Íþróttablaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 8
október. I mjög fögru haust-
veðri mættu tæplega 10 þúsund
áhorfendur á völhnn, sem er
algjör metaðsókn í leik ís-
lenzkra liða, til að sjá viðureign
tveggja beztu knattspyrnuliða
Islands síðustu 15 árin og ahur
rammi leiksins var óvenju
glæsilegur. En því miður varð
eftirleikurinn annar. KR sigr-
aði með oddamarkinu af þrem-
ur og í einu dagblaðinu í Rvík
stóð meðal annars:
„Eftir langa og stranga bar-
áttu er Islandsmótinu í knatt-
spyrnu nú loks lokið, og það eru
KR-ingar, sem hrepptu hinn
eftirsótta íslandsmeistaratitil.
Þeir léku til úrslita gegn Skaga-
mönnum á sunnudaginn og sigr-
uðu með 2:1 í sögulegum leik,
sem mun seint gleymast þeim
tæplega 10 þúsund áhorfendum,
sem sáu viðureign þessara
erfðafjenda, sérstaklega síð-
ustu 25 mínúturnar. Eftir jafn-
an fyrri hálfleik, sem lyktaði
1:1, skoraði Baldvin Baldvins-
son, miðherji KR, sigurmark
félags síns á 19. mínútu í síð-
ari hálfleiks. Baldvin fékk send-
ingu rétt innan við miðlínu á
vallarhelmingi Akraness og átti
einn í höggi við fjóra varnar-
menn Akraness. Hann lét það
ekki á sig fá, heldur lék ótrauð-
ur áfram með knöttinn og
stefndi að marki — og hver á
fætur öðrum heltust hinir fjór-
ir varnarmenn úr lestinni, og
Baldvin var loks einn eftir og
átti aðeins eftir að senda knött-
inn fram hjá Helga Daníelssyni
og í mark. Og það tókst Bald-
vini.
Leikurinn, sem fram að þessu
hafði verið jafn og skemmtileg-
ur tók aðra stefnu eftir þetta
þýðingarmikla mark. KR-ingar
höfðu allan tímann leikið 4-2-4
(eins og Akranes) en nú drógu
þeir annan miðjumanninn, Ell-
ert Schram, enn aftar og mynd-
uðu 5-manna varnarvegg. KR-
ingar lögðu sem sé aht upp úr
því að halda hlutföllunum ó-
breyttum — og það tckst þeim
— en eftirleikurinn var hroða-
legur vegna þeirrar hörku, sem
komst í leikinn. Þegar u.þ.b. 10
mínútur voru eftir gerðist það
með stuttu millibili að Eyleifur
Hafsteinsson og Ríkharður
Jónsson úr Akranes-liðinu voru
bornir út af vellinum í sjúkra-
börum, vegna meiðsla, sem þeir
hlutu — og hafði Ríkharður
brotnað í baki. I hinu liðinu
hlutu menn einnig meiðsli. Ár-
sæll Kjartansson, h. bakvörður,
var nefbrotinn og nokkrir aðrir
hlutu önnur meiðsli. Áhorfend-
ur, sem flestir voru á bandi
Akraness, urðu mjög órólegir,
þegar Eyleifur og Ríkharður
Baldvin Baldvinsson, miðherji KR, og markhæsti maður mótsins, nær knettinum í vítateig Akureyr-
inga í leiknum á Laugardalsvelli og skorar eitt af þremur mörkUm sínUm I leiknum.
188