Spássían - 2012, Side 10

Spássían - 2012, Side 10
 10 Lestrarupplifuninni er oft líkt við ferðalag. Í gegnum bækur kynnumst við nýjum stöðum, ólíkum viðhorfum og framandi hugmyndum. Þegar jeg les bækur góðra höfunda, sem birta eðlilegar og sannar mannlífsmyndir, hvort sem þær eru nýjar eða fleiri alda gamlar, þá er mjer sem jeg heyri fótatak þúsund pílagríma, sem allir ganga sama veginn, brautina miklu, sem liggur út úr fornaldarmyrkrinu yfir nútíðina og inn í ómælisgeim framtíðarinnar. — Öll erum við með í þeirri fylgd; öll lútum við sömu lögum: fæðumst, stríðum og deyjum. Öll hefjum við augu okkar frá jörðu og stefnum á ljósin, sem tendruð eru út um alla geima. (Aðalbjörg Benediktsdóttir, „Erindi“, Hlín, 1927,108-109) Ferðin í sjálfu sér er því vinsælt hugðarefni höfunda; þetta millibilsástand þar sem allt er á hreyfingu, ekkert öruggt og spenna í lofti. Slíku ástandi fylgir frelsi frá hversdeginum – og möguleiki á nýrri tegund innsæis: Ætli maður hugsi mest á siglingu? Eða á ferð yfirhöfuð? Ég var einmitt að lesa þessi orð hans Ugga í Fjallkirkjunni: Það var vegna heimilisleysis míns, að ég hafði farið að hugsa. Sá sem hugsar er hvergi lengur sveitfastur, landbundinn né safnaðarmaður. Hann stendur utan við. Hann er einn sér. Hann er frjáls sem fuglinn. (Oddný Eir Ævarsdóttir, Jarðnæði, Bjartur, 2011, 148) Slíkar hugmyndir fá gjarnan á sig trúarlegan blæ og bandarísku bítskáld 6. áratugar síðustu aldar, sem gerðu ferðalagið að heimspeki sinni, sóttu mikið í Búddisma: Ég er meiri hræsnari núna og dálítið þreyttur og kaldhæðinn. [...] En þá trúði ég virkilega á gjafmildi og góðmennsku og auðmýkt og kapp og hlutlausa ró og visku og alsælu, og ég trúði að ég væri gamaldags bhikku í nútímafötum á vafri um heiminn (yfirleitt hinn gríðarstóra þríhyrning New York til Mexíkóborgar til San Francisco) í því augnamiði að snúa hjóli hinnar Sönnu Merkingar, eða Dharma, og öðlast sjálfur verðleika sem framtíðar Búdda (Sá sem er vaknaður) og sem framtíðarhetja í Paradís. (Jack Kerouac, The Dharma Bums, London, Flamingo, 1994, 8) Slíkt ferðalag endar reyndar furðu oft í afskekktum fjallakofa þar sem sögupersónan nær upphöfnu ástandi – eða gengur hreinlega af vitinu, eftir því hvernig á það er litið – í einsemdinni í náttúrunni. Þær hugmyndir eru vitanlega af mun eldri meiði, sækja til dæmis til ritsins Walden eftir Henry David Thoreau um miðja 19. öld, og skjóta alltaf reglulega upp kollinum. Ferðin tekur því alltaf enda, jafnvel hjá þeim sem hafa kosið sér líf flakkarans. En þangað til má reyna að gleyma áfangastaðnum og njóta ferðarinnar.

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.