Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 13
að hægt yrði að forgangsraða umsóknum. Það
hefur því miður tekið þennan tíma, enda vildum
við vinna þetta í sátt við hagsmunaaðila.
Hvernig er fyrirhugað að mæta þörfum þeirra
umsækjenda sem ekki verður mögulegt að
veita NPA samning?
Reykjavíkurborg ber skylda til að mæta þörfum
fatlaðs fólks, hvort sem fólk tekur þátt í NPA eða
ekki. Mér þykir einsýnt að fólk sem eygði von um
NPA muni gera skýrar kröfur um bætta og aukna
þjónustu. Því verðum við að mæta eftir fremsta
megni. Með því að auglýsa eftir þátttakendum í
tilraunverkefnið um NPA byggðum við upp vonir
og væntingar hjá fólki sem við náum ekki að
mæta. Hins vegar fengum við upp á borðið óupp-
fylltar þarfir sem okkur ber að mæta og eru það
gríðarlega mikilvægar upplýsingar sem okkur ber
skylda til að nota í baráttu fyrir auknu fjármagni til
þessarar þjónustu. Metnaður Reykjavíkurborgar
og annarra sveitarfélaga í þjónustu við fatlaða
íbúa sína er mun meiri en áður var. Nú þurfum
við tekjustofn til að mæta þörfum íbúanna og
metnaði okkar. Ef við förum saman í það verkefni
verðurframtíðin betri en fortíðin.
Hver eru næstu skref í þessum máiaflokki hjá
Reykjavíkurborg?
Nú í aprílmánuði munu Þjónustumiðstöðvar
borgarinnar hafa samband við umsækjendur og
fara í það erfiða verkefni að forgangsraða um-
sækjendum. Ekki verður hægt að beita pólitískri
fyrirgreiðslu né poti, því matið verðurfaglegt og
ferfram á þjónustumiðstöðvum og í sérfræði-
teymi á Velferðarsviði. Þegar Ijóst er hverjir um-
sækjenda fá tilboð um þátttöku hefst vinna við
gerð samkomulags um vinnustundir. Þegar sátt
hefur orðið um þetta verður hægt að ganga til
samninga. Þar sem um tilrauna- og þróunarverk-
efni er að ræða verður unnið í nánu notendasam-
ráði og miðað að því að fá sem víðtækasta reynslu
af þjónustuforminu.
Fyrirhugað er að NPA þjónusta verði lögfest í
árslok 2014. Telur þú að þær tafir sem orðið
hafa á tilraunaverkefninu hafi þau áhrif að
lögfestingunni verði frestað?
samtaka og stjórnvalda taka talsvert lengri tíma í
undirbúningi en áætlanir hafa verið um.
Stella Kristín Víðisdóttir,
sviðsstjóri velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar
Hvernig hefur gengið að vinna að
tilraunaverkefninu um NPA þjónustu?
Vel hefur gengið að undirbúa tilraunaverkefnið
um NPA þjónustu en undirbúningsferlið hefur þó
tekið lengri tíma en fyrirséð var. Eftir að umsóknir
bárust og viðræður við umsækjendur fóru fram
kom í Ijós að þörf umsækjenda fyrir þjónustu var
meiri en sú þjónusta sem þeir höfðu fyrir. Útreikn-
ingar á fjármagnsþörf í verkefnið tóku því tíma
og gera þurfti umtalsverðar breytingar á upp-
haflegu regluverki til þess að Reykjavíkurborg
gæti tekið þátt í tilraunaverkefninu. Þessi vinna
var unnin í góðu samstarfi við hagsmunasamtök.
Mikill metnaður og áhugi hefur verið hjá öllum
þeim sem að verkefninu hafa komið en biðin eftir
afgreiðslu á umsóknunum hefur reynt á, bæði hjá
umsækjendum og sérfræðingum á velferðarsviði.
Hvernig hafið þið hugsað ykkur að
forgangsraða umsóknum um NPA þjónustu?
í Ijósi þess að um tilrauna- og þróunarverkefni
er að ræða sem háð er tilteknu fjármagni verða
þeir í forgangi fyrir þjónustu sem hafa einstak-
lingsbundnar þarfir sem ekki hefur verið hægt að
koma til móts við á annan hátt á þjónustumið-
stöðvum Reykjavíkurborgar. Einnig þarf að liggja
fyrir faglegt mat um að NPA sé hentugt form til
að mæta þjónustuþörfum þeirra einstaklinga.Til-
raunaverkefninu er ætlað að ná til fjölbreytts hóps
notenda sem býr við mismunandi aðstæður. Á til-
raunatímabilinu, sem áætlað er að standi út árið
2014, verður því leitast við að fá mismunandi teg-
undir samninga þannig að sem víðtækust reynsla
og þekking fáist úr verkefninu.
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að mæta þörfum
þeirra sem sóttu um og ekki mun nást að
semja við?
Ef ég er raunsæ tel ég nærri víst að lögfest-
ing frestist. Lögin þurfa að byggja á reynslu af
tilraunaverkefnum sem fara a.m.k. ári seinna af
stað en til stóð. Þá hefur það sýnt sig að lög sem
þurfa að vinnast í samráði notenda, hagsmuna-
Þegar Ijóst verður hverjir verða þátttakendur í
verkefninu mun þeim sem ekki fá slíkt tilboð verða
boðin hefðbundin þjónusta sem veitt er á þjón-
ustumiðstöðvum borgarinnar. Leitast verður við
að koma til móts við þarfir þeirra eins og kostur er.