Spássían - 2012, Blaðsíða 14

Spássían - 2012, Blaðsíða 14
 14 SUMARBÆKUR eru einnig ólíkar jólabókum að því leyti að fólk kaupir þær frekar handa sjálfu sér en öðrum og þær enda síður sem hluti af bókaveggfóðri í stássbókaskápnum inni í stofu. Hér er fjallað um nokkrar sumarbækur ársins 2012. „Dæmigerðar“ sumarbækur fá sitt rými; bækur sem gott er að lesa á sólarströnd eða kaffihúsi á Spáni þótt raunveruleikinn sé sá að lesandinn endar oftar uppi í sófa inni í sumarbústað á meðan úti er rok og rigning. En það koma ekki eingöngu út hreinræktaðar ástar- og/eða glæpasögur þetta sumarið. Sumar bækur sumars eru öðruvísi og um þær verður líka fjallað. ÍSLENSK ÁST - FRUMSAMIN OG ENDURTEKIN Korter Sólveigar Jónsdóttur gerist í Reykjavík; mitt í kreppunni, kuldanum og slabbinu. Korter er kaldranaleg og svolítið drungaleg nútímasaga í skvísulegum umbúðum. Aðalsöguhetjurnar fjórar, þær Silja, Hervör, Mía og Karen, eru ekki sérlega kátar því þær standa allar frammi fyrir því að þurfa að endurmeta líf sitt og „gera eitthvað“. Óhamingju þeirra má í meginatriðum rekja til kærasta sem s u m a r B Æ K U R sumars SUMARBÓKAFLÓÐIÐ ER NOKKUÐ ÓLÍKT JÓLABÓKAFLÓÐINU. ÞAÐ EINKENNIST SJALDNAST AF VIÐHAFNARÚTGÁFUM Á HEIMSBÓKMENNTUNUM Í GYLLTUM HARÐSPJALDA KÁPUM. FREKAR ER BOÐIÐ UPP Á HANDHÆGAR OG LITRÍKAR KILJUR, AFÞREYINGARBÆKUR UM LOKKANDI ÁSTARLÍF, HRESSANDI MORÐ OG MISKUNNARLAUSA GLÆPONA. Eftir Helgu Birgisdóttur

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.