Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 25

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 25
 rjkl < H ; !■ N . ■ Hr 1 .. 1 Ragnar Þór Ingólfsson 1 ^ Dögun fræðslu, til að sporna við mismunun af öllu tagi. Við erum reiðubúin til þess verks samanber svar við spurningu þess efnis hér að ofan. Húmanistaflokkurinn Með lögfestingu sáttmálans og breyttri forgangs- röð í þjóðfélaginu auk þess að stemma stigu við arðráni fjármálakerfisins þannig að losað verði um fjármagn m.a. í þessa þágu í þjóðfélaginu. Hægri grænir Öll óeðlileg mismunun á að vera bönnuð með lögum. Með iögleiðingu samningsins á það að vera tryggt gagnvart fötluðum. Píratar Með upplýstara samfélagi er hægt að stuðla að jafnara samfélagi. Viðhorfsbreyting verður í skólum og menntakerf- inu og Píratar stefna að því að efia menntakerfið, meðal annars í þessu skyni. Lýðræðisvaktin Kynna þarf fólki rétt sinn og minna alla á ábyrgð í því sambandi.Tryggja þarf með lögum og fjár- munum að fatlaðir sitji við sama borð og allir aðrir. Banni við mismunun þarf að fylgja eftir með því að hvetja fólk til að vakta réttindi fatlaðra og gæta þess að tekið verði á allri mismunun. Samfylkingin Með því að kynna sáttmálann og vinna að við- horfsbreytingu eins og tiltekið hefur verið hér að ofan auk þess að fylgja eftir þeirri vinnu sem hafin er við að undirbúa fullgildingu samningsins sem felst m.a. í því að ráðuneytin yfirfari löggjöf á sínu málefnasviði og leggi til breytingar til samræmis við samninginn. Samkvæmt verkefnaáætlun sem unnin hefurverið mun aðgerðaáætlun verða kynnt ríkisstjórn um miðjan apríl og frumvarp um fullgildingu lagtfram á komandi haustþingi. 25 Hægt er að skoða allar spurningarnar sem lagðar voru fyrir framboðin, svörin og framsöguerindi fundarins á vef ÖBÍ, slóðin er www.obi.is/utgafa/malthing/obi/nr/1322 Einnig er hægt að skoða myndbönd frá fundinum á vef ÖBÍ, slóðin er www.obi.is/ utgafa/ myndbond/fundir-obi-2013/ TÍMARIT ÖBÍ

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.