Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Blaðsíða 24
Hvernig sér framboð þitt fyrir sér að uppfylla
sem best ákvæði sáttmálans um bann við
mismunun gegn fötluðu fólki á öllum sviðum
samfélagsins?
Alþýðufylkingin
Banni við mismunun þarf að fylgja eftir með
margvíslegum aðgerðum og á öllum sviðum.
Bæði með réttarfarslegri málafylgju og einnig
með aukinni meðvitund í samfélaginu. Mikilægt
er að tilvik mismununar séu viðurkennd og þeim
ekki sópað undir teppið. Það er alltaf fyrsta skrefið
til leiðréttingar, og viðhorfsbreytinga. Hvað réttar-
farið snertir má benda á að Alþýðufylkingin hefur
á sinni stefnuskrá að úrskurður í ágreiningsmálum
verði að kostnaðarlausu fyriraðila þannig að rétt-
arfarið ráðist ekki af fjárhagsstöðu.
Björt framtíð
Gera þarf lagabreytingar í þeim anda, t.d. með
með því að bæta fötlun inn í jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar eins og stjórnlagaráð lagði til
og að hafa þannig áhrif á lög um málefni fatl-
aðs fólks að þau verði ekki eingöngu þjónustulög
heldur snúist um réttindi fatlaðs fólks. Hins vegar
þarf að fara í beinar aðgerðir á mörgum sviðum
samfélagsins, t.d. með því að lögfesta og innleiða
notendastýrða persónulega aðstoð.
Dögun
Við í Dögun viljum koma í veg fyrir mismunun
með lögum eftir því sem mögulegt er. Má þar
nefna að setja þarf lög sem leggja bann við mis-
munun á vinnumarkaði í samræmi við tilskipun
Evrópusambandsins þar að lútandi. Slík lög þurfa
að ná yfir bæði beina og óbeina mismunun á
hinum opinbera og almenna vinnumarkaði og
eiga að taka til aðgangs að störfum, ráðninga og
uppsagna, launa og annarra starfskjara o.fl.
Dögun tekur undir tillögur starfshóps um full-
gildingu samningsins um fólk með fötlun og vill
beita sér fyrir því að almenn ákvæði um bann við
mismunun í ýmsum lögum tiltaki sérstaklega að
óheimilt sé að mismuna á grundvelli fötlunar.
Við gerum okkur grein fyrir að við munum aldrei
getað komið í veg fyrir óbeina mismunun með
lagasetningu einni saman. Það þarf líka að tryggja
þeim sem orðið hafa fyrir mismunun möguleika
að leita réttar síns. Ýmsar kæruleiðir eru til vegna
mismununar hjá hinu opinbera og Dögun er já-
kvæð fyrir þeirri hugmynd að mótuð verði sér-
stök kæruleið fyrir þá sem verða fyrir mismunun
á hinum almenna vinnumarkaði. Þá er einnig
Ijóst að við þurfum að efla viðhorfsbreytingu og