Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 13

Íþróttablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 13
IÞRÓTTABLAÐIÐ 97 Þorsteinn Einarsson: Dr. (. Diem heimsæhir Island Hver er dr. Carl Diem, hver eru verk hans, að honum er skipað á bekk með öndvegis íþróttafrömuð- um íþróttamenningar Evrópu? Á æskuárum var hann virkur íþróttamaður. Aðeins 23 ára gam- all, 1906, var hann foringi hinna þýzku þátttakenda í Ólympíuleik- unum í Aþenu. Meðal rústa hinna grísku must- era og á slóðum hinna fornu Ól- ympíuleika vaknaði hugur hans til íþróttasögufræði og áhugi hans til þess að færa nútíma íþróttalíf í spor hinna beztu fornþjóða. Það er erfitt að skera úr, hvort C. Diem hefur náð lengra í sviði íþróttaskipulagningar og í kennslu- störfum eða í rannsóknum sínum á fornum íþróttaarfleifðum. I byrjun þessarar aldar var C. Diem orðinn einn af forystumönn- um frjálsíþróttasambands Þýzka- lands og á þess vegum í Ólympíu- nefnd Þýzkalands. 1908 verður hann framkvæmdastjóri ólymp- íunefndarinnar þýzku. Hann hefur verið foringi hinna þýzku þátttakenda á Ólympíuleik- um, auk þeirra sem hér að framan eru taldir, í Stokkhólmi 1912, Amsterdam 1928, Los Angeles 1932 og það er innileg ósk hans að fá að fylgja þýzkum þátttakend- um til Ólympíuleikanna í Helsing- fors. Margir telja XI. Ólympíuleik- ana, sem haldnir voru í Berlín 1936 þá glæsilegustu og bezt skipulögðu nútíma Ólympíuleika. Framkvæmd þeirra leika var verk C. Diem. Hann var höfundur nýjunga sem vöktu heimsathygli t. d. ólympíu- klukkunnar, sem hringdi á æsku heimsins, blys boðhlaupsins frá Hain í Ólympíu o. s. frv. Árið 1920 var stofnaður íþrótta- skóli hins þýzka ríkis í Berlín (Den Deutschen Hochschule fúr Leibes- úbungen). Fyrir atbeina C. Diem náðist þessi áfangi og Diem var forstöðu- maður skólans frá stofnun hans fram að valdatöku Hitlers 1933. Þúsundir íþróttakennara innan Þýzkalands sem utan dvöldu þrjú ár við nám í þessum skóla og drukku í sig anda og dug forstöðu- mannsins og kennarans. Á árun- um 1933 og fram á stríðsárin var hann kennari við skólann. I loft- árásunum á Berlín voru hinar glæsi legu byggingar skólans jafnaðar við jörðu. Að stríðslokum 1945 tók hann þráðinn upp að nýju og stofnaði í útjaðri Kölnar íþróttaskóla, sem er arftaki skólans í Berlín. Nafn C. Diem er tengt fleiri í- þróttastarfssviðum, en hér er rúm til að telja. Innan skólamála Þýzkalands má rekja slóð hans. Hann samdi náms- skrár í íþróttum fyrir öll aldurs- skeið þýzkra skóla. Vegna þekkingar hans á íþrótta- málum og hins mikla orðs sem fór af störfum hans, hefur hann dval- ið sem gestur víða um heim. 1932 var hann um tíma kennari við háskólann í Los Angeles, hefur síðan dvalið við háskólann í París, London, Zúrich, Lausanne, Istam- bul, Ankara, Tokio, Sofía, Stokk- hólmi og Helsingfors. Þá er vert að minnast samstarfs C. Diem við Frakkan Baron de Caubertin, sem endurreisti Ólymp- íuleikana. Þeir voru þegar vel kunnugir 1904, en á Ólympíuleik- unum 1912 má segja að hið nána samstarf þeirra hefjist. Þeir áttu sæti um margra ára skeið í al- þjóða-ólympíunefndinni og undir- bjuggu saman marga fundi hennar. 1936, meðan Ólympíuleikarnir fóru fram var Baron de Coubertin rúmliggjandi í Lausanne, en fylgd- ist með leikunum gegnum útvarp. Hann lagði mörg þau störf sem hann hafði sjálfur viljað fram- kvæma í hendur C. Diem, því að honum treysti hann eins og sjálf- um sér. Þegar Baron de Coubertin andað- ist fól hann C. Diem umsjón hinna

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.