Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 18

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 18
TÍMARIT ÖBÍ Viðtal: Margrét Rósa Jochumsdóttir Frelsi og kraftur Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir er búsett í Mosfellsbæ ásamt manni sínum Ragnari Gunnari Þórhallssyni. Þau eru bæði með NPA (notendastýrða persónulega aðstoð) samninga í dag og hafa upplifað miklar breytingar á lífi sínu í kjölfar þeirra. Kolbrún Dögg, sem er fötlunar- listakona og fötlunaraðgerðarsinni, svarar hér nokkrum spurningum. Hvenær fékkst þú NPA og hvernig gekk að fá samninginn? Ég fékk NPA 1. apríl 2012. Ferlið tók nokkra mán- uði en ég sótti um NPA haustið 2011. íframhald- inu var haldinn fundur í nóvember með fulltrúum sveitarfélagsins þar sem farið var yfir umsókn mína. Umsóknin fór síðan fyrir fjölskyldunefnd í lok janúar 2012 þar sem samþykkt var að veita mér svokallaðan notendasamning, þar sem sveit- arfélagið var ekki komið með reglur um NPA. Að lokum var gerður NPA samningur samkvæmt ný- settum og birtum NPA reglum sveitarfélagsins í árslok2012. Hvaða aðstoð færð þú með NPA? Ég fæ þá aðstoð sem ég tel mig þurfa í dag með NPA, hvort sem það er persónuleg aðstoð eða að- stoð við að sinna heimilisstörfum, erindum, list- sköpun, ferðalögum eða námi. Aðstoð við það sem ég þarf að gera og sinna sem ófatlað fólk tekur sem sjálfsögðum hlut. Hverju hefur NPA breytt fyrir þig? NPA hefur breytt ýmsu og ég finn mikinn mun á hugsun minni og líðan. Frelsi og kraftur eru orð sem mér detta helst í hug. Fyrstu mánuðina með NPA var eins og maður væri að sleppa úr fangelsi. Það er svo margt sem maður fer að gera og fram- kvæma og allt verður einhvern veginn auðveldara og minna mál en áður. Hverjir eru helstu kostir NPA að þínu mati? Engin yfirbygging eða forræðishyggja og helsti kosturinn er sá að ég vel aðstoðarfólkið mitt sjálf, hver er inni á mínu heimili og aðstoðar mig við persónulega hluti. Ég hef stjórn og ábyrgð á minni aðstoð og get hagað hlutunum eftir mínu höfði sem er mikil breyting frá því að hafa hefð- bundna stofnanaþjónustu, það er heimilishjálp, heimahjúkrun og liðveislu. Er eitthvað við NPA á íslandi sem þú myndir vilja breyta eða hafa öðruvísi? Ég myndi vilja samþætta reglur milli sveitarfé- laga um NPA þannig að fötluðu fólki verði ekki mismunað eftir búsetu. Að fötluðu fólki sé ekki heldur mismunað á þann hátt að tegund skerð- ingar eða aldur segi til um hvort það eigi rétt á NPA eða ekki. Nú er NPA enn tilraunaverkefni á íslandi, ert þú komin með öruggan samning til framtíðar eða ríkir einhver óvissa í þeim málum? Nei, en ég geri ekki ráð fyrir öðru en að samning- urinn verði endurnýjaður í haust. Svo verður að koma í Ijós hvernig málin þróast þegar tilrauna- verkefninu lýkurárið 2014 þegar löggjöf um NPA á að taka gildi. Ef samningurinn verður ekki endurnýjaður, hvað tekur þá við hjá þér? Barátta upp á líf og dauða um sjálfstætt líf eða landflótti. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir í 1. maí göngu 2012 Ljósmynd: Myndina tók Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir með aðstoðarkonu sinni Myrru Leifsdóttur.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.