Íþróttablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 25
I
reisnartilraun í Ungverjalandi
vildi Puskas heldur útlegð og
hvarf á leyndardómsfullan hátt.
Það kom svo senr engum á óvart,
því yfirvöldin lýstu eftir hon-
um. Á sama tíma voru aðrir
aðilar, öllu friðsamlegri, einnig
að leita hans og höfðu að lok-
um uppi á honum, á Ítalíu.
Puskas segir sjálfur frá þessu
þannig: — Snemma kvöld eitt
1958, hringdi síminn. Eg ætl-
aði ekki að svara, en sem betur
fór, gerði ég það og varð undr-
andi, þegar það var fram-
kvæmdastjóri Real Madrid, og
hann spurði, hvort ég vildi leika
með Real Madrid. Hugsa sér!
Þarna var þetta afráðið í síma
á tveim mínútum!
Þannig atvikaðist það, að
Ferenc Puskas, eftir að hafa ver-
ið horfinn í marga mánuði, var
skyndilega farinn að leika með
liði, sem þá var mest allra
Evrópuliða. Þar voru þeir Kopa,
Rial, Di Stefano, Gento og
Puskas stórkostlegasta framlína
allra tíma.
Puskas skoraði 3 mörk í öðr-
um leik sínum gegn Gijon, lék
í 372 leikjum Real Madrid og
skoraði 324 mörk.
Á hinum langa ferli sínum
hefur Puskas aðeins einu sinni
meiðst svo alvarlegt megi telj-
ast, en það var árið 1961 í leik
gegn Real Mallorca, sem hann
braut í sér 3 rifbein og gat ekki
leikið meira það árið.
Margar síður þyrfti undir þær
óteljandi sögur og skrýtlur, sem
til eru um Ferenc Puskas, en
hann segir sjálfur, að einu at-
viki muni hann aldrei gleyma.
Það var þegar hann og Yashin
hinn rússneski báru Sir Stanley
Matthews á öxlum sér, þegar
hann var að ganga til leiks í
síðasta sinn.
Puskas — hvað skoraði hann mörg mörk?
IÞROTTABLAÐIÐ
257