNIG Í GÖMLU HÚSI RÉTT VIÐ DRAUGABÆINN SHARON SPRINGS Í NEW YORK-FYLKI. AÐ UPPLIFA SHARON SPRINGS ER EINS OG AÐ RÖLTA UM ÍSLENSKU LANDSBYGGÐINA; SJÁ EKKI NOKKURN MANN, EN FINNA SAMT ALLRA AUGU Á SÉR. HÚSIN ERU DRAUGAHÚS OG ÞARNA MÆTIR RAUFARHÖFN THE SHINING. DÁIN GLÆSIHÓTEL, DRAUGAR LÁTINS MIKILFENGLEIKA, STARA Á ÞIG MEÐ BROSTNUM AUGUM. EF ÞÚ KÍKIR INN SÉRÐU EINSTAKA KRISTALSLJÓSAKRÓNU HANGA ÚR LOFTINU, ÞRÍFÆTTA STÓLA OG BROTNA SPEGLA. Í ÞESSU ÞORPI SÁ ÉG TESSU FYRST, GANGANDI UM Á SUNDBOL OG LEIÐA NAKINN DRENG SÉR VIÐ HÖND. EFTIR NOKKUR ÁR ÞEKKI ÉG HANA BETUR, OG ÞÓ EKKI, EN REYNI AÐ VEIÐA UPP ÚR HENNI NOKKUR SVÖR UM LIST OG LJÓÐ, EINN NÍSTANDI KALDAN VETRARMORGUN Í CHELSEA. TESSA LOU fæddist í New York 1977 og fyrir utan nokkra vetur í Kaliforníu og Flórída, hefur hún búið þar alla sína ævi. Hún hefur unnið á öllum sviðum skapandi lista. Ritlist, ljósmyndun, collage, gjörningalist, stuttmyndir, þrykk og hönnun eru bara toppurinn á ísjakanum ef maður byrjar að skilgreina vinnu hennar. Hún hefur verið í samstarfi við málara, ljóðskáld og gjörningalistamenn og setið fyrir hjá öðrum myndlistarmönnum og -konum. Ekki má svo gleyma því að hún var stílisti fyrir hljómsveitarmeðlimi rokkhljómsveitanna Daddy og Blondie. „Ég vinn með hugtök sem kanna fegurð og ófyrirsjáanlegt myrkur, í stórfenglegum hlutum sem við sjáum dags daglega. Til dæmis tré og byggingar. Ég held að hið mikilúðlega og tignarlega, ára eilífðarinnar sem sveipast um þessa hluti, höfði til mín. Ég gæti verið á gangi með þriggja ára son minn og tekið eftir hversu stórar og yfirþyrmandi byggingarnar við götuna okkar eru þegar maður er jafn lítill og hann - en um leið fundið fyrir duttlungum og dulúð þeirra.“ „Ég varð sérstaklega heilluð af dómshúsinu í smábæ sem nefnist Knoxville í Iowa - faðir minn er fæddur og uppalinn þar - heilluð af öllu því sem það stendur fyrir í byggingarstíl sínum og í augum bæjarbúa; staðlaðar hugmyndir um hið góða og hið illa, réttlæti. Mismunandi sjónarhorn þess vöktu hjá mér skelfingu og það virtist gjörbreytast að nóttu til. Mér finnst gott að láta myndavélina leiða mig inn í slíkar sögur. Ég elska líka að nota þá vinnuaðferð þegar ég tek myndir af trjám. Myndin dregur eitthvað upp á yfirborðið sem ég sá ekki með beru auga. Ég er mjög heilluð af því hversu mennsk tré geta verið.“ „Ljósmyndir mínar eru bæði borgar- og náttúrudýrkun. Ég geri ráð fyrir að þetta komi frá tvöföldum bakgrunni mínum. Þrátt fyrir að vera alin upp í New York-borg eyddi ég líka hluta ársins í strjálbýlinu í norður New York-fylki. Ég elskaði að vera í sveitinni og jafnvel sem barn var ég meðvituð um þessa heljarmiklu gjá sem skildi að fólk í borg og sveit, hvernig fólk hagaði lífi sínu. Ef til vill spilar þar inn í að pabbi minn ólst upp á bóndabæ í miðvesturríkjum Bandaríkjanna og kom til New York-borgar til að verða rithöfundur. Bóndabæir, lækjarsprænur, hlöður, grátvíðir, huldir epla-aldingarðar og húsbýlabyggð og fátækt spila á móti hinum óneitanlega tilkomumikla New York- sjóndeildarhring - fíkn og rokk og ról og fordómalaus fjölbreytni; milljónamæringar og snillingar, bæjarblokkir og þjóðfélagslegt óréttlæti.“ „Ég fór af stað með mína eigin fatalínu að hluta til vegna þess að mér líkuðu ekki valkostirnir sem voru í boði fyrir son minn. Ég var ekki hrifin af kynjaskiptingunni í fataúrvalinu - fótboltar og rendur fyrir drengi og bleikt myndavélin leiðir mig inn í sögurnar Eftir Þórdísi Aðalsteinsdóttur Ljósmyndir: Tessa Lou Fix

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.