Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1944, Blaðsíða 14

Íþróttablaðið - 01.03.1944, Blaðsíða 14
8 IÞROTTABLAÐIÐ Nkiðamót í Skíðamót Reykjavíkur 1944. SkíSamót Reykjavíkur var að þessu sinni haldið að Kolviðarhóli dagana 12., 18. og 19. marz og sá Skíðadeild Í.R. um mótið. Alls voru skráðir á mótið rúml. 100 manns frá 6 fél. Sunnudaginn 12. marz, kl. 10 árdeg- is, hófst svo mótið í svonefndum Svig- giljum skammt norður af Kolviðar- hóli. Byrjað var á bruni karla 35 ára og eldri (Old Boys). Lá braut þeirra ofan úr suðurhlíð Skarðsmýrarfjallsins og niður Syðra-Sviggil. Úrslit urðu þessi: 1. Ólafur Þorsteinsson Á. 52.5. 2. Zoph. Snorrason Í.R. 61.6. 3. Steinþór íngurðsson Sk. R. 74.3. Strax á eftir hófst brun drengja 13—15 ára. Úrslit urðu þessi: 1. Pétur Guðmundsson K.R. 25.6. 2. Ingvi Guðmundsson K.R. 26.1. 3. Grímur Sveinsson Í.R. 29.4. Þá hófst brun kvenna í B- og C- flokki. Braut þeirra lá niður Syðra- Sviggil. Úrslit urðu þessi: Hallfríður Bjarnadóttir. B-flokkur: 1. Hallfríður Bjarnadóttir K.R. 29.2 2. Maja Örvar K.R. 29.8. 3. Sigrún Sigurðardóttir Í.R. 33.2 C-flokkur: 1 Sigrún Eyjólfsdóttir A. 23.9. 2. Margrét Ólafsdóttir Á. 26.7. 3. Gunnh. Guðmundsdóttir Í.R. 29.0. Kl. 11 átti svo að hefjast svigkeppni karla í A- og B-fl. en sökum versnandi veðurs var henni frestað þar til eftir hádegi. Þá birti mikið upp og létti éljagangi þeim, sem verið hafði allan morguninn. KI. 2 um daginn hófst svo svig' A- og B-fl. Kepptu báðir flokkar samtimis þ. e. a. s. að strax eftir fyrri umferð A-fl. byrjaði B-fl. Braut- ir þessara flokka voru báðar í Ytra- Sviggili. A-fl. brautin lá niður gilið norðanvert en B-fl. brautin lá niður gilið sunnanmégin. Færi var allhart. Úrslit urðu þessi: A-flokkur. (Samanl.). 1. Jóhann Eyfells Í.R. 92.9. 2. Björn Blöndal K.R. 93.0. 3. Magnús Árnason S.S. 94.7. B-flokkur. 1. Eyjólfur Einarsson Á. '95.5. 2. Magn. Guðmundsson. S.S.H. 95.6. 3. Þórir Jónsson K.R. 98.4. í sveitakeppni í svigi A-<flokks vann K.R. á samanlögðúm tíma 311.2 sek. Önnur varð sveit Skíðafélags stúdenta á 322.3 sek. Sveit K.R. skipuðu Björn Blöndal, Jón M. Jónsson og Georg Lúðvíksson. Þar var keppt um bikar þann liinn nýja, sem Almenna bygg- ingarfélagið h.f. gaf Háskólanum til ráðstöfunar. í svigi B-flokks sigraði sveit Ár- manns á samanlögðum tíma 328.5 sek. Næst varð sveit Skíðafélags stúdenta á 340.2 sek. 1 sveit Ármanns eru þeir Eyjólfur Einarsson, Stefán Stefánsson og Hörður Þorgilsson. Þar var einnig keppt um nýjan bikar, sem Sjóvá- tryggingafélag íslands gaf. Sigrún Sigurðardóttir. Strax og keppni B-flokksins lauk hófst svigkeppni C-flokks. Braut hans var í Syðra-Sviggili. í C-fl. voru skráðir 30 keppendur. Úrslit urðu þessi: 1. Lárus Guðmundsson K.R. 77.4. 2. Hjörtur Jónsson K.R. 82.2. 3. Magnús ÞorsteinsSon K.R. 86.2.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.