Íþróttablaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 15
Víðavangshlaup IR
og Jón líaldai
Eins og kunnugt er var
Víðavangshlaup IR háð í 50.
sinn á s.l. vori og fór fram
á sumardaginn fyrsta, eins
og venjulega. Þetta hlaup á
sér merkilega og á margan
hátt athyglisverða sögu, sem
ekki verður samt rakin ná-
kvæmlega að þessu sinni.
Hlaupið hefur t.d. aldrei fall-
ið niður og er það eitt útaf
fyrir sig merkilegt.
Það var hinn kunni íþrótta-
frömuður og hugsjónamað-
ur, Helgi Jónasson frá
Brennu, sem kom þeirri hug-
mynd á framfæri vorið 1915,
að efnt yrði til Víðavangs-
hlaups. Ekki varð þessi hug-
mynd þó að veruleika fyrr en
árið 1916, en þá bar sumar-
daginn fyrsta upp á skírdag.
Vonandi gefst okkur tæki-
færi til að segja nánar frá
þessu merka hlaupi, en hér
á eftir munum við skýra að
nokkru afreksferil fyrsta
sigurvegara hlaupsins, Jóns
Kaldal.
’k
Árið 1916 eignuðust Islend-
ingar fyrsta hlaupara sinn, og
þann einasta, sem vinnur sér
orðstír á erlendum vettvangi,
og það um leið og hinir ágætu
og gamalkunnu Finnar, H.
Kohlemánien og Nurmi voru
taldir yfirnáttúrlegir, hvað tíma
snerti, allt frá einnar mílu
hlaupi upp í maraþonhlaup. —
Víðavangshlaupið 1916 — hið
fyrsta í röðinni — færði mönn-
um sannanir fyrir því, að þessi
granni, hægláti piltur, bjó yfir
óvenjulegu viljaþreki og ein-
beittu skapi. Það er rétt að
segja nokkuð nánar frá, hvern-
ig atvikin höguðu því til, að Jón
Kaldal komst í kynni við hlaup
og keppni í gegn um þetta
fyrsta víðavangshlaup I.R.
Það var sunnudaginn fyrir
sumardaginn fyrsta, að Helgi
frá Brennu og Ben. G. Waage
voru að telja kjark í mann-
skapinn sem hafði lofað að vera
með, en voru nú óðum að gugna
vegna algjörs æfingaleysis.
Þetta var í portinu hjá Mennta-
skólanum, en þar voru aðal-
bækistöðvarnar fyrir æfingarn-
ar undir hlaupið, sem höfðu
verið heldur stopular.
Jón Kaldal bjó þá í húsinu
við Bókhlöðustíg 2, gegnt
íþöku, og hafði fylgst með æf-
ingum í gegn um gluggann.
Hann fer út til þeirra Helga og
Benna og spjallar við þá fram
og aftur um hlaupið, og áður
en þeir skilja, verður það úr,
að hann er einn þátttakand-
inn, til uppfyllingar og að
margra dómi án sigurmögu-
leika.
Sumardagurinn fyrsti rann
upp heiður og bjartur. Kepp-
endur voru 9 og er nú lagt af
stað.
Ólafur Sveinsson, ágætur
hlaupari og fjölhæfur íþrótta-
maður á sínum tíma og síðar
Jón Kaldal og Benedikt G. Waage.
195