Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 11

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 11
Freyja Haraldsdóttir, framkvæmdastýra freyja@npa.is, www.npa.is * miðsjOðin NPA miðstöðin Samvinnufélag í eigu og undir stjórn fatlaðs fólks NPA miðstöðin er samvinnufélag og er í eigu fatlaðs fólks og foreldra fatlaðra barna. Um er að ræða fólk með ólíkar skerðingar sem á það sameiginlegt að vilja sjá breytingar á þeirri hefðbundnu þjónustu sem í boði er fyrir fatlað fólk á íslandi. Samvinnufélagið er fyrsta sinnar tegundar á íslandi og hefur þann tilgang að styðja eigendur sína við að fá NPA samninga í gegnum sveitarfélög og annast umsýslu þeirra. í umsóknarferli um NPA samning veitum við leið- sögn og stuðning við framkvæmd sjálfsmats á þjónustuþörf ásamt því að fylgja fólki á þá fundi sem það kýs hjá sveitarfélögum. Þegar NPA samn- ingur er í höfn tekur umsýsluhlutverkið formlega við en í því felst m.a. að sjá um að borga aðstoð- arfólki laun, greiða launatengd gjöld, halda eig- endum upplýstum um notkun þeirra á NPA samn- ingnum og sveitarfélögum um stöðu þeirra NPA samninga sem miðstöðin sér um. Gengið hefur verið frá sérkjarasamningi við stéttarfélög innan Starfsgreinasambands íslands. Með því hefur verið skapaður rammi um launakjör aðstoðarfólks. Pólitísk barátta og erlent samstarf NPA miðstöðin hefur einnig það hlutverk að beina sjónum stjórnvalda að því að með lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar sé fötl- uðu fólki sköpuð bestu skilyrðin til að lifa sjálf- stæðu lífi. Jafnframt leggjum við þunga áherslu á að haft sé samráð við fatlað fólk með NPA. Grund- vallaratriði er að sérþekking okkar sé virt við ákvarðanatöku á öllum stigum stjórnsýslunnar. Vandasamt hefur verið að fá áheyrn en árangur hefur náðst og er NPA miðstöðin nú viðurkenndur umsagnaraðili í málum er snerta fatlað fólk hjá Alþingi og í sumum sveitarfélögum. Þar að auki höfum við setið sem áheyrnarfulltrúar í verkefna- stjórn um notendastýrða persónulega aðstoð á vegum velferðarráðuneytisins og lagt okkurfram um að hafa mótandi áhrif á innleiðingu NPA á ís- landi. í NPA miðstöðinni höfum við notið þeirrar gæfu að vera í miklum samskiptum við erlenda frumkvöðla á sviði NPA. Við teljum óþarft að finna upp hjólið og horfum mikið til samvinnu- félaga á Norðurlöndum. Við erum einnig með- limir í Evrópusamtökum um sjálfstætt líf (ENIL) og höfum sótt vinnufundi, ráðstefnur og stoltgöngur fatlaðs fólks. Þessi samvinna hefur verið okkur afar dýrmæt og nýtist okkur daglega. Öflug fræðsla og jafningjaráðgjöf Öflug ráðgjöf og fræðsla er hjá NPA miðstöðinni. Opnir fræðslufundir hafa verið haldnir um allt land, bæði á vegum miðstöðvarinnar og í sam- starfi við velferðarráðuneytið, ásamt fræðslu til minni hópa aðstoðarfólks. Ein sérstaða NPA mið- stöðvarinnarerað halda úti jafningjaráðgjöf fyrir fatlað fólk og aðstandendur þess, þar sem fatlað fólk veitir ráðgjöf til annars fatlaðs fólks. Ráð- gjöfin fer ýmist fram milli tveggja einstaklinga eða í hópum. Með jafningjaráðgjöfinni vinnum við að því að styrkja sjálfsmynd okkar sem fyrsta flokks þjóðfélagsþegna og öðlast hugrekki til að gera kröfur í eigin lífi. Mikilvægt er að komast í umhverfi þar sem hægt er að spjalla við fólk sem upplifir sambærilega hluti. Það hjálpar okkur að skilja að vandinn sem við tökumst á við er ekki bundinn skerðingu okkar, hann er ekki okkur að kenna og staðfestir að tilfinningaleg upplifun okkar á rétt á sér. Jafn- ingjaráðgjöfin er í raun besta leiðin til að fjarlægja hindranir markvisst í umhverfinu, berjast fyrir rétt- indum okkar og sitja við stjórnvölinn í eigin lífi. Um það snýst í raun starfsemi NPA miðstöðvar- innar.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.