Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 4
Ljósmynd: Björn Erlingsson
Ætla framboðin að rétta hlut öryrkja?
Þegar þessi grein er skrifuð er undirbúningur í fullum gangi fyrir opinn fund Öryrkja-
bandalags íslands (ÖBÍ) 13. apríl um kjör öryrkja með þeim framboðum til Alþingiskosninga,
sem bjóða fram á landsgrundvelli. Fulltrúar framboðanna voru beðnir um að svara spurn-
ingum um hvernig þeir ætla að bæta kjör öryrkja á komandi kjörtímabili.
Boðsbréf voru send öllum framboðum sem hafa
boðið fram á landsvísu og komnir eru með lista-
bókstaf. Með boðsbréfinu fylgdu fimm spurningar
varðandi kjaramál öryrkja sem Kjarahópur ÖBÍ tók
saman. Framboðin voru beðin um að svara spurn-
ingunum skriflega og senda til ÖBÍ fyrir 3. apríl og
sendu ellefu framboð inn svör.
Hægt er að sjá bréfið í heild með spurningunum
á vef ÖBÍ www.obi.is/utgafa/frettir/nr/1334
Hér eru birt svör framboðanna við fyrstu spurn-
ingunni. Svörum er raðað í stafrófsröð eftir fram-
boðum. Hægt er að sjá öll svörin á vef ÖBÍ.
Styður þitt framboð að kjara- og réttinda-
skerðingar lífeyrisþega, sem innleiddar voru
árið 2009 verði afturkallaðar og leiðréttar
afturvirkt? Ef já, hvernig og hvenær?
Alþýðufylkingin
Já við styðjum það og teljum að leiðréttingin geti
átt sér stað strax með ákvörðun Alþingis í formi
sérstakra laga.
Björt framtíð
Björt framtíð vill bæta kjör lífeyrisþega eftir öllum
þeim leiðum sem tiltækar eru. Framboðið getur
hins vegar ekki tekið afstöðu til spurningar sem
þessarar, til útfærslu og dagsetninga, án þess að
vita hver kostnaður er og hvernig honum yrði
mætt. Annað væri óábyrgt. Framboðið er þó allt
af vilja gert. Einnig er hugsanlegt að kjarabótum
megi ná eftir öðrum leiðum en að afturkalla þær
breytingar sem gerðar voru árið 2009, t.d. með því
að klára endurskoðun á almannatryggingakerfinu
og koma kjarabótum þannig til leiðar í gegnum
breytingar á kerfinu öllu, sem væru þá til þess
fallnar að bæta kjör þeirra efnaminnstu og gætu
jafnframt haft það að augnamiði að auka virkni
öryrkja á vinnumarkaði og þar með tækifærum til
tekjuöflunar.
Dögun
Já, Dögun gerir það. MargrétTryggvadóttir, þing-
maður og oddviti Dögunar í Suðvestur-kjördæmi
hefur þegarflutt þingmál sem leiðréttir skerðing-
arnar: www.althingi.is/altext/141 /s/0573.html. Þá