Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 16

Íþróttablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 16
100 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ grasaf jalli Æskuhvöt. Vöknum! Vöknum íslenzk æska! Eflum vilja! Styrkjum mátt! Lengur ekki sinnum svefni! Setjum okkur takmark hátt! Landið kæra álla eggjar upp — við glaðan hörpuslátt! Hver er okkar íþrótt bezt, íslendingar snjallir? G. R. (Þessir fjórir botnar hafa borizt til viðbótar við þá sex, sem birtir voru i aprílblaðinu). Verum djarfir! Verum hraustir! Vanda allan leysa má! Ryðjum okkur breiðar brautir beina stefnu markið á! Ef engir finnast örðugleikar er ei sigur neinn að fá! Fylkjum liði, íslenzk æska. Enn er morgun, sigrum þraut. Hrekjum ótta, hvergi víkjum! Höldum fram á sigur braut. Vinnum fyrir fósturjörðu unz föllum við í móðursskaut. Sveinn Björnsson. Sundið styrkir manninn mest, muni það drengir allir. Þórður Jónsson, Laufahlíð. Sundlistina met ég mest, munu segja allir. Lárus Salómonsson. Að stökkva yfir háan hest. (Á hausinn detta allir). Nói norðlenzki Á skíðum þjóðin þroskast mest, það munu vita allir. Skíði. Skíðaíþrótt met ég mest. Magnús þekkja allir. Skíði. (Höf. tveggja síðustu botna er Akur- eyringur og mun eiga við skíðakapp- ann Magnús Brynjólfsson). Til vinstri: Konungur hlauparanna Paavo Nurmi og ameríska blaðakonan Alice Burke. Þau eru að skoða guU- verðlaunin, sem faðir hennar vann í 100 og 1^00 m. hlaupi á 1. Ólymp- íuleikunum í Aþenu 1896. Iþróttalíf unglinga í Húsavík. A. K., ungur piltur í Húsavík, sendi ritstj. skemmtilegt bréf um íþróttir og félagslíf meðal gagn- fræðaskólanemenda þar í bænum. Skíðaíþróttin skipaði öndvegi í vet- ur. Fyrri hluta vetrar var haldið skíðamót og keppt í svigi og bruni drengja. Keppendur voru 10. Fyrst- ur í svigi var Björn St. Sigtryggs- son á 56,2 sek., 2. Aðalsteinn Karls- son á 57 sek. 3. Guðbjartur D. Guð- laugsson á 58,3 sek. Þrír fyrstu í bruni: 1. Aðalsteinn Karlsson á 1 mín. 17 sek., 2. Erling Kristjánsson á 1 mín. 17,2 sek. 3. Njáll Þórðarson á 1 mín 26,3 sek. Magnús Brynjólfsson frá Akur- eyri kenndi eftir nýárið á vegum íþróttafél. Völsungar. Þá var hald- ið annað skíðamót. Voru 15 kepp- endur í bruni og 5 í svigi. Fyrstur í bruni varð Erl. Kristjánsson á 50,4 sek., 2. Aðalsteinn Karlsson á 59 sek., 3. Kári Rafn Sigurjónsson á 60,2 sek. I svigi varð fyrstur Að- alsteinn Karlsson á 65,8 sek. 2. Erl. Kristjánsson á 71,8 sek og 3. Hall- dór Ingólfsson á 82,2 sek. Iþrótta- deild var stofnuð innan skólans, form. Gunnsteinn Karlsson. Efndi íþróttadeildin til kapphlaups, um 2000 m„ þ. 1 maí. Færi var mjög vont, öklasnjór og krap. Fyrstur varð Erl. Kristjánsson, annar Hörð- ur Arnórsson og þriðji Kristján Jónsson, allir góð hlauparaefni. Þá var fyrirhuguð íþróttakeppni um hvítasunnu. Einnig voru aðrar ráðagerðir um íþróttamálin á prjónunum hjá hinum ungu áhuga- mönnum.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.