Íþróttablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 7
IÞRÓTTABLAÐIÐ
91
Islenzka liöiö. Fremri röð frá v.: Orri Gunnarsson, Sveinn Helgason, Sólmundur Jóns-
son, Birgir Þorgilsson, Kristján Oddsson. Aftari röö frá v.: Sigurhans Hjartarson,
Magnús Þórarinsson, Valur Benediktsson, Þorsteinn Einarsson, Sigurður Norödahl.
orð falla, að þeir hefðu naumast
búist við svo sterku mótliði.
Svo sem fyrr er getið, gekk flokk
urinn fram fyrir stúkusæti og heils-
aði þar. Nú voru því nær jafnmarg-
ir áhorfendur austan vallarins. —
Virtist skorta á háttvísi, að flokk-
urinn skyldi ekki staðnæmast fyrir
þeim áhorfendum og heilsa þar,
halda síðan áfram þangað, sem for-
svarsmenn buðu þá velkomna til
leiks. Músíkin var gargsöm, og
þóðsöngvarnir vöktu enga stemn-
ingu úr gjallarhornunum.
Þetta er þriðji landsleikur Is-
lendinga, hina tvo áttu þeir við
Dani og Svía sl. vetur.
Finnar kepptu hér við 3 aðra
flokka: Ármenninga, Islandsmeist-
arana Fram og úrvalslið úr Reykja-
víkurfélögunum. Tókst þeim að
merja sigur með herzlumun, einu
marki eða svo. Má því telja, að
þetta landslið Finna sé mjög svipað
að getu og Islendingar, enda þótt
þeir færu héðan ósigraðir.
Glímufélagið Ármann hafði all-
an veg og vanda af dvöl Finna hér.
Var þeim veittur margskonar
greiði. Bæjarstjórn Reykjavíkur
bauð þeim á annan í hvítasunnu
austur í Árnessýslu með viðkcmu
að Geysi, Gullfossi, Sogsfossum,
Þingvöllum og víðar. Þeir fóru og
suður með sjó. — Glímufélagið Ár-
mann hélt þeim skilnaðarhóf þ. 3.
júní. Formaður Ármanns þakkaði
Finnum komuna hingað og góða
framkomu þeirra, leysti þá síðan
út með gjöfum. Fékk hver Finni
íslenzka fánastöng, og fararstjór-
ann sæmdi hann heiðursmerki
Ármanns. Þá bað hann fararstjór-
ann færa finnska handknattleiks-
sambandinu Ijósmynd af Gullfossi,
en á hann var letrað: „Til minning-
ar um Islandsförina 1950.“ Foringi
Finna þakkaði og kvað för landa
sinna til Islands ógleymanlega.
Landslið Dana
Landslið Dana, sem keppir við
Islendinga í sumar, hefur nú ver-
ið valið. Eru í því 28 menn. Danir
leggja af stað frá Kaupmannahöfn
29. júní flugleiðis til Oslo. Þá um
kvöldið og 30. júní keppa Danir í
Noregi, en laugardaginn 1. júlí
leggja þeir af stað flugleiðis til
Reykjavíkur. Sunnudaginn 2. júh'
halda þeir kyrru fyrir, en 3. og 4.
júlí verður háð landskeppnin Is-
land—Danmörk. Þann 8. júlí halda
Danir héðan sjóleiðis til Danmerk-
ur með viðkomu í Færeyjum. —
Sennilega taka þeir þátt í íþrótta-
móti í Þórshöfn 10. júlí, leggja
þaðan upp 11. júlí og koma heim
1 ann 13. Þetta er ferðaáætlunin. —
Samningar hafa tekizt um íþrótt-
ir, sem keppt verður í. Samkvæmt
ósk Islendinga falla Danir frá
kröfu um 10 km. hlaup og 3 km.
hindrunarhlaup, en í staðinn hafa
Islendingar fallizt á óskir Dana,
um að hafa ekki 4x100 m. boð-
hlaup, en taka í staðinn 4x400 m.
boðhlaup og 1000 m. hlaup, sem
skiptist í 100, 200, 300 og 400 m.
spretti.
Kunnir tvíburar.
Brezka íþróttabl. World Sport
birti nýlega myndir af fernum tvi-
burum, sem hafa getið sér orðstír
á sviði íþróttanna, meðal þeirra eru
Haukur og Örn Clausen. Hitt eru
cricetleikararnir Eric og Alec Bed-
ser, borðtennismeistararnir Diane
og Rosalind Bowe og svo frönsku
hlaupararnir Jacques og Jean
Varnier.