Íþróttablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 11
IÞRÖTTABLAÐIÐ
95
Öívœdi
--—--—~ *7
Mynd, sem lesendur velja.
Hér birtist mynd af 5 piltum úr KR, sem unnu í þriggja manna og fimm manna sveit-
um í drengjahlaupi Ármanns í vor. Fimm manna sveitin er talin frá vinstri: —
Gunnlaugur Gunnlaugsson, Sverrir Gíslason, Steinn Steinsson, Sævar Markússon,
Haraldur Pálmason. — Sverrir, Sveinn og Soevar voru sigurvegarar í 3ja manna
sveitinni, og unnu bikar þann, sem um var keppt, til eignar. Stjórn frjálsíþrótta-
deildar KR sendi myndina — Þ. S. haföi óskaö eftir mynd af Ragnari Thorvaldsen
skíðastökkmanni, „Hann er aö mínum dómi einhver stílhreinasti stökkmaöur hér-
lendis“, segir Þ. S. — Þórarinn Björnsson, Skógum, Ax. óskar eftir mynd af Finn-
birni Þorvaldssyni. „Hefur hann aö minu áliti gefiö íslenzkum íþróttamanni hina
réttu mynd af íþróttumsegir Þ. B. — Þess skal getiö, að í aprilbl. birtist óska-
mynd af F. Þ. — Til hagræöis er þaö fyrir ritstjórann, að myndir fylgi óskum, ef
hægt er. Þetta á einkum viö um myndir utan af landi.
íþróttasamb. Islands tók við þeim
1. jan. 1948. — Þótt frjálsíþrótta-
iðkun hæfist hér á fyrsta tug ald-
arinnar, var það ekki fyrr en upp
úr 1920, að verulegt vakningatíma-
bil rann upp. Var þá stofnað til
Allsherjarmótsins, þar sem keppt
var í flestum greinum frjálsíþrótta,
og Meistaramót íslands hefur ver-
ið haldið árlega síðan 1927. — Um
það bil 20 árum eftir fyrra vakn-
ingartímabilið rennur upp ný gull-
öld frjálsíþrótta á íslandi."
Þetta er ágæt handbók. Stjórn
FRl skipa nú Lárus Halldórsson
form., Brynjólfur Ingólfsson, vara
form., Guðmundur Sigurjónsson,
ritari og gjaldkeri., meðstjórnendur
Sigurður S. Ólafsson og Garðar S.
Gíslason.
Donald Bailey,
spretthlauparinn, sem var hér í
fyrra, hefur nýlega hlaupið 200 m.
á 21,1 sek.
mánaðarins
Hvern faðmi gæfan góðan mann,
er geymir feðramál,
sem dýran, fagran fjársjóð þann,
er fær hann aldrei borgaðan,
og ávallt ber í blíðri sál
hið bezta’ er á það mál.
Og leggi gæfan hönd um háls
á hverjum Islending,
er slingur njóta sín vill sjálfs,
í sannleik verða og anda frjáls,
og helgust geyma heimsins þing
í hjarta og sannfæring.
Já, blessi drottinn styrkur, stór
í striti, sorg og glaum
hvern dánumann, er dröfn of fór,
hvern dreng, er reynir verða stór,
hvern svanna er ástar dreymir
draum,
hvern dropa í lífsins straum.
Einar H. Kvaran.
Góður árangur á
vormótunum.
Frjálsíþróttamótin, sem haldin
hafa verið í Reykjavík í vor, gefa
góðar vonir um, að íslenzkir í-
þróttamenn nái langt í ýmsum
greinum í sumar, ef svo verður
framhaldið, sem nú horfir. Hörður
Haraldsson hefur nú á vormóti
ÍR og EOP-mótinu unnið 200 m.
hlaupið, á vormóti lR hljóp hann
skeiðið á 21,7 sek., var það hin
harðasta keppni við garpana Guð-
mund Lárusson og Finnbjörn Þor-
valdsson, sem báðir hlupu á 21,8.
Þá setti Gunnar Huseby nýtt
met í kringlukasti á 49,04 m. og
Torfi Bryngeirsson nýtt met í
stangarstökki. Um það er getið
annarsstaðar í blaðinu.