Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1970, Page 11

Íþróttablaðið - 01.12.1970, Page 11
landi, og fluttist að nokkru með bók Guts Muths, sem þýdd var 1799 (Gymnastik frir die Jugend). Vivat Vistorius Franziskus Nachtegall (1777-1847) Naghtegall er talinn vera upp- hafsmaður dönsku leikfiminnar. Hann stundaði nám í guðfræði. Á skólaárunum var hann mjög áhugasamur um íþróttir, en varð að hætta námi vegna fjárhags- skorts, og tók hann upp kennslu- störf. Hann las bók Guts Muths, og hafði lesturinn þau áhrif á hann að hann ákvað að gerast íþrótta- kennari. Hann safnaði saman nokkrum drengjum í Konges- have, og kenndi þeim líkamsæf- ingar og leiki. Friðrik VI. prins veitti þess- ari hreyfingu eftirtekt er hann gekk um garðinn. Hann hvatti drengina og kennara þeirra og er talið að áhugi Friðriks á íþrótt- um hafi stutt Nachtegall til að einbeita sér að uppbyggingu þeirra í Danmörku. Brátt urðu nemendur hans svo margir, að hann varð að fá sér aðstoðar- mann. Skólamenn fóru að gefa gaum að leikfimi. Arið 1801 hófst leikfimikennsla við fyrsta danska lýðháskólann. Árið 1804 var íþróttakennara- skóli stofnaður fyrir herinn. Nachtegall var skólastjóri. Fyrstu kennararnir brautskráðust 1806. Nachtegall gaf út bók sem inni- hélt æfingar, bæði eftir hann og Guts Muths. Bók þessi var leiðar- vísir í hart nær eina öld. Nachte- gall lagði mikla áherzlu á sund- námið og árið 1838 hóf hann að kenna stúlkum leikfimi. Nachtegall var einn helzti íþróttafrömuður Dana á sinni tíð. Árið 1898 var stofnaður íþrótta- Guts Muths kennaraskóli, sem deild við Kennaraskóla ríkisins. Forstöðu- maður deildarinnar, var K. A. Knudsen. Árið 1909 var hafin íþrótta- kennsla í nokkrum tengslum við háskóla. Prófessor J. Linhard var skipaður kennari við skól- ann og annaðist kennslu í líffæra- og fimleikafræði. Hann ritaði drög að fimleikafræði og athug- anir við æfingar, í því sambandi. Þessi skóli þróaðist svo áfram og heitir nú Danmarks höjskole for legemsövelser. Upp úr aldamótunum kernur læknirinn Salone fram á sjónar- sviðið. Hann ritar bók um leik- fimi barna, og beitir sér tynr skipulagningu leikfiminnar. Hann vill flokka æfingar eft- ir aldri nemenda, og leggst gegn hernaðarleikfimi. Leikfimin breytist smátt og smátt. í stað stellingar-leikfimi kem- ur hreyfingarleikfimi. Mest unnu að þessu: Elin Falk (sænsk), Ellí Björksten (finnsk) og fimleika- kennarinn A. Ottar. Leiðbeinendaskólar eru mikil lyftistöng fyrir dönsku íþrótta- hreyfinguna. Kennsla fer fram í námskeiðum. Nemendur frá þessum skólum kenna margir hjá félögum, en ekki í skólum. Einn þessara skóla er Ollerup, hann IÞROTTABLAÖIÐ 243

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.