Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 21

Íþróttablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 21
stöðvum, silungsveiðimenn, ei' fiska upp um ís á stöðuvötnum, námssveinar í skólum biskups- setra, sem láta holdið verða yfir- sterkara andanum og iðka glímu, aflraunir og aðra leiki sér til hressingar, gleði og hita. Baðstofan verður á þessu tima- bili að svefnstofu eða vinnu- skála. Baðlaugarnar verða að helgum dómum, þangað sem sjúkt fólk leitar sér lækninga. íþróttir lifa með fólkinu og þá ekki sízt hjá sumum prestum, en bezt lifa þær í sögum og sögn- um þeim, sem þjóðin geymir í minni sínu eða á skinnhandrit- um. Þær fá á sig ævintýrablæ í riddarasögum og útilegumanna- sögnum. í þjóðsögunum glíma tröll og jafnvel draugar en álf- ar stíga dans. Af þessum íþróttaleifum vaxa íþróttaiðkanir á öndverðri 19. öld, studdar minningum um glæsileg- ar íþróttahetjur íslendingasagn- anna. Fyrsta árssprota þessa vaxt- ar verður vart í Latínuskólan- um meðan hann er starfræktur að Bessastöðum 1805—1846. Námssveinar lifa þar fábreyttu lífi. Sumir kennarar þeirra hafa, sem ungir menn, iðkað glímu í Hóla- eða Skálholtsskóla. Þeir örva viðleitni piltanna — og hvatningu sækja þeir í grísku ritin, sem þeir verða að þýða á íslenzku — og þá ekki síður í íslendingasögurnar, sem þeir náðu til að lesa. Túnið við skólann verður völl- ur þeirra fyrir knattleiki — sjór- inn við Bessastaðanesið að sund- stæði — og forstofa eða borðstofa skólans að glímuvelli. Hver kenn- ir öðrum — og kennarar og ráðs- rnaður aðstoða á stundum — og keppinautar verða vermenn á leið úr eða í verstöð. Sumir þess- ara námsmanna verða baráttu- menn um frelsi, framfarir og málvöndun. Allt heillavænlegt úr íslenzkri menningu vilja þeir efla — og þeim gleymist ekki íþróttir. Þeir gefa m. a. út kennslu- bók í sundi árið 1836. Fyrsta sundkennslunámskeiðið er lialdið 1821. Síðan rekur hvert annað út öldina — og eru nem- endur Hins lærða skóla í Reykja- vík styrktir til sundnáms í torf- laug innan við bæinn, þar sem bóndi kennir sund. Þessi bóndi flytur sig síðan til Reykjavíkur og tekur að kenna sund að stað- aldri allt árið. Víða um land eru gerð köld sundstæði og alþýða manna leit- ast við að læra sund við mjög frumstæðar aðstæður, eins og t. d. í sjónum við Heimaey í Vest- mannaeyjum, en þar hófst sund- kennsla þjóðhátíðarárið 1874. Dönsk stjórnvöld höfðu ekki lagt íþróttum landsmanna lið frá því á 18. öld að Danakonungur hét manni einum á Húsavík fé að launum, ef hann kenndi ís- lendingum að notfæra sér skíði. Árið 1857, lætur ríkisstjórn Dana tilleiðast, fyrir áskoranir kennara Latínuskólans í Reykja- vík, að skipa danskan sjóliðsfor- ingja leikfimikennara við skól- ann, en þá var lokið smíði hins fyrsta íþróttahúss á íslandi og var það eign skólans. Áhrifa frá þessari kennslu gætti lítt í íslenzku þjóðlífi, því að hún hafði enga stoð í menn- ingu þess. Kennslan var högg- c -------------------------- \ Vér erum umboðsmenn fyrir þýzku Dieselverksmiðjuna KLO CKNER-HUMBO LT-DEUTZ, stærstu Dieselverksmiðju í heimi, hin elzta og reyndasta í sinni grein. MARGRA ÁRA REYNSLA HÉR Á LANDI. HAMAR H.F. Elzta og reyndasta vélaverkstæði landsins. Símar 2 2123 — 2 2125 ÍÞRÓTTABLAÐIB 253

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.