Íþróttablaðið - 01.10.1965, Síða 9
Sigurvegarar Þróttar í 2. deild.
voru bornir út af, enda má
segja, að síðasti vonarneisti
Akraness til að jafna hafi
slokknað, þegar þessir leikmenn
yfirgáfu völlinn með svo svip-
legum hætti. Eftir voru 9
Skagamenn á móti 11 KR-ing-
um, og ekkert gat breytt úrslit-
unum.
Þegar Hannes Þ. Sigurðsson,
dómari, flautaði til leiksloka,
þusti múgur og margmenni inn
á sjálfan völlinn og er það í
fyrsta skipti í sögu Laugardals-
vallarins, að slíkt gerist. Hér
var mestmegnis um unglinga
að ræða, sem vildu með marg-
víslegum hætti votta leikmönn-
um KR lítilsvirðingu. Svo voru
lætin mikil, að það var með
naumindum, að Björgvin
Sehram, formaður Knatt-
spyrnusambands Islands, gat
afhent KR-ingum íslandsbikar-
inn, sem þeir unnu nú í 19. sinn.
Og þegar formaðurinn bað
menn að hrópa ferfalt húrra
fyrir sigurvegurunum kafnaði
það í ólátum áhorfenda og aldr-
ei hafa nýbakaðir Islands-
meistarar fengið aðrar eins við-
tökur.“
Þrátt fyrir þessi leiðinlegu
lok mótsins var mótið í heild
mjög vel heppnað — og þó enn
liggi ekki lokatölur fyrir um
aðsókn er þó nær öruggt, að
fjárhagsávinningur af mótinu
hefur aldrei verið meiri. Loka-
staðan í mótinu varð þessi:
K.R. 10 5 2 3 23-15 13
Akranes 10 6 1 3 24-16 13
Keflavík 10 4 3 3 18-15 11
Akureyri 10 5 1 4 14-19 11
Valur 10 3 1 6 19-24 7
Fram 10 2 1 7 10-19 5
Aðeins einu sinni áður hefur
Islandsmótið unnizt á 13 stig-
um — en það var 1962, þegar
Fram og Valur urðu jöfn með
þá stigatölu og Fram sigraði
síðan í aukaleik eins og KR nú.
Þó Fram hafi orðið að bíta í
það súra epli að verða í neðsta
sæti í mótinu var liðið þó lítið
lakara en önnur félög, eins og
bezt sést á því, að Fram sigraði
Akurnesinga á Akranesi og töp-
uðu fyrir sama liði með einu
marki í Reykjavík eftir að hafa
haft yfirtökin í leiknum allan
síðari hálfleikinn og Fram tap-
aði báðum leikjunum gegn Is-
landsmeisturum KR með eins
marks mun — sigurmark KR
í báðum tilfellum skorað úr
vítaspyrnu. En Fram á ungu,
efnilegu liði á að skipa og því
ólíklegt, að dvöl félagsins í 2.
deild verði löng. En þó mótið
hafi verið sorglegt fyrir Fram
var það ekki síður sorglegt fyr-
ir Val, sem stóð sig með mikl-
um ágætum fjóra fyrstu leiki
mótsins og var að þeim lokn-
um í efsta sæti með sjö stig. En
fleiri stig hlaut Valur ekki í
mótinu — tapaði öllum sex síð-
ustu leikjum sínum í mótinu.
Þetta var ótrúlegt — og skýr-
ing vandfundin — því Valur
hefur ágætu liði á að skipa, en
einhverjir þverbrestir í skap-
gerð sumra leikmanna liðsins,
virðast hafa verið afdrifaríkir.
Keflvíkingum gekk illa fram-
an af mótinu, en stóðu sig ágæt-
Framh. á bls. 198.
189