Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Síða 22

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Síða 22
TÍMARIT ÖBÍ framtal. Þetta fyrirkomulag leysir ekki vanda þeirra sem ekki eiga fyrir upphafskostnaði. Stuðn- ingur þarf að ná til þessa hóps á þeim tíma sem lyfjakaupin fara fram.Tekjuviðmið reglugerðar- innar hefur verið óbreytt frá 2005 og hefur því ekki komið að notum nema í undantekningartil- vikum undanfarin ár. Fjárhæðir og tekjumörk hafa loksins verið uppfærð og taka gildi 4. maí næst- komandi, sama dag og nýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja. Veruleg hækkun tekjuviðmiða erforsenda þess að reglugerðin geti nýstfólki með lágar tekjurog mikinn heilbrigðiskostnað. kostnaður er óásættanlegur í Ijósi þess að greiðslugeta fólks hefur minnkað í kreppunni á meðan heilbrigðiskostnaður hefurfarið hækk- andi. Vert er að hafa í huga að lyf er aðeins einn útgjaldaliður fólks í heilbrigðiskerfinu en mjög margir þurfa einnig að greiða kostnað vegna ýmissa hjálpartækja sem fylgja lyfjagjöfum ásamt öðrum hjálpartækjum, sjúkraþjálfun, tal- og iðju- þjálfun, rannsóknum, læknisheimsóknum ásamt öðru. Setja þarf þak á heilbrigðiskostnað til að tryggja það að fólkfái þá þjónustu sem það þarf nauðsynlega á að halda. Uppbæturá lífeyri Önnur leið sem vísað er til, er uppbót vegna mik- ils lyfja- og lækniskostnaðarfyrir lífeyrisþega með lágar tekjur. ÖBÍ hefur margsinnis bent á að sífellt færri lífeyrisþegarfá greidda uppbótá lífeyri á sama tíma og lífeyrisþegum hefurfjölgað.Tekju- viðmiðið fyrir uppbótina, 200.000 kr. á mánuði fyrir skatt, hefur verið óbreytt í nokkur ár og því fá sífellt fleiri lífeyrisþegar, með engar eða mjög lágar aðrar tekjur en greiðslur almannatrygginga, ekki uppbót á lífeyri þrátt fyrir að uppfylla skilyrði um umtalsverðan lyfjakostnað. (Sjá grein íVefriti ÖBÍ2012,2. tbl.) Greiðsludreifíng? í frumvarpinu er jafnframt bent á að hægt verði að koma til móts við tekjulága einstaklinga með því að bjóða upp á greiðsludreifingu en engin leið er gefin upp í því sambandi. Ólíklegt er að apótekin séu tilbúin til að lána viðskiptavinum sínum fyrir lyfjakostnaði, enda eru þau ekki lána- stofnanir. Eina greiðsludreifingin sem mögulega kæmi til greina er með greiðslukorti með tilheyr- andi kostnaði. Mikilvægt er að hafa í huga að fjöl- margir tekjulágir einstaklingar, s.s. lífeyrisþegar, eiga ekki greiðslukort og því er þessi leið ekki raunhæffyrir þá. Minnka magn lyQa sem afgreitt er hverju sinni Að auki er lagt til í frumvarpinu að minnka magn lyfja sem afgreidd eru hverju sinni. Slíkt fyrir- komulag er bæði óhagkvæmara og kallar á að fólk þurfi að fara oftar í apótek. Ef fólk þarf að fá lyfin sín send heim þarf að greiða kostnað vegna þess. Að auki eru ekki öll lyf til í minni pakkningum. Hver er stefna stjórnvalda? Ljóst er að með nýju kerfi mun lyfjakostnaður lækka hjá sumum en aukast hjá mörgum. Meiri Stjórnvöld þurfa að svara eftirfarandi spurningum: • Hversu hátt hlutfall af tekjum fólks er eðlilegt að fari í lyfjakostnað og annan kostnað í heilbrigðis- kerfinu? • Hvernig á að standa vörð um fólk með mikinn kostnað að staðaldri sökum fötlunar eða heilsu- brests? Eins og áður sagði geta öryrkjar með mjög dýr lyf þurft að greiða allt að 48.149 kr. við fyrstu lyfja- kaup sem er ansi há upphæð þegar haft er í huga að öryrkjar sem búa einir og eru einungis með bætur almannatrygginga fá útborgað um kr. 180.000 á mánuði. Af þeirri upphæð er 48.149 kr. um 26,7% af útborguðum tekjum. Eins og gefur að skilja getur fólk þurft að fara til sérfræðilæknis og í rannsókn áður en komið er í apótekið til að leysa út lyf. Því getur enn hærra hlutfall ráðstöfun- artekna farið í heilbrigðiskostnað á stuttum tíma. Er það ásættanlegt í þjóðfélagi sem vill kenna sig við norrænt velferðarkerfi?

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.